Við settum Íslandsmet ´95

main.php?g2_view=coreÉg man nú ekki ártalið nákvæmlega, en það var ca. 94-95 sem við á Snæfuglinum SU 20 frá Reyðarfirði, fórum í Barentshafið og kjaftfylltum allar frystigeymslur af þorskflökum, meira að segja frystiklefa kokksins.

Aldrei hafði verið komið með jafn mikið af frystum þorskflökum í land úr einni veiðiferð, en metið var bætt um nokkur tonn, viku síðar af togara sem var með okkur í "Smugunni".

Aflinn var fáránlega góður, en það tók aðeins 20 daga að fiska um 600 tonn. Eitt sinn þurfti að senda mann í öryggislínu í göngutúr út á pokann og hleypa úr honum, því hann komst ekki upp skutrennuna. Dauður þorskur flaut um allan sjó, sennilega um 20 tonn og það var ekki falleg sjón. Halið var 80-90 tonn eftir eins til tveggja tíma tog.


mbl.is Með metafla úr Barentshafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fór ca 6 túra í smuguna og aðeins einn gerði vel við veski mitt.

Oftast nær var hangið úti í 30 til 50 daga á tryggingunni.

En djöfull hafa þeir á Venusi þurft að vinna harkalega, þúsund tonn á frystitogara á mánuði er vel af sé vikið .

Flott hjá strákunum !!

runar (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 20:12

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, þær hafa sjálfsagt verið nokkrar aukavaktirnar í túrnum, a.m.k. voru þær margar hjá okkur.

-

Ég fór 4 eða 5 túra í smuguna og mig minnir að bara einn hafi verið tryggingin en stóri (stutti) túrinn var í algjörum sérflokki.

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2010 kl. 21:50

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég fór aðeins einn túr í Smuguna. En að honum loknum sagði ég við sjálfan mig "hingað og ekki lengra góði", pakkaði saman og fór í land eftir 14 ár á Örvari HU 21.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.2.2010 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband