Feit.... og falleg

WatchyourweightSystir mín þótti eilítið búttuð þegar hún var krakki og hafði henni einhverntíma verið strítt vegna þess, sennilega af eldri systkinum okkar. Hún var mikið hjá ömmu okkar og afa sem voru fædd á 19. öldinni.

Á árununum 1927-1944 áttu þau litla bújörð í Sogamýrinni, "Litluhlíð" þar sem nú eru gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar.  Afi minn vann við skósmíðar á skóvinnustofu "í bænum", meðfram bústörfum en segja má að bústörfin hafi átt hug þeirra allan, gömlu hjónanna.

Systir mín komst því ekki hjá því að heyra þau tala oft um bústörf löngu eftir að þau brugðu búi í Litluhlíð og fluttu á "mölina" niður í Mávahlíð. Þá var að sjálfsögðu talað um lömb og annan búfénað sem "feit og falleg", ef þau voru vel haldin.  

Eitt sinn heyrði hún fullorðið fólk tala um að tiltekin nágrannakona væri nú orðin ansi feit. Þá gellur í þeirri litlu, hróðugri á svipinn: "Já, og falleg!".


mbl.is Of þung strax við tveggja ára aldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.2.2010 kl. 19:29

2 identicon

Já, víst var ég klár

Þórunn (IP-tala skráð) 16.2.2010 kl. 19:53

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Þú varst það, Tóta mín

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.2.2010 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband