Færsluflokkur: Bloggar
Þegar maður hlustar á hvað fer fram á milli manna í aðdraganda árásarinnar, þá virðist sem þetta hafi verið tilviljanakennd aðgerð. Þyrlumönnunum "sýndist" mennirnir á jörðu niðri vera vopnaðir.
Það hefði e.t.v. verið smá réttlæting í þessu ef leyniþjónusta hersins hefði bent á mennina í þeirri fullvissu að þetta væru vopnaðir og hættulegir menn. En hvað eru þá börn og fréttamenn að gera með þeim? Eru "hryðjuverkamennirnir" kannski að nota þau sem mannlega skyldi?.... nema bara leyniþjónusta hersins vissi ekkert á hverja var verið að ráðast.... og því voru skyldirnir gagnslausir.
Ég rakst á Facebook síðu sem Íraki, Nour Aldin , búsettur í Reykjavík heldur úti. Þar eru nokkrar myndir frá Írak. Slóðin er: HÉR
Ég sýni hér nokkrar myndir úr ljósmyndasafni hans. Ég spurði reyndar ekki leyfis... Jæja, ég tek þær þá niður ef ég má þetta ekki.
Margar fagrar byggingar eru í Írak, flestar tengdar Múhameðstrú.
"Beloved Baghdad" segir í texta við myndina. Ekki alveg að heilla mig.
Þetta er fallegra, fjallaþorp í Írak. Ég myndi ekki vilja að krakkarnir mínir væru að leika sér á bjargbrúninni
"Þar sem fjöllin sökkva í sæ", orti Megas um austjarðafjöllin, þar sem jarðlagastaflarnir halla óvíða meir á Íslandi. Þessir jarlagastaflar í Írak, halla reyndar töluvert meir.
Ævagamlar menningarmynjar og listaverk eru í Írak. Á þessu svæði má segja að "nútíminn" hafi orðið til í þróunarsögu mannsins.
En í Írak eru einnig nútímalegri listaverk. Þetta er magnað.
Við þessa mynd segir í texta: "They destroyed everything beautiful in my beloved country...." en ekki er farið nánar út í hverjir "They" eru en hef þó grun um að átt sé við Bandaríkjamenn. Það kann að vera ósanngjarnt.
Mörgum Írökum er þetta minnismerki hjartfólgið en það er friðartákn, staðsett í miðju Baghdad og tengir nokkur borgarhverfi saman.
Nú er þetta minnismerki um stríð.
![]() |
Bandaríski herinn tjáir sig um myndbandið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.4.2010 (breytt kl. 10:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bubbi Morthens.... hvað getur maður sagt?... Brynja, ég elska þig?
Skoðanir Bubba eru eins og vindurinn.
Það glittir aðeins í gegn hjá Bubba, hans eigið svekkelsi vegna viðskipta sinna við Mammon. Hann lét taka sig "Big Time" í rassgatið og hann vælir eins og krakki yfir því.
Svo hallar hann sér að Jóni Ásgeiri og félögum og fær útskýringar hjá þeim, hverjum þetta sé allt saman að kenna.
Það er ekki verið að þagga niður í Bubba Morthens á pólitískum vettvangi.
Hins vegar finnst þeim sem gaman hafa af flutningi hans á eigin ljóðum og lögum, að þeir eigi að fá fyrir peninginn það sem greitt var fyirr, þ.e. tónlistarflutninginn, en ekki fyrirlestur um illa ígrunduð hugðarefni söngvaskáldsins
Bloggar | 5.4.2010 (breytt kl. 08:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
![]() |
Ný sprunga hefur opnast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 31.3.2010 (breytt kl. 19:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
ÞETTA myndband er tekið af Guðmundi Óla Gunnarssyni og er vistað á vef ruv.is
Eins og gosið hefur verið fram að þessu, þá er það "ferðamannagos" af bestu tegund. Vonandi verður svo áfram.
![]() |
Vaxandi órói í eldgosinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Chile er eitt virkasta jarðskjálftasvæði jarðar. Um það má fræðast á afar fróðlegri og skemmtilegri bloggsíði Haraldar Sigurðssonar, eldfjallafræðings, sjá HÉR
Haraldur hefur verið í sviðsljósi fjölmiðla að undanförnu vegna eldgossins í Fimmvörðuhálsi. Blogg Haraldar er "Lifandi vísindi".
![]() |
Jarðskjálfti upp á 6,2 stig í Chile |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðjan á þessum jarðskorpuhreyfingum virðist vera nákvæmlega þar sem gosið kom upp í Fimmvörðuhálsi. Er það ekki augljóst annars?
![]() |
Innskotið þandi landið út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég hef verið að kíkja öðru hvoru á ÞESSA vefmyndavél af gosinu og núna kl. 17.02 sá ég þennan bólstra vinstra megin við gíginn bólgna út.
Þetta gerðist með ótrúlegum hraða og þremur mínútum síðar var þetta horfið, eins og sést á myndinni hér að neðan.
Viðbót: Eitthvað stórt virðist vera að gerast þarna því núna kl. 17.10 má sjá þessa sprengingu á þriðju myndinni.
Þessi er frá kl. 17.25. Hvað er í gangi? Eins og ég sagði hef ég verið að fylgjast með þessu reglulegu sl. sólarhring og ekkert í líkingu við þetta hefur borið fyrir augu mín fram að þessu
![]() |
Minnsta gosið en langflottast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.3.2010 (breytt kl. 17:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég varð einu sinni vitni að því þegar nokkrir hrútar voru geltir með töng, ódeyfðir.
Það var skelfileg upplifun að heyra greyin rymja af kvölum og hljóðið sem kom þegar verið var að merja í sundur taugarnar sem liggja niður í punginn, var vægast sagt hryllilegt.
Geldingartöng. "The burdizzo is a metal instrument that severs or crushes the cords and associated blood vessels leading to the testicles. This stops the blood circulation to the testicles so that they degenerate within the scrotum. This is also a bloodless method of castration. When using this method, be sure that both cords are severed or crushed. The cords are located above the testicles"
![]() |
Ekki má gelda með hrúta- eða kálfatöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.3.2010 (breytt kl. 15:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ríkisstjórnin, þjóðin, þolendur og gerendur verða nú að snúa bökum saman í að kveðja þennan "Breiðavíkurharmleik", í þeirri fullvissu að svona nokkuð gerist aldrei aftur.
Þessa mynd tók ég af Breiðavík á ferðalagi mínu um Vestfirði síðasta sumar. Takið eftir hvernig ríkjandi vindátt "litar" hlíðina á afmörkuðu svæði.
Ps. Minni á skoðanakönnun hér til hliðar.
![]() |
Staðfesting á tjóni vistmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.3.2010 (breytt kl. 16:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Hér kemur niðurstaðan úr skoðanakönnuninni sem ég hef haft á síðunni í þó nokkurn tíma. Niðurstaðan rímar við niðurstöður frá "virtum" skoðanakönnunarfyrirtækjum, en úrslit kosninganna urðu á allt annan veg. Í fersku minni er að "neiið" fékk 98% greiddra atkvæða.
Spurt var:
Bloggar | 12.3.2010 (breytt kl. 14:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 947082
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Hvers vegna galið að bólusetja gegn flensu og RSV - Halda ekki vatni!
- Lögleiðir Ísland misrétti sem Hæstiréttur USA hefur dæmt ólöglegt ...
- Viðurnefnastjórnin
- Óeirðir eða friðsöm mótmæli - hver er markalínan?
- Tíska : Hátíðarklæðnaður fyrir þá yngri
- Fleiri á móti en með
- Á þetta nokkuð við í íslenskri landhelgi?
- Þegar Evrópusambandið refsar eigin borgurum fyrir skoðanir
- Greta segir Ísraelsmenn illmenni en þiggur brauð þeirra með bros á vör
- Fyrsta íslenska lýðveldið er fallið