Færsluflokkur: Bloggar
Þessi sekt verður að sjálfsögðu borguð af viðskipavinum Símans og engum öðrum.
Helvíti góð auglýsingin hjá Alterna , nýja símafyrirtækinu. Spurning að skoða það aðeins betur
![]() |
Síminn sektaður um 50 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.4.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég má til með að birta hér "Staksteina" Morgunblaðsins í gær.
"Flugfélög í Evrópu telja sig hafa tapað háum fjárhæðum vegna ösku frá Eyjafjallajökli. Nefndir hafa verið 300 til 400 milljarðar króna.
Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að hafa auga með þeim Jóhönnu og Steingrími J.
Viðbúið er að fram verði settar kröfur um að Íslendingar, sem beri ábyrgð á Eyjafjallajökli, greiði þennan kostnað.
Steingrímur og Jóhanna munu samviskusamlega taka fram að Íslendingar beri að sjálfsögðu enga ábyrgð á þessari framgöngu eldfjallsins og enn síður þeim vindum sem feyktu öskunni til Evrópu.
Í framhaldinu munu þau þó undirstrika að Íslendingar muni að sjálfsögðu standa við sínar skuldbindingar. Spurningin hljóti því að snúast um greiðslutíma og vaxtakjör.
Því næst munu þau snúa sér til Alþingis og þjóðarinnar og segja að ákvörðun um ríkisábyrgð á þessum skuldbindingum þoli enga bið, því það skaði samstarfið við AGS og setji í hættu endurreisnina, sem þau hafi unnið svo vel að og séu svo ofboðslega þreytt eftir.
Rithöfundar Baugs og Samfylkingarinnar munu fara mikinn í kjölfarið.
Þetta er fúlasta alvara."
Mér finnst þessi pistill algjör snilld
![]() |
Akureyrarflugvelli líka lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.4.2010 (breytt kl. 03:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það er ljóst að margar fjölskyldur undir Eyjafjöllum og e.t.v. víðar, sjá fram á algjöran afkomubrest á þessu ári og sennilega á því næsta líka, auk þess sem verulegur kostnaður mun fylgja því að koma atvinnustarfsemi í eðlilegt horf að nýju
Samfélagið á ekki að horfa upp á slíkt aðgerðalaust.
Þegar náttúruhamfarirnar á Súðavík áttu sér stað, þá upphófust miklar safnanir, m.a. á öldum ljósvakans og umtalsverðir fjármunir söfnuðust. Tilfinningaþrungið ástand skapaðist í þjóðfélaginu á þessum tíma.
Mikillar óánægju gætti hjá flestum íbúum Súðavíkur sem misstu heimili sín í flóðinu, með afgreiðslu úr sjóðnum sem myndaðist við söfnunina. Hrein illindi urðu í málinu, sem rataði í fjölmiðla og ásakanir gengu.
Ég held að það sé best að sérstakur "Viðlagasjóður", líkt og í Vestmannaeyjagosinu 1973, sjái um málið og að hann sé alfarið fjármagnaður af ríkissjóði.
Það er sárt að sjá fjármunum fólks, sem af vanmætti sínum gefur af því litla sem það hefur, sóað í og af yfirstjórnum söfnunarsjóða, yfirstjórnum sem skipaðar eru misvitrum mönnum.
![]() |
Verstu morgnar sem ég hef lifað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.4.2010 (breytt kl. 12:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Magnús Ragnarsson lögreglumaður á Hvolsvelli, hlýtur að vera hugaður maður. Skyggnið er einn metri. Ástandið er mjög slæmt, segir hann.
100 hestar myndu ekki draga mig þarna inn ... að drepast úr óbeinum reykingum vegna Eyjafjallajökuls
Ef yfirlögregluþjónn skipar lögregluþjóni að aka inn í mökkinn til þess að kanna aðstæður og lögregluþjónninn neitar að fara..... hvað gerist þá?
![]() |
Skyggnið er einn metri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.4.2010 (breytt kl. 09:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég sá á þessari bloggsíðu: http://stjornuskodun.blog.is/blog/stjornuskodun/ þessa mögnuðu mynd frá NASA.
Hugsið ykkur, landið sem sést þarna er sennilega um 1/5 af stærð Danmerkur.
Hægt er að stækka myndina með því að smella þrisvar á hana
![]() |
Fólk flýr öskufallið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.4.2010 (breytt kl. 15:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
What has Iceland done for Britain?
Þetta er fyrirsögn í Telegraph.co.uk, sjá HÉR
Þarna er á kaldhæðinn hátt farið yfir í 10 liðum, hvað Ísland hefur gert fyrir Bretland.
- Þorskastríð
- Björk
- Icesave
- Hamleys, It is an Icelandic-owned tourist trap. Baugur owns 75 pc of the business.
- No word for please
- Icelanders don't want us to look chic. They want us to look like shapeless Icelandic grannies in their "lopapeysa" wooly jumpers
- They killed our 2010 European Championship Handball hopes
- Lazy town, Through LazyTown, one Icelandic man inflicted on Britain one of the most annoying children's TV programme of the decade
- They almost broke West Ham
- Iceland the supermarket Not technically Icelandic, but their adverts helped re-launch the career of Kerry Katona.
Gott hjá Svíunum
![]() |
Umferðaröngþveiti á Hvolsvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.4.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er ógnvænlegt að sjá kolsvartan mökkinn nálgast byggðina undir Eyjafjöllum. Manni verður hugsað til skepnanna
Myndin af kirkjunni í Vestmannaeyjum frá gosinu ´73 kemur upp í hugann
Magnaðar myndir, teknar hér af Mbl.is
![]() |
Askan gleypti bæina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.4.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég sá þessa mynd á bloggi Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings. Svo setti einhver hana inn á facebook og eitthvað hefur verið átt við litina í mynvinnsluforriti.
Glæsilegt engu að síður
![]() |
Vont fyrir heilsuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.4.2010 (breytt kl. 18:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á facebook-síðu Helga Seljan, segir hann:
"Les skýrslu rannsóknarnefndar. Ekkert í þessu".
Ég held að það sem muni koma mest á óvart í skýrslunni, verði hversu lítið kemur á óvart í henni
![]() |
Skýrslan slær glæpasögunum út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 11.4.2010 (breytt kl. 15:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Nú er banni við fréttatengdu bloggi um þennan hörmulega atburð lokið.
Nú geta spekúlasjónir bloggara blómstrað. Forvitnin kviknar um fólkið; 33 ára kona, 43 ára kona og 55 ára karlmaður,.... tilkynna sig í neyð skömmu eftir miðnætti en afboða svo neyðina í birtingu með morgni.
Hver verður saga yngsta einstaklingsins, hinnar 33 ára gömlu konu?
![]() |
Rannsókn að hefjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.4.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 947081
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Tíska : Hátíðarklæðnaður fyrir þá yngri
- Fleiri á móti en með
- Á þetta nokkuð við í íslenskri landhelgi?
- Þegar Evrópusambandið refsar eigin borgurum fyrir skoðanir
- Greta segir Ísraelsmenn illmenni en þiggur brauð þeirra með bros á vör
- Fyrsta íslenska lýðveldið er fallið
- Útlendingamál í brennidepli
- Hlutfall landsmanna á endurhæfingarlífeyri tvöfaldast
- KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....
- Ísraelsher kemur Gretu Tumberg og öðrum aðgeðarsinnuum til hjálpar