Færsluflokkur: Bloggar
Brött aðkoma fílahirðisins inn í rými hins unga fíls, gerir það að verkum að honum dauðbregður. Það sést greinilega á myndbandinu við þessa frétt. Fíllinn breiðir út eyrun um leið og fílahirðirinn birtist, en það eru ósjálfráð varnarviðbrögð, líkt og hjá ketti sem gerir sig stóran með kryppu og útstandandi hárum á baki og makka.
Árás fílsins er hræðsluviðbragð.
Góður íslenskur bóndi kemur að skepnum sínum með nærgætnari hætti
![]() |
Fíll ræðst á mann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.7.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Rannsaka áhrif gossins á hafið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 21.7.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mörg góð fræðslumyndbönd um umferðarmál má finna á youtube, m.a. þetta um "forgangsakstur"
En svo finnst mér þessi auglýsing algjör snilld:
![]() |
Forgangsakstur æfður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.5.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þessi leikkona starfaði með Polanski þremur árum eftir að meint nauðgun átti sér stað. Mér finnst frásögn hennar ótrúðverðug og benda frekar til þess að hún sé að auglýsa sig í dag. Hún hefur leikið í mörgum bíómyndum og flestar ef ekki allar tilheyra svokölluðum B-myndum, eða ódýrum og lítt vönduðum stykkjum.
Charlotte seldi Playboy tímaritinu aðgang að líkama sínum árið 1993. Hún hefur verið óspar á að sýna sig og árið 1990 varð hún í 9. sæti í einhverri kosningu um flottasta líkamann.
![]() |
Nýjar ásakanir á hendur Polanski |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.5.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Á vefmyndavél Mílu frá Hvolsvelli nú kl. rúmlega eitt eftir miðnætti, má sjá all svakalegar sprengingar í gígnum og á hitamyndavélinni frá Þórólfsfelli má sjá að hraun er farið að renna á ný.
Ég hef ekki séð svona miklar eldglæringar áður í gígnum. Er eitthvað svakalegt að gerast þarna núna?
Hitamyndin sýnir hraunstrauminn og hann eykst hratt
Bloggar | 10.5.2010 (breytt kl. 01:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mér leiðist að fá skilaboð í tíma og ótíma á blogginu og í e-mailinu, frá einhverjum bloggvini að nú hafi hann bloggað.
Ég var að eyða þessum "vinum" af blogglistanum hjá mér.
Bloggar | 9.5.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Surtsey er margra miljarða virði vegna þess að landhelgin stækkaði um nokkur þúsund ferkílómetra þegar hún varð til. Það væri fínt að fá nýja eyju suður Eldey. Eins mætti koma önnur eyja norður af Kolbeinsey. Þá erum við í góðum málum.
Ætli lánshæfismat íslenska ríkisins myndi ekki hækka við þetta?
![]() |
Áfram virkni á Reykjaneshrygg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.5.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
"Álpappírinn" er innanhúsfréttabréf Fjarðaáls á Reyðarfirði og þar má finna margan fróðleiksmolann.
Hætta vegna öskufalls var ekki tekin með í reikningin við hönnun álversins á Reyðarfirði og því þurfti sérfræðingateymi að bregðast hratt við þegar eldgosið í Eyjafjallajökli hófst. Neyðaráætlun var sett í gang því öskufall hefði getað stöðvað starfsemi álversins. Áhættugreining leiddi í ljós að mesta hættan steðjaði að vatnshreinsivirki, loftpressum og rafveitu.
Mikil hætta var talin á að aska kæmist í kæliturna vatnshreinsivirkis. Stefna Alcoa Fjarðaáls er að losa ekkert vatn úr framleiðsluferlum í sjó. Þess vegna er allt kælivatn í steypuskálanum kælt, hreinsað og endurnýtt. Sérfræðingateymið sýndi mikið hugvit og fann á skömmum tíma snjallar lausnir. Meðal annars var náð í 270 metra langa sjólögn og sjódælu sem notuð var í hlýraeldi í Norðfirði, til að ná ferskum sjó í kælivirkin.
Á Stjörnufræðivefnum eru magnaðar myndir af eldgosinu, m.a. myndin í þessum pistli.
![]() |
Drunur norður í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.5.2010 (breytt kl. 21:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25. apríl sl. fór ég suðurleiðina frá Reykjavík austur á Reyðarfjörð. Það var ófögur sjón sem við blasti í fallegustu sveit landsins.
Ég náði mér í sýnishorn af öskunni sem þá var kolsvört í rigningunni. Þegar hún þornaði, varð hún "öskugrá"... hvað annað?
Þegar ég hristi glerkrukkuna, þá sást varla inn í hana fyrir rykinu sem er svo fíngert að það líkist helst gufu. Nokkrar mínútur liðu áður en skyggnið í krukkunni varð sæmilegt aftur.
![]() |
Aska seld til útlanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.5.2010 (breytt kl. 17:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef gaman af því að lesa blogg við fréttir. Þegar ég sé að einhver bloggar við frétt, þá smelli ég gjarnan á 1 blogg um fréttina » til að athuga hver bloggar og ef viðkomandi vekur áhuga minn, eða fyrirsögnin, þá kíki ég á bloggið og geri stundum athugasemdir.
Segðu ... umræðublogg! bloggar við hverja einustu frétt á Mbl.is., en bloggar þó ekki neitt. Ég er orðinn leiður á að smella á "blogg um fréttina" til þess eins að uppgötva að ekkert er verið að blogga um fréttina.
Ég skrifaði athugasemd hjá "Segðu... umræðublogg" og bað hann að hætta þessu
![]() |
Dæmdir fyrir morð á nunnu |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Bloggar | 1.5.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 947078
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Á þetta nokkuð við í íslenskri landhelgi?
- Þegar Evrópusambandið refsar eigin borgurum fyrir skoðanir
- Greta segir Ísraelsmenn illmenni en þiggur brauð þeirra með bros á vör
- Fyrsta íslenska lýðveldið er fallið
- Útlendingamál í brennidepli
- Hlutfall landsmanna á endurhæfingarlífeyri tvöfaldast
- KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....
- Ísraelsher kemur Gretu Tumberg og öðrum aðgeðarsinnuum til hjálpar
- Hjúkrunarfræðingarnir höfðu sigur
- Vinslit ekki af ástæðulausu