Ég myndi ekki þora inn í þetta

Magnús Ragnarsson lögreglumaður á Hvolsvelli, hlýtur að vera hugaður maður. „Skyggnið er einn metri. Ástandið er mjög slæmt,“  segir hann.

mökkur

100 hestar myndu ekki draga mig þarna inn Undecided ... að drepast úr óbeinum reykingum vegna Eyjafjallajökuls Errm

Ef yfirlögregluþjónn skipar lögregluþjóni að aka inn í mökkinn til þess að kanna aðstæður og lögregluþjónninn neitar að fara..... hvað gerist þá?


mbl.is „Skyggnið er einn metri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Við fordæmalausar aðstæður hljóta að koma upp fordæmalaus viðbrögð og aldrei einboðið að þau séu skynsamleg.

Árni Gunnarsson, 19.4.2010 kl. 10:16

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er rétt, Árni

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.4.2010 kl. 10:22

3 identicon

Magnús er skólaður úr svissneska hernum, og alinn upp við sveitastörf í Landeyjum. Segi hann skyggnið vera 1 metra, þá er það svo ;)

Aðrir hér hjá lögreglunni sem ég þekki, eru hinir mætustu menn, og hafa haldið stóískri ró í viðureign sinni við þau vandamál sem komið hafa upp í þessum hamförum.Allir hugaðir menn.

Nú er mökkurinn sem slíkur ekki svo ban-eitraður. Og það er ekkert nýtt að fá ösku yfir sig hér um slóðir, þar sem gosefni eru veruleg að magni allt um kring, og oft kemur það fyrir í  þurrki og vindum að allt verður svart af ryki.

Ekki er svo langt síðan að ófært gat orðið milli Hvolsvallar og Hellu vegna sand/ösku-storma, en landgræðslan hefur náð þar um slóðir verulegum árangri, þannig að slíkt heyrir að mestu sögunni til. 

En þessi mökkur fer bara þangað sem hann fer, hann færir sig eftir vindum,og enginn er óhultur fyrir honum. Áhrif gjóskunnar eiga hins vegar eftir að gera lífið grátt í sambandi við eitrunar/mengunaráhrif á bæði beit/fóður og vatnsmál. Þetta súra seyði verða íslenskir bændur að súpa þetta sumarið.

Jón Logi (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 11:17

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, en vonandi ekki mörg sumur

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.4.2010 kl. 12:05

5 Smámynd: Einar Steinsson

Líklega er það ekki mikil huggun fyrir íbúa undir Eyjafjöllum en kannski er norðanáttinn besta áttin fyrir landið í heild vegna þess hve stutt er til sjávar og tiltölulega mikið af öskunni lendir í sjó.

Einar Steinsson, 19.4.2010 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband