Færsluflokkur: Bloggar

Hólmar í Reyðarfirði - myndir

"Frá kristnitöku hefur verið kirkjustaður á Hólmum við Reyðarfjörð, eða allt fram á byrjun síðustu aldar. Hólmar var mikil kostajörð. Gott jarðnæði, hlunnindi og lá vel við góðum fiskimiðum. Þótti hún á öldum áður vera á meðal fjögurra bestu brauða á landinu. Kirkjustaður var nokkurn veginn miðsvæðis miðað við samgöngur í þá daga, enda bæði um að ræða land og sjóleið eftir því sem best hentaði."  (http://www.simnet.is/eskirkja/kirkjusaga.htm )

Síðustu ábúendur að Hólmum voru Jón Vigfússon, sem lést á þessu ári og kona hans Svanhildur Stefánsdóttir. Þau fluttu frá Hólmum inn á Reyðarfjörð, um það leyti sem bygging álversins hófst.

Nú stendur til að brenna íbúðar og útihúsin og birtist frétt þar að lútandi á vef Fjarðabyggðar.
Slökkviliðið mun nota brunann til æfinga en síðan verða húsin brennd niður að undanskilinni bílageymslu sem mun standa áfram.

Brunanum var frestað um viku vegna þess að slökkviliðið gleymdi að fjarlægja aspet sem í húsinu er. Þeir misstu af frábærum veðurdegi í dag til æfingarinnar.

Smellið á myndirnar tvisvar til að fá þær stærri og skýrari.

016

021

Gamli kirkjugarðurinn er neðan við bæinn. Ryðið herjar á málminn og skófir, mosi og fléttur á steininn. Sum leiðin sem ég sá þarna eru yfir 150 ára gömul. Sjálfsagt er einhver eldri, en erfitt er að lesa á suma legsteinana.

041

Feiknarleg aurskriða féll ofan við bæinn á fyrri hluta 20. aldar og eyðilagði ágæt tún.

017

Álverið er skammt frá hinni fornu kirkjujörð að Hólmum.

036

Þessa tók ég innan úr gamla íbúðarhúsinu. Ég er að hugsa um að prenta hana út á striga og hengja hana upp til prýði á heimili mínu.
 


Eva Hauksdóttir, "Add to favorites"

evaprofileÉg hef oft átt orðastað við Evu Hauksdóttir á blogginu og víðar í netheimum. Sjaldan er ég sammála henni í pólitík, en á mörgum öðrum sviðum mannlífsins er ég henni oft hjartanlega sammála.

Eva heldur úti bloggsíðu á eigin vefsvæði: http://www.norn.is/sapuopera/ 

Þegar stóra systir fær frekjukast heitir einn pistill Evu. Hrein snilld!

"Þær trúa því í alvöru að vændiskúnnar séu illa innrætt skrímsli með manngervingsviðhengi fast við óseðjandi tittlinginn..."

Bloggsíða Evu er kominn í bókarmerkið hjá mér. Wizard


Ömurlegar nornaveiðar

Sjálfsagt er það skynsamlegast fyrir Pál Magnússon að koma sér úr þeirri ormagryfju sem hann var kominn í. Errm

En stjórnarliðar, aðallega þeir öftustu í goggunarröðinni innan flokka sinna, fóru mikinn í gífuryrðum um ráðningu Páls... og svo fylgdu einhverjir taglhnýtingar þeirra á blogginu, m.a. Illugi Jökulsson, á eftir og góluðu í vandlætingartón.

Ömurlegt


mbl.is Páll tekur ekki starfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er myndbandið

Þetta er auðvitað strax komið á youtube. Viðkvæmir eru varaðir við.

Það á auðvitað að sækja þetta fólk til saka sem sinnti ekki barninu. Angry


mbl.is Hundsuðu barn sem varð fyrir bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sölumennska

1a5f3b3b93d7Það hafa verið skrifaðar ótal bækur um síðustu daga Hitlers í neðanjarðarbyrginu í Berlín. Einnig hafa verið gerðir sjónvarpsþættir um þessa daga, m.a. hinir rómuði þættir BBC "The World at war" (1973)

Ekkert bendir til að Hitler hafi ekki framið sjálfsmorð í byrginu, um það vitna frásagnir allra sem þar voru.

Þessir blaðamenn eru með ágætan söluvarning og það verður sjálfsagt gaman að lesa þessa "skáldsögu".


mbl.is Hitler sagður hafa látist í Argentínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10% lækkun á mörkuðum skilar sér ekki hér

1-7492078-3565-t1-2459212-9926-tFyrir nokkrum dögum sá ég frétt á mbl.is að olíverð á heimsmarkaði hefði lækkað um 10%, bara í september. Samkvæmt því ætti verðlækkunin að vera u.þ.b. 23 krónur á lítra.

Ég hef ekki séð þá lækkun hér. Woundering


mbl.is Lækkar bensín um 3,40 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG-liðar að trufla ofbeldið

Þetta var klókt hjá þeim!

Með þessu útspili verður auðveldara að dreifa athygli ofbeldislýðsins. Það síðasta sem vinstristjórnin vill, er að smakka á eigin meðulum.


mbl.is Boða samstöðutónleika á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Zorró geltur

005

Zorró er rúmlega 6 mánaða gamall síamsköttur sem við fjölskyldan eignuðumst í vor. Foreldrar hans eru hreinræktaðir að sjá, en eru þó báðir blandaðir og það kemur vel í ljós hjá Zorró en karakterinn er þó "ekta" síams.

010

Við létum Eyrúnu, dýralækni á Egilsstöðum, gelda hann fyrir okkur um daginn. Hér er Eyrún að setja í augun á Zorró eftir svæfinguna svo þau þorni ekki.

014

Það þarf að raka punginn.

021

Svo er skorið.... Blush

025

... togað vel í... svo allt náist

028

Þarna er annað eistað komið á bakka. Ætli sé gott að súrsa það? Sick

Zorró heilsast vel í dag. Wizard


Ágúst Ármann, látinn

"Ágúst Ármann Þorláksson, tónlistarmaður og fyrrverandi skólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Neskaupstað mánudaginn 19. september, 61 árs að aldri. Hann hefur í áratugi verið einn af lykilmönnunum í austfirsku tónlistarlífi í áratugi." ( Austurglugginn )

b_800_600_14277081_0_stories_news_folk_agust_armannÉg kynntist Ágústi Ármann í kórstarfi mínu hér í Fjarðabyggð. Öllum sem til hans þekktu var það mikið áfall að heyra af andláti hans.

Ágúst var hafsjór af fróðleik um ólíkustu hluti og sögumaður var hann góður og oft glumdu hlátrasköll við á æfingum. Hans verður sárt saknað úr tónlistarlífinu á Austurlandi.

Ég votta fjölskyldu Ágústs Ármanns mína innilegustu samúð.


Taflmenn i Hollandi

I gamla midbaenum in Groningen, Binnenstad, er annar tveggja alvoru skakpobba Hollands, Cafe Atlantis . Hinn ku vera i Amsterdam. Audvitad er telft vida a pobbum Hollands eins og annarsstadar i veroldinni, en a thessum tveimur pobbum maeta alltaf tiltolulega sterkir skakmenn og oft stormeistarar.

128

Thegar eg datt inn a thennan pobb i byrjun juli, tha var mot i gangi a hverju midvikudagskvoldi og mot numer 2 af 4 var nybuid. Eg akvad ad taka thatt i naesta moti, tho eg hefdi ekki teflt skak i 4-5 ar og ekkert ad radi i 7-8 ar.

108

Pobbinn er agnarsmar og med herkjum haegt ad koma fyrir 7 bordum.

112

110

Reyndar var sjounda bordid a barbordinu. Sa sem lenti a moti barthjoninum Casper, sem er rumlega 1800 ELO stiga madur, vard ad gera ser ad godu ad tefla tharna. Joyful

107

Lett var yfir mannskapnum og ekki verid ad setja fyrir sig ovenjulegar adstaedur.

103

Thid hafid heyrt talad um "Soccer Mom"? ....well... thetta er "Chess Mom". Hun a 4 straka a aldrinum 6-12 ara og their hafa allir mikinn ahuga a skak sem gledur modurina mikid.

102

Marcel, lengst til vinstri. Skemmtilegur naungi og agaetur skakmadur, med taep 2000 ELO. Vid, asamt Casper, barthjoninum nadum vel saman og i eitt skiptid thegar eg kikti til theirra, tha lokadi pobbinn kl. 1 en Casper laesti okkur inni og vid tokum nokkrar brondottar og bjorinn var i bodi hussins.

121

Kvedja til islenskra skakmanna, um leid og their eru kvattir til ad kikja vid ef their eiga leid um. Marcel lengst til vinstri og Casper vid hlid hans. Vid hlid Caspers er Thjodverji sem kom serstaklega yfir landamaerin til ad tefla a pobbnum.

Eg tefldi a adeins einu moti af fjorum og thad dugdi mer til 28. saetis af 36. Fjorar umferdir voru tefldar a hverju midvikud.kvoldi og umhugsunartiminn var 20 minutur a skak. Eg nadi ad vinna eina skak og er bara sattur med thad, thvi eg tefldi vid tvo 2000 stiga menn en tapadi eftir hetjulega barattu og mikla spennu, serstaklega i annari skakinni.


mbl.is Taflmaður frá 12. öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband