Hólmar í Reyðarfirði - myndir

"Frá kristnitöku hefur verið kirkjustaður á Hólmum við Reyðarfjörð, eða allt fram á byrjun síðustu aldar. Hólmar var mikil kostajörð. Gott jarðnæði, hlunnindi og lá vel við góðum fiskimiðum. Þótti hún á öldum áður vera á meðal fjögurra bestu brauða á landinu. Kirkjustaður var nokkurn veginn miðsvæðis miðað við samgöngur í þá daga, enda bæði um að ræða land og sjóleið eftir því sem best hentaði."  (http://www.simnet.is/eskirkja/kirkjusaga.htm )

Síðustu ábúendur að Hólmum voru Jón Vigfússon, sem lést á þessu ári og kona hans Svanhildur Stefánsdóttir. Þau fluttu frá Hólmum inn á Reyðarfjörð, um það leyti sem bygging álversins hófst.

Nú stendur til að brenna íbúðar og útihúsin og birtist frétt þar að lútandi á vef Fjarðabyggðar.
Slökkviliðið mun nota brunann til æfinga en síðan verða húsin brennd niður að undanskilinni bílageymslu sem mun standa áfram.

Brunanum var frestað um viku vegna þess að slökkviliðið gleymdi að fjarlægja aspet sem í húsinu er. Þeir misstu af frábærum veðurdegi í dag til æfingarinnar.

Smellið á myndirnar tvisvar til að fá þær stærri og skýrari.

016

021

Gamli kirkjugarðurinn er neðan við bæinn. Ryðið herjar á málminn og skófir, mosi og fléttur á steininn. Sum leiðin sem ég sá þarna eru yfir 150 ára gömul. Sjálfsagt er einhver eldri, en erfitt er að lesa á suma legsteinana.

041

Feiknarleg aurskriða féll ofan við bæinn á fyrri hluta 20. aldar og eyðilagði ágæt tún.

017

Álverið er skammt frá hinni fornu kirkjujörð að Hólmum.

036

Þessa tók ég innan úr gamla íbúðarhúsinu. Ég er að hugsa um að prenta hana út á striga og hengja hana upp til prýði á heimili mínu.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband