Ömurlegar nornaveiðar

Sjálfsagt er það skynsamlegast fyrir Pál Magnússon að koma sér úr þeirri ormagryfju sem hann var kominn í. Errm

En stjórnarliðar, aðallega þeir öftustu í goggunarröðinni innan flokka sinna, fóru mikinn í gífuryrðum um ráðningu Páls... og svo fylgdu einhverjir taglhnýtingar þeirra á blogginu, m.a. Illugi Jökulsson, á eftir og góluðu í vandlætingartón.

Ömurlegt


mbl.is Páll tekur ekki starfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Hefðir þú ráðið Pál ?

Níels A. Ársælsson., 25.10.2011 kl. 16:36

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Vantar ekki einhvers staðar djákna ?

hilmar jónsson, 25.10.2011 kl. 16:42

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú á Myrká, sá síðasti drukknaði.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 16:46

4 identicon

Ég sé einfaldlega ekkert ömurlegt við þetta, þú bara fyrirgefur Gunnar. Maður með þessa fortíð byggir ekki upp traust innan veggja Bankasýslunnar, það er eitt sem víst er. Hann væri hins vegar eflaust fínn á Biskupstofu.

Þórður (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 16:50

5 identicon

Þjóðin sagði Páli upp.

Guðfræðingurinn sem tók þátt í einkavinavæðingunni síðustu með eftirminnilegum afleiðingum getur nú snúið sér að einhverju allt öðru en við skattgreiðendur kostum.

En fyrst hann er svona rosalega hæfur skv. öllum siðblindum Framsóknarmönnum hlýtur hann að fá starf við hæfi med de samme á hinum frálsa markaði. Því ætti hann ekki að örvænta.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 16:57

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það þarf nú að rannsaka þá sem létu sér detta í hug að ráða þennan Pál í starfið, þegar horft er til fyrri starfa og stöðu hans. Það hefur ekkert með þennan Pál að gera, eða hvernig persónahann er, eða með hvaða menntun hann er, heldur siðblindu þeirra sem tóku ákvörðun um að ráða hann, hverjir sem það nú eru bak við tjöldin í bankaleikhúsinu.

Almenningur verður hreinlega að taka í sínar hendur leikhúsgagnrýni á þessu brjálaða bankaræningja-leikriti á Íslandi.

Svona vitleysa gengur einfaldlega ekki lengur, og eðlilegt að svona vinnubrögð standi illilega í almenningi, sem hefur verið rændur og svikinn af bönkunum.

Hann hafði þó sjálfur vit á að segja sig frá þessari vitleysu, hann Páll Magnússon og fyrir það fær hann hrós.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.10.2011 kl. 17:04

7 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Frá fyrstu stundu mátti þessu fólki, stjórn bankasýslunnar,  vera ljóst að Páll þessi hafði ekki hæfi til að gegna stöðunni, hvað sem um hæfni til þess mátti segja.  Margt bendir til að það sé málum blandið matið á hans umframverðleikum . Því miður eru það ekki alttaf í raun bestu starfskraftarnir sem koma best út í viðtölum. En á þeim vettvangi skilst manni að úrslitin hafi ráðist.

Hættiði svo að kóa með bankasýslustjórninni og Páli. Þetta var einfaldlega röng ákvörðun , og blessunarlega hefur tekist að gera menn afturreka með þetta rugl.

Kristján H Theódórsson, 25.10.2011 kl. 17:33

8 identicon

Fyrrverandi forstjóri bankasýslunnar var ekki betri, samþykkti launahækkanir og bónusa fjármálafyrirtækjanna hægri og vinstri.

Mikið er ég glaður að þessi maður, sú fyrri og þessi stjórn séu að víkja.  Hver veit ef eitthvað betra og meir í takt við tímana komi ekki í staðinn - all vega erfitt að ímynda sér verri staðgengla.

Jonsi (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 17:42

9 identicon

Nennir einhver að útskýra fyrir mér hversvegna störf hjá því opinbera eru svona eftirsótt í dag. Mér hefur verið sagt að yfirleitt væru störf hjá ríki og sveitarfélögum ílla borguð, vinnan oft leiðinleg og lítt krefjandi. Nú virðist sama hvað í boði sé, allt verður vitlaust, allir vilja komast á spenann. Eða er einkageirinn í síðustu andarteygunum, eða þá svo ílla rekinn af vanhæfu fólki, að menn forðist hann eins og kölski vígt vatn?

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 25.10.2011 kl. 18:12

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Níels, ég hef engar forsendur til að svara fyrir mig, persónulega. Ég tel hins vegar útskýringar stjórnarinnar trúverðugar og þeir höfðu valdið.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.10.2011 kl. 18:59

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þórður, fortíð?? Veist þú eitthvað um hans fortíð, annað en að hann var í vinnu hjá ráðuneyti?

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.10.2011 kl. 19:00

12 identicon

á síðasta ári var Runólfur Ágústsson ráðinn umboðsmaður skuldara. Hann varð síðan að segja af sér vegna vafasamar fortíðar í fjármálum. Hann hafði:

1. Rétta mentun.

2. Mikla og góða starfsreynslu.

3. En skorti trúverðuleika til að gegna starfinu.

Páll hefur:

1. Enga mentun í fjármálun eða á sviði bankamála.

2. Litla starfsreynslu, nema í störfum á vegum Framsóknarflokksins.

3. Nákvæmlega engan trúverðuleika til að gegna þessu starfi.

Jonas kr (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 11:26

13 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

  • Forstjóri bankasýslunnar þarf ekki reynslu af bankastörfum
  • Páll hefur réttu menntunina, hann er eini umsækjandinn með mastersgráðu og hún er í stjórnsýslufræðum (akkúrat rétta menntunin)
  • Hann skortir trúverðugleika hælbítanna í vinstriflokkunum sem hafa blásið meintan ótrúverðugleika út í fjölmiðlum og á Alþingi (Helgi Hjörvar)
  • Ágæta starfsreynslu og er EKKI stjórnmálamaður.

Það eina sem hann hefur "unnið sér til saka" er að hann hefur KOSIÐ Framsóknarflokkinn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.10.2011 kl. 14:33

14 identicon

Stjórnarmenn og forstjóri skulu hafa haldgóða menntun auk sérþekkingar á banka- og fjármálum.

sjá: http://www.althingi.is/altext/stjt/2009.088.html

Páll Magnússon

Vþm. Reykn. nóv. 1999, okt. 2000, maí 2001, okt.-nóv 2002, febr. 2003, Suðvest. des. 2003, mars-apríl 2004 og apríl-maí 2004 (Framfsl.). sjá: http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=1073

Hef ekki lítið álit á Páli, en vill ekki sjá hann í þessu starfi.

Jonas kr (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 15:19

15 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

ok, vissi ekki að hann hafði verið varaþingmaður.

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.10.2011 kl. 16:23

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mig rekur nú líka minni til að þeir bræður ætluðu að taka yfir kvenfélag Framsóknarkvenna í Kópavogi, eða eitthvað slíkt, minnir allavega óljóst að það hafi verið eitthvað haverí milli kvennanna og þeirra bræðra, vonandi man einhver betur en ég um þetta mál.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.10.2011 kl. 16:29

17 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Hvað með álit Capacent Gallup sem taldi Pál hæfastan í starfið.. ?? Er það kanski algerlega marklaust líka.. ?

Hvernig er trúverðugleiki metin?? og af hverjum ?? sennilega af vinnuveitanda viðkomandi, ekki dómstóli götunar sem nota bene vinnur án sannana og rökfærslu, og stjórnast einungis af tilfinningum og rógi.

Eiður Ragnarsson, 27.10.2011 kl. 10:54

18 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Góður punktur, Eiður

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.10.2011 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband