ÞETTA myndband er tekið af Guðmundi Óla Gunnarssyni og er vistað á vef ruv.is
Eins og gosið hefur verið fram að þessu, þá er það "ferðamannagos" af bestu tegund. Vonandi verður svo áfram.
![]() |
Vaxandi órói í eldgosinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Chile er eitt virkasta jarðskjálftasvæði jarðar. Um það má fræðast á afar fróðlegri og skemmtilegri bloggsíði Haraldar Sigurðssonar, eldfjallafræðings, sjá HÉR
Haraldur hefur verið í sviðsljósi fjölmiðla að undanförnu vegna eldgossins í Fimmvörðuhálsi. Blogg Haraldar er "Lifandi vísindi".
![]() |
Jarðskjálfti upp á 6,2 stig í Chile |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðjan á þessum jarðskorpuhreyfingum virðist vera nákvæmlega þar sem gosið kom upp í Fimmvörðuhálsi. Er það ekki augljóst annars?
![]() |
Innskotið þandi landið út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)



![]() |
33 sækja um fjölmiðlafulltrúastarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 26.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef verið að kíkja öðru hvoru á ÞESSA vefmyndavél af gosinu og núna kl. 17.02 sá ég þennan bólstra vinstra megin við gíginn bólgna út.
Þetta gerðist með ótrúlegum hraða og þremur mínútum síðar var þetta horfið, eins og sést á myndinni hér að neðan.
Viðbót: Eitthvað stórt virðist vera að gerast þarna því núna kl. 17.10 má sjá þessa sprengingu á þriðju myndinni.
Þessi er frá kl. 17.25. Hvað er í gangi? Eins og ég sagði hef ég verið að fylgjast með þessu reglulegu sl. sólarhring og ekkert í líkingu við þetta hefur borið fyrir augu mín fram að þessu
![]() |
Minnsta gosið en langflottast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.3.2010 (breytt kl. 17:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Alveg er þetta dæmigert hjá Samfylkingarfólki að rjúka upp og sýna heilaga réttlætiskennd sína varðandi mál af þessu tagi, án þess að kynna sér allar hliðar fyrst.
Við skulum ekki gleyma því að Árni Páll Árnason var "Mr. Nobody", þegar hann notfærði sér fjölmiðlafárið um símahleranirnar í aðdraganda prófkjörs Samfylkingarinnar árið 2003 og gerði sjálfan sig að aðalpersónu þeirrar umræðu.
Þá notaði hann ónafngreinda menn sem "gáfu sig á tal við hann úti á götu og aðvöruðu hann". Fjölmiðlar bitu á agnið og hann fékk forsíðuviðtöl í blöðum og drottningarviðtöl í ljósvakamiðlunum. Snilldarbragð hjá honum, það má hann eiga.
"Tækifærismennska" er orðið sem manni dettur í hug, ef maður vill vera kurteis.
![]() |
Ásgerður: Jafnvel mistök hjá mér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | 25.3.2010 (breytt kl. 14:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Leikurinn í nótt er klárlega besti leikur íslenska landsliðsins í háa herrans tíð að mínu mati. Strákarnir héldu boltanum mjög vel, sem alls ekki er auðvelt á móti svona tæknilega góðum leikmönnum eins og eru í mexíkóska liðinu.
Allir Íslendingarnir stóðu sig með prýði, en ég vil þó sérstaklega nefna vinstri bakvörðinn Arnór Svein Aðalsteinsson, framherjann Kolbein Sigþórsson og kantmennina Jóhann Berg og Steinþór Frey. Sömuleiðis var gamla brýnið Bjarni Guðjónsson góður á miðjunni og Gunnleifur var öruggur í markinu, en fékk reyndar ekki mikið að gera framan af, sem sýnir hvað liðið úti á vellinum stóð sig vel.
Ég held að það sé kominn tími til að gefa helstu stjörnum okkar í atvinnumennskunni, frí frá landsliðinu og leyfa þessum ungu mönnum að taka við kyndlinum. Þó er ein ný stjarna sem ég vil sjá í þessu liði, en það er Gylfi Þór Sigurðsson hjá Reading.
"Bank of America" leikvöllurinn er glæsilegur að sjá.
![]() |
Besti árangur landsliðsins í áratug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 25.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Oft hefur mér fundist orðaval lögfræðinga hálf hlægilegt
"...getur héraðsdómari úrskurðað að fullnægt verði með aðfarargerð rétti manns sem honum er aftrað að neyta og sem hann telur sig eiga og vera svo ljósan, að sönnur verði færðar fyrir þeim með gögnum,".
Það er nebbblega það
![]() |
Fallist á útburðarbeiðni bankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 23.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Dægurmál | 23.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er ekki einhver maðkur í mysunni hér, að mati þeirra sem agnúast út í álframleiðslu?
Þeir færa þjóðinni "nýjar" (40-50 ára gamlar) fréttir af krabbameini í starfsmönnum Alcoa í Ástralíu og verða sjálfsagt búnir að finna eitthvað misjafnt um þetta árið 2060.
![]() |
Alcoa prófar nýja tækni til að virkja sólarorku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 23.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.8.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 947331
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Gylfi bankar á landsliðsdyrnar
- -raungusegðasiðir-
- Fundur?
- Baugur Bjólfs
- Læknablaðið, hringormur, nálardofi. Í þessum tilvikum hafa lirfurnar annað hvort búið um sig í þarmavegg eða farið í gegnum þarmana yfir í kviðarhol eða í líffæri, svo sem lifur, gallblöðru eða eitla.
- Íslenskur hernaður undir yfirskini almannavarna ... Frumvarp 114/2025
- Verja hótanir ESB
- Heimsbókmenntir af handahófi
- Háttvirtur forsætisráðherra, eða þannig
- Herratíska : Ný jakkasnið