Einbeittur brotavilji

Þetta kallar maður einbeittan brotavilja!

 


mbl.is Bauð samfanga vinnu við vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerðu íslensk stjórnvöld?

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gekk af þessum "Kanadíska" fundi í mótmælaskyni, fyrir hönd okkar Íslendinga, Finna og Svía. Stjórnvöld í Finnlandi og Svíþjóð gagnrýna kanadísk stjórnvöld opinberlega fyrir að hafa ekki boðið fulltrúum sínum og okkar á fund þar sem rætt er um framtíð norðurskautsins.

Hafa íslensk stjórnvöld gert slíkt hið sama?

Það læðist að mér sá grunur að svo sé ekki. Þessi ríkisstjórn er svo duglaus á öllum sviðum, að 1/3 væri nóg, ... jafnvel yfirdrifið.


mbl.is Svíar og Finnar gagnrýna kanadísk stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Synd og skömm

NVN2_Arni_Finnsson_RGB_JPEGÖfgakennd dýra og náttúruvernd hefur stórskaðað trúverðugleika þeirra samtaka sem hafa með þau mál að gera, bæði hérlendis og erlendis. Það er synd og skömm, því flest okkar viljum við að þessi mál séu í lagi.

Flest gerum við okkur grein fyrir því að mannskepnan þarf að lifa í jafnvægi við umhverfið, eins og kostur er og engan þekki ég sem vill að hætta sé á að hvalategundum við Ísland verði útrýmt.

Samt telja Náttúruverndarsamtök Íslands að landið okkar sé fullt af slíku fólki.

Synd og skömm.


mbl.is NSÍ gagnrýnir hvalveiðiskýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður á heima í Englandi

Leikirnir sem ég sá Eið spila með Mónakó bentu til þess að franskur fótbolti henti honum ekki og Frakkarnir hljóta að hafa séð það einnig. Ég held að þessi yfirlýsing frá Mónakó tákni einfaldlega að þeir séu að reyna að hækka verðmiðann á honum.

Eiður á heima í enskum fótbolta, þeim besta og hraðasta í Evrópu.

Skoðanakönnun hér til hliðar


mbl.is Mónakó vill fá Eið Smára til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selur eltir kött

Sá ég út við svarta kletta

selinn elta kött.

Það er best að botna þetta,

bara út í hött

(Helgi Sæm botnaði á hagyrðingakvöldi)

cold-cat

Skoðanakönnun hér til hliðar


mbl.is Dýrkeypt leit að köttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyndikynni

Jesú var náttúrulega aðalgæinn á sínum tíma og konur hafa sjálfsagt kiknað í hnjáliðunum hvar sem hann fór. Límmiðar voru ekki komnir fram á sjónarsviðið fyrir 2000 árum. Hvaða aðferð ætli Jesú hafi notað? .... svona "Just in case" Woundering

post-its - helping men avoid coyote since 1943


mbl.is Bólfimi Jósefs ekki særandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkavæðing - einkarekstur

Dagur, ásamt meirihluta vinstrimanna að því er virðist, gerir ekki greinarmun á "einkarekstri" og "einkavæðingu". Vinstrimenn telja sig hafa komið skammaryrðisstimpli á orðið "einkavæðing" og það má vel vera að þeim hafi tekist það innan sinna raða. En gagnrýni þeirra á einkavæðinguna verður ekki yfirfærð á einkareksturinn, nema breytingar á röksemdarfærslunni komi til.

Ég held að flestir aðrir viti að á þessum tveimur rekstrarformum er reginn munur. Með þessu er ég ekki að segja að annað formið sé verra en hitt, heldur einungis að segja að þetta er tvennt ólíkt.

Einkarekstur er þegar einstaklingar, félagasamtök eða fyrirtæki taka að sér rekstur að uppfylltum skilyrðum og kröfum um þjónustu fyrir opinberan aðila. Við einkavæðingu er rekstur seldur frá sveitarfélagi til einkaaðila.

Einkarekstur er í jafnmikilli samfélagslegri ábyrgð og rekstur sem opinber aðili sér um og gerðar eru sömu kröfur til þjónustu. Hagræðing hins opinbera við einkareksturinn er sá að að hægt er að spara í yfirstjórn, skrifstofukostnaði og slíku.


mbl.is Dagur bendir á fyrri ummæli Þorbjargar Helgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tattú tæfan græðir feitt

Tattú tæfan, Michelle „Bombshell“ McGee, ætlar sér að þéna vel á ástarævintýri sínu með eiginmanni (fyrrverandi) Söndru Bullock. Dræsan sú hefur lengi gert út á líkama sinn og var m.a. nektardansmær á Larry Flint's Hustler Club. Nú hefur þessi tveggja barna móðir skráð sig á heimasíðuna SoCalGlamourGirls.com þar sem hún bíður upp á "Live sex chat".

7244e246782bd0d55ff4f4f8e791a547_def

"I am the hottest busty tattoo and fetish model you will ever meet on webcam. Come have a hot, steamy affair with inked girls like me on live video," her bio says."

 


mbl.is Bullock hótaði að beita hafnarboltakylfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaður B. Ekkertson

u04-fig1Fjórir fingur krepptir og þumallinn upp í loft....

"Ég get ekki tjáð það né túlkað með orðum...."


mbl.is Segir ekkert hæft í orðum Dags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðtalið við Redknapp

http://link.brightcove.com/services/player/bcpid29318049001?bctid=74241554001

Skemmtilegt viðtal við Redknapp. Gaman að heyra kallinn tala svona fallega um harðjaxlinn úr Vestmannaeyjum. (Stutt auglýsing fyrst)


mbl.is Redknapp: Meiðsli Hermanns draga úr sigurgleðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband