Before you "blow" in it... þið ættuð kannski að pæla aðeins í því hvaðan "Vuvuzela" er upprunalega komið
![]() |
Vuvuzela-suð í myndböndum á YouTube |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 29.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"Stríðið okkar" er frumsamið verk eftir Ármann Guðmundsson. Ármann hefur áður komið við sögu hjá Leikfélagi Reyðarfjarðar en hann frumsamdi leikverkið Álagabærinn , sem sýnt var við töluverðar vinsældir, árið 2004.
Þrjár sýningar verða á "Stríðinu okkar" nú um mánaðarmótin, í tilefni af 70 ára innrásarafmælinu. Kirkjukór Reyðarfjarðar spilar stóra rullu í verkinu en kórinn syngur átta þekkt lög frá hernámstímabilinu og má þar nefna lög eins og "We´ll meet again", "White cliffs of Dover", Lady fish and chips" og "A nightingale sang in Berkeley square". Heil hljómsveit undir stjórn Gillian Hayword, kórstjórans okkar, er kórnum til fulltyngis.
Verkið er byggt upp á stuttum leikþáttum með sönglögum inn á milli. Húmorinn er sjaldan langt undan í leikverkum Ármanns Guðmundssonar og "Stríðið okkar" er engin undantekning. Leikfélagið var svo heppið að fá tvo Englendinga sem búsettir eru á Reyðarfirði, til að taka að sér hlutverk hermanna í sýningunni.
Þar sem margir hafa skipulagt sumarfrí sín með löngum fyrirvara getur verið erfitt að manna sýningu sem þessa á þessum árstíma, en hátt í 50 manns koma að sýningunni á margvíslegan hátt, m.a. við búningasauma og fleira. Það hefur því verið í umræðunni hjá Leikfélaginu að sýna verkið á ný næsta vetur.... ef vel tekst til núna á fimmtudaginn og um helgina.
![]() |
Hernámshátíð á Reyðarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 28.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Sagði hún fólk ekki geta fengið sér í glas í friði og konum væri gefið illt auga væru þær ekki með blæjur"
Er það rasismi að mótmæla því að geta ekki hagað lífi sínu með hefðbundnum hætti á heimaslóðum sínum? Við skulum vona að við Íslendingar þurfum ekki að búa við svona skrípaleik í framtíðinni.
![]() |
Andislömsk vín- og svínakjötshátíð bönnuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | 15.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mér finnst ekki nokkur spurning að stjórnarparið Steingrímur og Jóhanna ættu a.m.k. að biðja bloggarann Edward Hugh um bloggvináttu, jafnvel slá á þráðinn til hans
Þeim yrði engin minnkun í því
![]() |
Bloggari hjálpar AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 10.6.2010 (breytt kl. 11:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Árni Páll, félagsmálaráðherra, gerir það ekki endasleppt þessa dagana. Hann er duglegur koma með yfirlýsingar í fjölmiðlum. Að spila "sóló" virðist gefa honum eitthvert kikk.
Það er auðvitað fáránlegt að ætla sér að frysta laun í þrjú ár í 8-10% verðbólgu eins og verið hefur sl. ár.
Og svo bílalánaútspilið hjá honum fyrir nokkrum vikum síðan, sem reyndist bullið eitt.
Ég hef alltaf haft illan bifur á þessum manni
![]() |
Ekki svigrúm til launahækkana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 8.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nú reita "Davíðshatararnir" hár sitt og skegg af bræði.
Þessi myndarlegi hópur sem heimtaði höfuð Davíðs haustið 2008, ættu nú ekki að vera í vandræðum með að öngla saman í samskotabauk fyrir góðum lögfræðingi svo hægt sé að útbúa einkamálaákæru á hendur þessum voðalega manni, þ.e.a.s. ef þetta fólk telur að ríkissaksóknari sé að gera einhverja vitleysu.
Niðurstaða ríkissaksóknara kemur varla í veg fyrir að einstaklingar geti ekki kært fjórmenningana og höfðað einkamál. Ég vona að það verði gert því annars fáum við að heyra um ókomin ár að spilling hafi ráðið för í niðurstöðunni.
![]() |
Ekki tilefni til rannsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 7.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Engar rottur hafa sést á Reyðarfirði í um 20 ár. Mikið var um rottur hér áður, sérstaklega í kringum opin sorphaug sem var nokkra kílómetra fyrir utan bæinn.
En svo var ráðist í átak og rottunum var útrýmt og hafa ekki sést síðan. Ég sakna þeirra ekki því mér finnst rottur ekkert sérlega aðlaðandi dýr. Ég man eftir að við krakkarnir í Skuggahverfinu í Reykjavík gerðum okkur að leik að eltast við rottur í Skúlagötufjörunni fyrir neðan SS- sláturhúsið.
Reglulega berast fréttir af stórum rottum í kína. Þessi er stærri en köttur
![]() |
Barist við rotturnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 7.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar ég var 16 ára heimsótti ég systur mína í Seattle í Bandaríkjunum. Eitt sinn urðum við systkinin viðskila í stórmarkaði í borginni og ég hafði ekki hugmynd um hvar ég var nákvæmlega og ákvað að athuga með leigubíl heim. Ég var með 20 dollara í vasanum og spurði leigubílstjórann hvað farið myndi kosta til 1818 Biggelow í Queen Anne hverfi. Bílstjórinn sagði að 20 dollararnir dygðu.
Á leiðinni spurði bílstjórinn, sem var tæplega þrítugur að aldri, hvaðan ég væri. Ég sagði honum það og þá hváði hann við: "Where the hell is that!?"
Ég sagði honum að Ísland væri eyja í Norður Atlantshafi, í hafinu á mill Noregs og Grænlands. Leigubílstjórinn var engu nær og ég reyndi ekki að útskýra þetta frekar fyrir honum.
Töluvert áður en við vorum komnir á áfangastað, sýndi gjaldmælirinn 20 dollara. Ég varð órólegur og hann varð var við það, stoppaði mælirinn og sagði: "Don´t worry about it". Hann var mjög vinalegur eins allir Kanar sem ég komst í kynni við í þessari 6 vikna heimsókn minni til þessa merkilega lands og merkilegu þjóðar.
Einn helsti galli Bandaríkjamanna að mínu mati, er hversu sjálflægir þeir eru og sjálfumglaðir. Þeir eru fullvissir um eigið ágæti, að þeir séu bestir og þ.a.l. eru aðrir verri. En þeir hafa ríka réttlætiskennd, þó hún komi okkur sem alin eru upp í skandinavískum hugsunarhætti, stundum spánskt fyrir sjónir.
Ég kann ágætlega við Ameríkana.
![]() |
Eldfjöll og myrkur á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 3.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Með reglulegu millibili í ráðherratíð sinni, hefur Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, gefið út lýðsskrumsyfirlýsingar um áætlanir sínar varðandi skuldavanda heimilanna. Bílalánin hafa þar verið nokkuð áberandi hjá ráðherranum á undanförnum vikum, sennilega vegna þess að bílaskuldarar eru fleiri en t.d. húsnæðisskuldarar og því gjöfulli atkvæðamið þar.
Nú hefur einhver hnippt í Árna Pál og sagt honum að það gengi ekki til lengdar að ljúga að almenningi, eins og hann hefur gert allt frá því í kosningabaráttunni í síðustu alþingiskosningum. Í dag kveður því við harðari tón frá postulanum:
"...markmið frumvarpsins væri ekki að létta ábyrgð af þeim sem tóku lánin; þeir yrðu aldrei betur settir en ef þeir hefðu tekið verðtryggt lán í upphafi í stað gengistryggrða lána og það vitum við að eru engin kostakjör," sagði Árni Páll.
Um miðjan apríl sl. mátti skilja Árna Pál svo að vandi bílaskuldara væri svo gott sem leystur og þá var enginn svona tónn eins og í ofangreindri tilvitnun. Einhverjir fylltust bjartsýni, sérstaklega sauðtryggir kjósendur Samfylkingarinnar.
Við hin héldum ró okkar.
![]() |
18 ára fékk 100% lán til að kaupa rándýran bíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.6.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
"Hún [Jóhanna] horfi fram á niðurskurð í velferðarkerfi sem hún hafi byggt upp."
..... og Al Gore fann upp internetið.....
![]() |
Samfylking finni nýja forystu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 1.6.2010 (breytt kl. 23:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.8.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Bæn dagsins...
- Ekki hlaupið út aftur
- Y-litninga í burtu
- Trump, Pútín og alræði möppudýranna
- Frábært fannst mér að fá yfir 100 flettingar á síðasta ljóð sem ég birti á laugardaginn, oft eru þær ekki nema 10-30. Hér eru skýringar á efni þess og líkingamáli.
- Skipuleg glæpastarfsemi: Krabbamein á samfélaginu
- Hitaþankar (vegna hins óvenjuhlýja júlímánaðar)
- Inga sælent og Heimur smár ...
- Eftirbátur Bandaríkjanna
- Ál-í-bóluefnum og langvinnir sjúkdómar í bernsku