Sólin skín út um rassinn á kananum

Þegar ég var 16 ára heimsótti ég systur mína í Seattle í Bandaríkjunum. Eitt sinn urðum við systkinin viðskila í stórmarkaði í borginni og ég hafði ekki hugmynd um hvar ég var nákvæmlega og ákvað að athuga með leigubíl heim. Ég var með 20 dollara í vasanum og spurði leigubílstjórann hvað farið myndi kosta til 1818 Biggelow í Queen Anne hverfi. Bílstjórinn sagði að 20 dollararnir dygðu.

Á leiðinni spurði bílstjórinn, sem var tæplega þrítugur að aldri, hvaðan ég væri. Ég sagði honum það og þá hváði hann við: "Where the hell is that!?"

Ég sagði honum að Ísland væri eyja í Norður Atlantshafi, í hafinu á mill Noregs og Grænlands. Leigubílstjórinn var engu nær og ég reyndi ekki að útskýra þetta frekar fyrir honum.

Töluvert áður en við vorum komnir á áfangastað, sýndi gjaldmælirinn 20 dollara. Ég varð órólegur og hann varð var við það, stoppaði mælirinn og sagði: "Don´t worry about it". Hann var mjög vinalegur eins allir Kanar sem ég komst í kynni við í þessari 6 vikna heimsókn minni til þessa merkilega lands og merkilegu þjóðar.

Einn helsti galli Bandaríkjamanna að mínu mati, er hversu sjálflægir þeir eru og sjálfumglaðir. Þeir eru fullvissir um eigið ágæti, að þeir séu bestir og þ.a.l. eru aðrir verri. En þeir hafa ríka réttlætiskennd, þó hún komi okkur sem alin eru upp í skandinavískum hugsunarhætti, stundum spánskt fyrir sjónir.

Ég kann ágætlega við Ameríkana.

amerika


mbl.is Eldfjöll og myrkur á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er sammála þessari greiningu þinni á könunum Gunnar. Mér er líka hlýtt til þeirra þótt mér hugnist sjaldnast sú utanríkispólitík sem rekin er í Hvíta kofanum. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.6.2010 kl. 01:01

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta á auðvitað ekki að vera alhæfing hjá mér. Ég þekki líka Kana sem eru auðmjúkir og sýna öðrum virðingu og áhuga.

En maður verður óneitanlega var við hrokan í hinni svokölluðu "þjóðarsál" í landi tækifæranna 

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.6.2010 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband