Ég mæli eindregið með að fólk lesi þennan pistil Hannesar Hólmsteins um greinaskrif tvíeykisins Dr. Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur og Roberts Wades.
Í skrifum þeirra eru ekki einungis rangfærslur um Hannes, heldur um ótal margt fleira sem Hannes tíundar í pistlinum og leggur fram í spurningum til þeirra. Spurningarnar lagði Hannes fram fyrir tæpum mánuði síðan og svar þeirra er vandræðaleg þögn.
Þetta þokkapar hefur haft undarlega greiðan aðgang að ýmsum fjölmiðlum með skoðanir sínar en sömu fjölmiðlar virðast ekki hafa áhuga á að ganga á eftir þeim skötuhjúum með svör við þessum spurningum
Sigurbjörg ósátt við Hannes | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.10.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Menning og listir | 30.9.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svandís Svavarsdóttir, fyrverandi Umhverfisráðherra telur það einsdæmi að lög séu afturkölluð. Það er auðvitað ekki rétt hjá henni. Lesa mátti úr orðum hennar og líkamstjáningu allri að eitthvert voðaverk hefði verið framið af núverandi Umhverfisráðherra og vandlætinguna og gífuryrðin vantaði ekki.
Náttúruverndarlög "hennar" áttu að taka gildi á næsta ári en fjöldi einstaklinga, hópa og félagasamtaka hafði gagnrýnt lögin fyrir öfgasjónarmið.
Þegar sjálfskipaðir siðapostular í náttúruvernd, s.s. Svandís Svavarsdóttir, Guðmundur Hörður, Árni Finnsson, Ómar Ragnarsson, svo fáein nöfn séu nefnd, tjá sig um náttúruvernd, þá tala þau eins og aðrar skoðanir en þeirra sé einhver glæpur en þeirra þær einu réttu. Aðrar skoðanir skuli berja niður með góðu eða illu og að allt sé leyfilegt til að afla fylgis við öfgarnar.
Þetta er auðvitað skoðanakúgun í skýrri mynd.
Fagna afturköllun náttúruverndarlaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 26.9.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"Íslensk málnefnd gerir alvarlegar athugasemdir...."
Þeim þykir væntanlega að "CLOSED" sé stórhættulegt íslenskri tungu en þeim hefur þá alveg yfirsést alþjóðlega umferðarmerkið "STOP"
Þeir hljóta að vilja banna það
Bannað að birta CLOSED á ljósaskilti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.9.2013 (breytt kl. 15:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Austfirðir og Vestfirðir áttu við nákvæmlega sama byggðavanda að etja fyrir um áratug síðan. Stöðug fólksfækkun með tilheyrandi keðjuverkun, þ.e. minnkandi þjónustu á flestum sviðum.
Þeir sem gagnrýnt hafa mest virkjun og álver á Austurlandi, hafa sagt að stórar "patentlausnir" virki ekki. Það er dálítið skrítið því patentlausn þýðir einmitt að málið sé leyst. Engin hefur samt sagt að framkvæmdirnar eystra hafi átt að vera patentlausn, nema andstæðingar framkvæmdanna.
Virkjun og álver á Austurlandi virkuðu nákvæmlega eins og til var ætlast. Örugg heils árs atvinna fyrir um 1000 manns á áhrifasvæði álversins, sem er fyrst og fremst í Fjarðabyggð en teygir sig einnig í nágrannasveitarfélögin. Á Reyðarfirði fjölgaði íbúum um nær helming, úr rúmlega 600 í tæplega 1200.
Þegar Náttúruverndarsamtök Íslands, í samvinnu við NAUST (Náttúruverndarsamtök Austurlands) létu gera skýrslu árið 2001 um fyrirhugaðar framkvæmdir eystra, var það niðurstaða "sérfræðinga" sem samtökin fengu til liðs við sig, að ferðamönnum myndi fækka á Austurlandi um 50% og um 20% á landinu öllu, vegna skaðaðrar ímyndar landsins. Allir vita hvernig sú spá gekk eftir.
Álverið í Reyðarfirði hefur rennt styrkum stoðum undir ferðamannaþjónustu, eins og lesa má um í bloggfærslunni hér á undan.
Nýr tónn hjá Vestfirðingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.9.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um miðjan ágúst kom fyrsta "alvöru" skemmtiferðaskipið í Fjarðabyggð. Þetta er bara byrjunin því skipulagðar hafa verið komur fleiri skipa á næstu sumrum. Skipakomurnar er liður í að auka enn frekar fjölbreytni í atvinnusköpun á svæðinu, en eins og flestir vita hefur álver Alcoa í Reyðarfirði verið gríðarleg lyftistöng fyrir sveitarfélagið.
Sú uppbygging sem fylgt hefur starfsemi álversins teygir sig í flestar greinar atvinnulífsins, m.a.s. í ferðaþjónustuna. Tvö öflug rútufyrirtæki starfa í fjarðabyggð og þjónusta álverið en allir starfsmenn þess fá fríar ferðir til og frá vinnu. Auk þess hefur orðið umtalsverð uppbygging í hótelgistirými fyrir ferðamenn en álverið hefur lagt góðan grundvöll undir það og nota þá þjónustu töluvert, bæði fyrir heimsóknir erlendra starfsmanna Alcoa og/eða verktaka sem koma reglulega til Reyðarfjarðar í allskyns verkefni. Auk þess eru hótel og gistiheimili vel nýtt þegar ófærð hamlar för starfsfólks á milli byggðakjarna í sveitarfélaginu.
Bretar voru uppistaðan í farþegum þessa skips sem kom í ágúst. Tveir leigubílar, einn á Eskifirði og annar á Reyðarfirði halda uppi þjónustu í sveitarfélaginu alla daga, en slík þjónusta væri örugglega ekki fyrir hendi ef ekki væri fyrir álverið. Alcoa notar leigubíla reglulega til að keyra starfsmenn sem einhverra hluta vegna eru á ferðinni utan áætlana rútubílanna, t.d. vegna veikinda eða óvæntra útkalla.
Rúturnar og leigubílarnir fengu ágæt viðskipti við farþega skipsins þegar það hafði viðdvöl á Eskifirði.
Farþegarnir voru himinlifandi með heimsóknina á Eskifjörð, þrátt fyrir votviðrið. Náttúrusafnið á Norðfirði og Stríðsárasafnið á Reyðarfirði voru m.a. viðkomustaðir ferðamannanna. Auk þess keyptu þeir minjagripi og ullarvörur í verslunum. Á myndinni sjáum við nokkra ferðamenn á gangi á aðalgötu Eskifjarðar í rigningunni.
Bloggar | 12.9.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Árið 2012 var óvenjulegt á Norður heimskautinu. Aldei hafði mælst eins lítil ís á svæðinu og það ár, en hafa verður í huga að nákvæmar mælingar hafa ekki staðið yfir nema í ca. 40 ár.
2012 var ekkert hlýrra en sl. 15 ár eða svo, en óvenjulegir vindar á Norðurskautinu munu hafa kurlað ísinn og dreift honum suður á bóginn. Útlit er fyrir að meiri ís verði þetta árið, eins og fram kemur í bloggi Ágústs H. Bjarnason
Ísinn eykst á Suðurskautinu.
Er Suðurskautið ekki örugglega á sama hnetti og Norðurskautið?
Norðurísinn aldrei hörfað hraðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | 7.8.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Júlí hefur verið ljómandi góður á austurlandi. Síðustu daga hefur þó þokan læðst inn firðina og jafnvel upp á Hérað, á kvöldin og nóttunni. Yfirleitt hverfur hún þó um hádegisbilið.
Reyðarfjörður, Eskifjörður hægra megin.
Norðfjörður
Séð niður að Reyðarfirði frá Fagradal
Séð frá Fagradal niður að Eyvindarárdal í átt að Egilsstöðum.
Seyðisfjörður, þokan veður inn fjörðinn
Á Fjarðarheiðinni er Heiðarvatnið enn ísilagt að hluta, þrátt fyrir óvenjuleg hlýindi að undanförnu. Myndina tók ég í gær í 18 stiga hita um kvöldmatarleytið. Vatnið er í um 600 m. hæð.
Þokan á hraðferð frá Héraðsflóa til Egilsstaða. Myndin tekin af Fjarðarheiði.
Sólarflug á Suðurlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.7.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Margar skemmtilegar sjóbleikjuár eru á austfjörðum, t.d. Sléttuá í botni Reyðarfjarðar. Þar hef ég stundum fengið afar góðan afla. Svo virðist sem fiskgengdin komi í sveiflum á nokkurra ára fresti, ýmist mokveiði, eða lítið sem ekkert.
Hátíðin FRANSKIR DAGAR verður haldin um næstu helgi. Mikið af ferðamönnum er nú á Austurlandi og því tilvalið fyrir þá að upplifa skemmtilega stemningu á Fáskrúðsfirði. Áhugavert safn er í bænum um veru franskra sjómanna í bænum og vinabæjarsamband er milli Fáskrúðsfjarðar og franska hafnarbæjarins Graveline.
Bóndinn á innsta bænum í Fáskrúðsfirði, rétt við Fáskrúðsfjarðargöngin, hefur áletrað heyrúllurnar á túninu við þjóðveginn, til að vekja athygli á væntanlegri hátíð.
Dalsá í Fáskrúðsfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 23.7.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í vor keyptum við skemmtilegt sumarblóm í Blómahorninu, lítilli garðyrkjustöð hér á Reyðarfirði í eigu Önnu Heiðu Gunnarsdóttur, garðyrkjufræðings. Mig minnir að Anna Heiða hafi kallað blómið Næturljóma (eða kvöldljóma).
Það blómstrar á kvöldin og nóttunni en lokast og "sefur" á daginn.
Hvít blómin eru lítil, fingerð og falleg. Blá lóbelia í baksýn.
Á morgnanna hverfa blómin í ofurlitla knúbba.
Bloggar | 23.7.2013 (breytt kl. 09:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 945808
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði