Mér hefur alltaf fundist Jóhanna syngja mjög vel en samt hefur eitthvað vantað uppá að ég hafi fílað hana almennilega. Hún hefur oft verið eins og vaxbrúða á sviði.... voða falleg en ekki sýnt miklar tilfinningar. En í gær kom það. Hún var sannkölluð drottning á sviðinu og geislaði sem stjarna kvöldsins.
Til hamingju Jóhanna.... og Ísland
![]() |
Ísland komið áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 13.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi er óborganlegur Karlinn átti að blása í áfengismælinn, en hann misskildi eitthvað. Í sveitinni rétta menn ekki fleyga til að láta blása í þá.
![]() |
14 milljóna fyllerí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 13.5.2009 (breytt kl. 02:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þegar Stefán Ólafsson reiknaði út fyrir vinstri flokkana, skattbyrði í þjóðfélaginu, þá komst hann að þeirri niðurstöðu að skattar hefðu aldrei verið hærri, þrátt fyrir að skattprósentan hafði verið lækkuð umtalsvert, bæði á fólk og fyrirtæki. Ástæðan fyrir þessu var einföld því talsverður fjöldi fólks og fyrirtækja hafði ekki borgað skatta áður, þegar það lapti dauðan úr skel. Í góðærinu var annað upp á teningnum, velta fjármagns og umsýsla öll í þjóðfélaginu hafði aldrei verið meiri og að sjálfsögðu hagnaðist ríkissjóður á því.
Nú, í harðærinu, ætla vinstriflokkarnir ekki að hækka skatta, þrátt fyrir að þeir ætli að hækka skattprósentuna! Nú er fólk í tugþúsundavís atvinnulaust og borgar litla sem enga skatta og mörg fyrirtæki hafa farið á hausinn og enn fleiri gera varla meira en að skrimta. Og þar sem þetta fólk og þessi fyrirtæki borga enga eða litla skatta í dag, þá verða einhverjir aðrir að gera það. Ég ætla að láta lesendum þessa bloggs eftir að giska á hverjir það munu verða.
![]() |
Kynna skattahækkun eftir helgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þessi tilgerð ríkisstjórnarflokkanna er víst til þess að sýna landsbyggðinni einhverskonar virðingu. Jóhanna Sig. sagði í Kastljósinu í gær þegar Helgi Seljan spurði hana út í kostnað við þetta að nokkur hundruð þúsund krónur skiptu nú litlu. Því er ég ósammála, þessi sýndarmennska gerir ekkert annað en lítið úr landsbyggðarfólki. "Royalinn" heldur að landsbyggðarlýðurinn fái "starstruck" við nærveru ráðherraliðsins en það er misskilningur.
![]() |
Ríkisstjórnarfundur á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Við í Kirkjukór Reyðarfjarðar erum að æfa stíft þessa dagana fyrir tónleika sem við höldum í Kirkju og menningarmiðstöðinni á Eskifirði, 20. maí nk. Efnisskráin er afar fjölbreitt hjá okkur og lögin eru t.d. spánskt lag frá miðöldum og einnig franskt frá sama tíma, afríkanskur stríðssöngur, íslensk þjóðlög, einnig danskt og sænskt. Rúsínan í pylsuendanum er Bohemian Rhapsody eftir þá félaga í bresku rokksveitinni Queen.
Hér að neðan er lagið El grillo é buon cantore , sem er á efnisskránni hjá okkur, en þarna er það sungið af karlakvartett með kontratenór í stað sópran. Lagið er frá því um árið 1500.
![]() |
Stærsti kór sögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 12.5.2009 (breytt kl. 02:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þingmennirnir Atli Gíslason, Jón Bjarnason, Þuríður Backman, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Rafney Magnúsdóttir lýstu yfir andstöðu sinni við ESB-málið á fundi flokksráðsins og sögðust áskilja sér rétt til að greiða atkvæði á móti ESB-tillögunni á Alþingi.
Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að þingmönnum væri skylt að greiða atkvæði sín á þingi í samræmi við eigin sannfæringu. Þegar þingmenn VG gera það, þá birtist það sem frétt í fjölmiðlum.
![]() |
Þingmenn lýstu yfir andstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | 11.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Að kynnast störfum í ólíkum greinum er upplýsandi og þroskandi fyrir unga sem aldna. Í Grunnskóla Reyðarfjarðar er valgrein í 9. og 10. bekk sem heitir starfsfræðsla. 14 krakkar völdu það fag og um 15 fyrirtæki í bænum samþykktu að taka á móti þeim í vetur, einu í senn. Síðasta mánuðinn höfum við svo fengið þrjá aðila sem komið hafa í skólann og haldið fræðsluerindi fyrir allan hópinn.
Fyrst kom prestur og kynnti prestsstarfið, svo kom lögreglan og að lokum varaslökkviliðsstjórinn. Síðasta starfskynningin var á miðvikudaginn og þá fórum við í álver Alcoa. Erna Indriðadóttir, fyrrv. fréttamaður á Sjónvarpinu og núverandi upplýsingafulltrúi Alcoa, tók á móti okkur og heimsóknin var bæði fræðandi og skemmtileg.
Hér er hópurinn í móttökuherbergi þar sem spilað var myndband um öryggisreglur í álverinu en þær eru mjög strangar.
Litlu andarungarnir.... Sér merktar gönguleiðir eru í álverinu og stranglega bannað að fara út fyrir þær. Allir eiga að fara eftir reglunum, án undantekninga. Brot á öryggisreglum er oftast brottrekstrarsök.
Allir fengu viðeigandi hlífðarfatnað; hjálma, sloppa, þykka vinnuhanska, öryggisskó með stáltá, hlífðargleraugu og eyrnatappa. Hópnum var skipt í tvennt og hér er annar hópurinn með Eiði Ragnarssyni, starfsmanni í mannauðsteymi Alcoa, en hann var leiðsögumaður okkar hóps. Dóttir Eiðs var í hinum hópnum. Í fjarska má sjá gula slá yfir bræðslukerjunum, en það er krani sem notaður er við að tæma úr kerjunum. Einn svona krani kostar um 500 miljónir króna og fjórir slíkir eru í álverinu.
Hér er horft í hina áttina, en hópurinn kom inn í skálann fyrir miðju. Skálinn virkaði næstum mannlaus því þetta er gríðarlegt mannvirki, hvor skáli um sig er um 1.100 metrar á lengd og lofthæðin er um 20 m. Annar krani sést í fjarska.
Hér er "lítil" álma úr öðrum kerskálanum en hún er kranaverkstæði. Þessi rándýru tæki eru undir stöðugu eftirliti. Starfsmennirnir sem vinna á krönunum eru þjálfaðir í "kranahermi" og fengum við að setjast í hann og prófa. Kranahermirinn kostar litlar 50 miljónir en betra er að gera mistök í honum en í alvöru krananum. Mistök í honum geta verið mjög dýrkeypt.
Mynd af kranaherminum. Í honum er leystar þrautir eins og í raunveruleikanum væri. Hermirinn gefur einkunn á skalanum 1-10 fyrir marga ólíka þætti, s.s. hraða, nákvæmni og mýkt í stjórnun. Þeir sem útskrifast sem kranamenn gera tilteknar æfingar 10 sinnum og mega aldrei fá lægri einkunn en 7. Allir fengu að prófa einu sinni og þrír nemendur náðu yfir 7, allt stelpur.
Mikið lofthreinsivirki liggur á milli kerskálanna en ýmsar óheilnæmar lofttegundir eru sogaðar upp úr bræðslukerjunum og þær hreinsaðar, aðallega brennisteinn. Svo er sjóðheitu loftinu dælt upp um þennan reykháf sem er 3 metrum hærri en Hallgrímskirkjuturn, eða 78 m.
Þúsund tonn á færibandinu þokast nær. Öryggisgrindverk er þarna utanum færibandið sem flyrur 900 gráðu heitt álið til frekari vinnslu.
Rauðgóandi ofn hafður opinn til kælingar
Fata full af brennheitu áli flutt til í vinnsluferlinu
Þarna er búið að gera vírrúllur úr álinu sem m.a. eru notaðar í háspennustrengi í Austur-Evrópu. Fyrirhuguð er gríðarleg endurnýjun á raforkukerfi gömlu kommúnistaríkjanna, en kerfi þeirra hafði verið illa haldið við frá því það var byggt snemma á síðustu öld. Ein rúlla er um 3,5 tonn að þyngd.
Eiður að fræða krakkana.
Nokkrar rannsóknar og gæðaeftirlitsstofur eru í álverinu. Þarna er togþol álsins prófað
Álstangir í skúffum merktum framleiðsludeginum
Stöðvunarskylda
Betra er vit en strit. Mikil áhersla er lögð á vinnuvernd og öryggi
Hér er súrálstankurinn. Hann tekur 90 þús. tonn sem er um mánaðarskamtur fyrir álverið. Um tvö tonn af súráli þarf til að búa til eitt tonn af áli.
Súrálinu er dælt beint úr skipinu upp í þetta færiband sem flytur það í tankinn.
Mjóeyrarhöfn er orðinn önnur stærsta höfn landsins, en Eimskip er einnig með aðstöðu við höfnina. Aðstæður til hafnargerðar voru eins og best verður á kosið, því mjög aðdjúpt er þarna og ekki er þörf á neinum sjóvarnargörðum því ölduhæð er engin í þröngum firðinum. Alls vinna um 750 manns innan girðingar álversins, 450 í álverinu sjálfu og um 300 manns við höfnina og í þjónustufyrirtækjum sem staðsett eru á lóðinni. Auk þess er fjöldi starfa tengd álverinu víða um land, m.a. í Reykjavík.
Að heimsókninni lokinni var öllum boðið í rjómavöfflur, kaffi og ávaxtasafa. Flestir voru dauðfegnir að losna við öryggisskóna vegna hælsæris og ein stelpan sagðist sko ekki ætla að vinna þarna í framtíðinni, því skórnir væru svo óþægilegir. Allir fóru þó sáttir á braut og ýmislegs vísari um álver Alcoa á Reyðarfirði.
![]() |
Fengu að kynnast slökkvistarfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.5.2009 (breytt kl. 21:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ísbirnir eru stórhættuleg dýr og þeir eru mjög fótfráir á sprettinum og manneskja á hlaupum hefur ekki nokkurn möguleika á að sleppa undan honum. Hungraður björn er óútreiknanlegur og maður hefði haldið að jarðfræðingarnir væru upplýst fólk sem létu sér ekki svona fífldirfsku í hug koma.
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það var ljóðatími í gær hjá 8. bekk í Grunnskólanum á Reyðarfirði þar sem nemendur áttu að skrifa fyrst ljóð um tilfinningar og síðan liti. Máttu þau vinna þetta án þess að velta fyrir sér rími og ljóðstöfum. Einum stráknum í bekknum leiddist þetta óskaplega og skilaði eftirfarandi til kennarans.
Hvað er ljóð?
Ljóð er drasl
sem er tilgangslaust basl.
Hugsar og hugsar, gerist ekki neitt,
aumingja tíminn, fór ekki í neitt.
Hugsar um gulan, rauðan og bláan,
helvítis ljóðið gerir mig gráan.
Endemis ljóðið er að klárast,
vegna þess að ég er að brjálast.
Menntun og skóli | 8.5.2009 (breytt kl. 15:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eftir að lögreglan hafði vísað máli yfirlæknisins á Eskifirði frá, ákvað framvæmdastjóri HSA, Einar Rafn Haraldsson að halda málinu til streitu og sendi málið áfram til Héraðsdóms Austurlands en þar var málinu einnig vísað frá. Yfirlæknirinn, Hannes Sigmundsson, hefur mikinn stuðning íbúa Fjarðabyggðar og margir halda því fram að persónulegur illvilja Einars Rafns í garð yfirlæknisins ráði för. Bent hefur verið á að Einar, sem búsettur er á Egilsstöðum hafi róið að því öllum árum á sínum tíma að sjúkraflutningum í Fjarðabyggð yrði þjónað frá Egilsstöðum, en um 80 km. eru frá Egilsstöðum að sjúkrahúsinu á Norðfirði. Hannes barðist gegn þessum fyrirætlunum Einars Rafns af krafti og hafði betur.
Á myndinni er Einar Rafn Haraldsson og Helga Jónsdóttir, bæjarstýra Fjarðabyggðar að undirrita samning um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð. Samkvæmt samningnum tók Slökkvilið Fjarðabyggðar að sér alla sjúkraflutninga í Fjarðabyggð fyrir HSA.
![]() |
Vill lausn í máli yfirlæknis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 7.5.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 10
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 947164
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Þetta er banani því Hamas segir það
- Nýjasta vopn ESB gegn Viktor Orbán: Karlar í brjóstahöldurum og háhæluðum skóm
- Lifað á og/eða í lyginni
- Landráðastjórn.
- Þegar fylgi XD fór
- Er þetta leikrit eftir allt saman?
- Stóru breytingarnar
- PPP-skjölin og ríkisútvarpið
- Herratíska : RALPH LAUREN með haustinu 2025
- " Báknið burt" - Bókun 35 - EES/ESB