Bjálfar

Ísbirnir eru stórhættuleg dýr og þeir eru mjög fótfráir á sprettinum og manneskja á hlaupum hefur ekki nokkurn möguleika á að sleppa undan honum. Hungraður björn er óútreiknanlegur og maður hefði haldið að jarðfræðingarnir væru upplýst fólk sem létu sér ekki svona fífldirfsku í hug koma.

isbjorn


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú lést gabbast eins og ég Gunnar.   Þetta er tær snilld.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.5.2009 kl. 19:41

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Ég lét gabbast. Ég harma samt meðferðin sem þetta uppstoppaða dýr þarf að þola - að vera í kringum drukkna (og fyndna) Akureyringa. Fyrir neðan allar (ís)hellur segi ég og skrifa.

Guðmundur St Ragnarsson, 9.5.2009 kl. 20:32

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Góður Guðmundur. Ég held að þeir sem hvað mest bölsótast yfir þessu háttarlagi hrekkjarlómana séu fúlir yfir að hafa látið gabbast. Vonandi sjá þeir ljósið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.5.2009 kl. 21:21

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér varð reyndar hugsað til þess að engar fréttir af hafís hafa verið að undanförrnu, en mig grunaði samt ekki að um gabb væri að ræða.

Helvítis hrekkjusvínin

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.5.2009 kl. 21:53

5 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ég lét líka gabbast...  Og mér finnst þetta reyndar nokkuð fyndið

Eiður Ragnarsson, 9.5.2009 kl. 22:27

6 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Ég hélt að Hrekkjalómafélagið í Vestmannaeyjum ættu einkarétt á svona lagað. Frændur mínir í Skagafirði eru sárir. Þeir héldu að enn einn ísbjörninn hefði heiðrað þá með nærveru sinni. Hinn helmingurinn í mér sem er Húnvetningur segir bara "hjúkk". Þetta er farið að verða vandræðalegt hvað þessi kvikindi sækja í Skagafjörðinn.

Guðmundur St Ragnarsson, 10.5.2009 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband