Þegar Stefán Ólafsson reiknaði út fyrir vinstri flokkana, skattbyrði í þjóðfélaginu, þá komst hann að þeirri niðurstöðu að skattar hefðu aldrei verið hærri, þrátt fyrir að skattprósentan hafði verið lækkuð umtalsvert, bæði á fólk og fyrirtæki. Ástæðan fyrir þessu var einföld því talsverður fjöldi fólks og fyrirtækja hafði ekki borgað skatta áður, þegar það lapti dauðan úr skel. Í góðærinu var annað upp á teningnum, velta fjármagns og umsýsla öll í þjóðfélaginu hafði aldrei verið meiri og að sjálfsögðu hagnaðist ríkissjóður á því.
Nú, í harðærinu, ætla vinstriflokkarnir ekki að hækka skatta, þrátt fyrir að þeir ætli að hækka skattprósentuna! Nú er fólk í tugþúsundavís atvinnulaust og borgar litla sem enga skatta og mörg fyrirtæki hafa farið á hausinn og enn fleiri gera varla meira en að skrimta. Og þar sem þetta fólk og þessi fyrirtæki borga enga eða litla skatta í dag, þá verða einhverjir aðrir að gera það. Ég ætla að láta lesendum þessa bloggs eftir að giska á hverjir það munu verða.
Kynna skattahækkun eftir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 12.5.2009 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 7
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 944630
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Blóð fyrir regnguðinn.
- Mikilvægar framfarir í gangi í málefnum göngu- og hjólafólks.
- Örlagadagar nálgast. Veiruvitfirringin og vinstri-græni forsetinn. Sprautumorðin
- Sjónhverfingalýðræðið í Bandaríkjunum Dennis J Kucinich
- Auðvitað er María Sigrún vanhæf á Rúv.
- Að vera í algeru affalli
- "Samstarf um öryggis- og varnarmál" er frasinn fyrir varnarmálafjárlög Íslands
- "HÁTT GLYMUR Í TÓMRI TUNNU" - SUMIR ÆTTU AÐ LÝTA SÉR NÆR........
- TÍSKA : Norrænn elegans hjá FILIPPA K. á karlmennina
- Vorboðar
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Fólk
- Endurgerði atriði úr Dune 2 á íslensku
- 15 ára drengur frumsýnir mynd í Bíó Paradís
- Vinátta ósamlyndra svila
- Ný íslensk stikla slær áhorfsmet
- Ægir Sindri hlaut fyrsta styrkinn úr sjóði Prins Póló
- Er ekki að spá í að opna kaffihús
- Hera Björk farin til Malmö
- Grunnskólakennari á Nesinu datt í lukkupottinn
- Elly snýr aftur
- Skilnaðurinn eyðilagði metið
Athugasemdir
Þetta er því miður rétt, enn er til fólk og verður líklega eitthvað áfram sem stingur höfðinu í sandinn en sannarlega fer þeim fækkandi,nú tel ég heiðarlegt fólk vera í stjórn og bjartari tíma framundan þótt fyrst um sinn verði skítalykt meðan verið er að moka út sjálfstæðis-framsóknarflórinn
Æja Honkanen (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:47
Það var víst góðæri. Kaupmáttur launa hafði aldrei verið hærri og hann var með því besta sem þekkist í veröldinni. En því miður þá var mikill hluti fólks á ótrúlegu neyslufylleríi og skuldsetti sig eins og góðærið og kaupmátturinn yrði eilífur. Það kann aldrei góðri lukku að stýra og margir eru að bíta úr nálinni með það í dag.
Ofneysla varð almenningi að falli og græðgi fjármálamönnunum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 13.5.2009 kl. 02:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.