Eflaust er slatti af fólki sem trúir þessum veltutölum Alþjóða dýraverndarsjóðsins um umfang og "gróða" af hvalaskoðun, en þessi samtök ásamt fleirum úr þessari átt, eru algjörlega marklaus. Hugmyndafræði dýra og náttúruverndarsamtaka er að vernda allt, sama hvað tautar og raular og að beita óvönduðum meðulum til þess að ná árangri er algjörlega réttlætanlegt í hugum þessa fólks. Auk þess byggist "velta og gróði" samtaka sem þessara á því að draga upp sem dekksta mynd af ástandinu í lífríkinu og náttúrunni.
![]() |
Hvalaskoðun veltir milljörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 23.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vinstrimenn í pólitík á Íslandi í dag, eru eins og börn í sælgætisverslun. Fyrir rúmu misseri síðan voru fáir tilbúnir í stjórnunarstíl vinstrimanna, þ.e. auknar skattpíningar og ríkisafskipti í atvinnulífinu. Í dag sitja þessir aðilar við stjórnvölinn við óvenjulegar aðstæður. Þeir komast upp með ríkisafskipti á ólíklegustu sviðum, án þess að fólk taki sérstaklega eftir því. Allt snýr hvort eð er á haus í þjóðfélaginu og í ringulreiðinni láta þeir hendur standa fram úr ermum.
Það mun taka langan tíma að vinda ofan af vinstrimennskunni.
![]() |
Stofna Bankasýslu ríkisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 20.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eins og margir lesendur þessa bloggs eru eflaust farnir að átta sig á, þá læt ég mér ekki náttúruvernd óviðkomandi, enda er ég ötull talsmaður þess að öll sjónarmið fái notið sín og vil helst að allt fái að "njóta vafans", eins og vinsælt var að mæla í nafni náttúrunnar hér um árið. Náttúran átti að njóta vafans.
En ég hef jafn miklar mætur á náttúruvernd, og ég hef óbeit á ýkjuáróðri sumra náttúruverndarsamtaka og/eða talsmanna þeirra. Það verður óþægilegt gengisfall á trúverðugleika slíkra samtaka í heild og á slíkum stalli eiga svo göfug samtök ekki heima.
Hið hörmulega "Exon Waldes" olíuslys er gott dæmi um þegar náttúruverndarsamtök komast í ham. Fullyrðingar þeirra um ómetanlegt og óbætanlegt tjón, hafa ekki reynst á rökum reistar. Allskyns umhverfis og líffræðingar á vegum náttúruverndarsamtaka fullyrtu að olíumengunin myndi vara í tugi og jafnvel hundruði ára. Staðreyndin er hins vegar sú að í dag, um 20 árum síðar, sjást engin ummerki olíunnar á yfirborði jarðar. Það má hins vegar finna ummerki olíunnar á litlu afmörkuðu svæði næst slysstaðnum, á um hálfsmeters dýpi í sandfjöru. Ekki er sjánlegt að lífríkið á svæðinu sé með óeðlilegum hætti í dag.
Ýmsar dýrategundir áttu beinlínis að vera í útrýmingarhættu á svæðinu, eða að viðkomandi tegund átti að verða tugi ára að jafna sig. Sæoturinn var nefndur sérstaklega, einnig nokkrar fuglategundir og fleiri sjávarspendýr. Engir af þessum spádómum hafa ræst.
Svona vitleysa er ekki góð fyrir orðspor náttúruverndarsamtaka.
![]() |
Greiði tugi milljarða í bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ég var að spekúlera...... munið þið ekki eftir hinni tilfinningaþrungnu yfirlýsingu Christiano Ronaldo í fjölmiðlum, að hjarta hans væri hjá Utd. og hann færi hvergi? Þegar orðrómurinn var sem hæstur um þreifingar Real Madrid á leikmanninum, þá kepptust allir aðilar málsins við að neita þessum orðrómi, þ.e. Ronaldo sjálfur, forráðamenn Real Madrid og "sörinn" í stjórastólnum hjá Utd.
Jæja, það er gott að strákurinn er farinn, þá þarf maður ekki að hlusta á þetta leikrit meir. Það verður spennandi að sjá hvað Ferguson hristir fram úr erminni í leikmannakaupum í sumar. Ég held að það sé keppni í gangi milli Wenger hjá Arsenal og Ferguson hjá Utd., hvor kaupi fleiri unga og óþekkta.
Christiano Ronaldo er hæfileikaríkur náungi. Hér er hann í einu fjölmargra áhugamála sinna utan knattspyrnunnar.
![]() |
Finnur einhvern í stað Ronaldo |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 12.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég væri alveg til í að halda með West Ham ef Gianfranco Zola knattspyrnustjóri, kaupir Eið Smára til félagsins. Ok, þá vitið þið það. Ég er liðahóra. Ég held gjarnan með því liði sem spilar skemmtilega fótbolta hverju sinni. Þennan veturinn er Barcelona efst á listanum.
![]() |
Zola fær fé til leikmannakaupa og þarf ekki selja þá bestu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 8.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Golfklúbbur Fjarðabyggðar á Reyðarfirði hefur undanfarin tvö ár unnið að því að móta níu holu golfvöll í landi Kollaleiru rétt innan við bæinn og klaustrið. Mjög góð aðsókn hefur verið að vellinum og koma bæði fullorðnir og börn að spila enda er völlurinn rétt utan við bæinn.
Myndin af vellinum er tekin af Jóhanni E. Benediktssyni mannvirkjastjóra uppi á Hádegisfjalli
Nokkurar óánægju hefur gætt meðal golfara á Reyðarfirði með að klúbburinn skuli ekki fá styrki frá bænum, eins og klúbbarnir á Eskifirði og Norðfirði fá. Það er mat bæjaryfirvalda að ekki sé ástæða til að styrkja þriðja klúbbinn í bænum og telja yfirvöld að Reyðafirðingar geti nýtt sér völlinn á Eskifirði, enda ekki nema 15 km. á milli byggðarkjarnanna. Á móti segja golfáhugamenn á Reyðarfirði að völlurinn á Eskifirði sé að mörgu leyti mein gallaður því brautirnar liggja í miklum halla í hlíðum Hólmatinds. Auk þess sé rekstur vallarinns og klúbbsins í molum og skuldir miklar, eða um og yfir 50 miljónir. Engir ársreikningar hafa verið gerðir hjá Golfklúbbi Eskifjarðar í mörg ár og því vilja Reyðfirðingar ekki bendla sig við klúbbinn. Félags og vallargjöld gera ekki annað en að borga vaxtagjöld af skuldunum og því virðist framtíð klúbbsins ekki álitleg.
Allir eru velkomnir á hinn skemmtilega völl Golfklúbbs Fjarðabyggðar á Reyðarfirði. Þar er snyrtimennskan í fyrirrúmi.
Læt einn golfbrandara fylgja með.
Maður nokkur kom heim úr vinnunni og þegar hann kemur inn úr dyrunum, sér hann konuna sína í afar efnislitlum og sexý undirfatnaði. Hún horfir á hann lostafullu augnaráði, gengur inn í svefnherbergið og segir:
"Þú mátt binda mig og gera hvað sem þú vilt".
Maðurinn fór á eftir konunni í svefnherbergið, batt hana kyrfilega í rúminu og fór svo í golf.
![]() |
Birgir lék á 73 höggum og er á pari samtals |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 5.6.2009 (breytt kl. 20:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggar | 5.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vilhjálmur Egilsson hefur starfað með AGS og hann hvatti til samstarfs við sjóðinn áður en til þess kom. Vilhjálmur átti m.a. í deilum við Ögmund Jónasson í kastljósþætti um málið. Vilhjálmur þekkir væntanlega til vinnubragða AGS og hann hræðist ekki að Seðlabankinn sýni sjálfstæði sitt með því að lækka stýrivexti meira en sjóðurinn telur rétt.
Annars er það einkennilegt að þau lönd sem ráða mestu innan AGS, Bretland og Bandaríkin, fara í engu eftir ráðleggingum sjóðsins til annara landa. Þau vilja ekki smakka á eigin meðulum.
![]() |
Seðlabankinn einangrar sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 4.6.2009 (breytt kl. 12:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Spaugilegt | 3.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Út með þessa duglausu ríkisstjórn! Inn með þjóðstjórn með Davíð Oddsson sem forsætisráðherra!
Nú flengríður Össur Skarphéðinnsson um Evrópu og lætur hafa eftir sér að Ísland sé að sækja um Evrópusambandsaðild. Er ekki í lagi með´ann? Það verður ekki upp á þennan vindhana logið.
![]() |
Davíð lét AGS heyra það |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.6.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 947153
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Eftir Haag bíður heimavinnan
- Lýðræði og þátttaka
- Hættum að biðjast afsökunar fyrir að verja okkar siðmenningu
- Pólitísk áhætta og sjávarútvegurinn
- Sóknarátak ríkisstjórnarinnar á landsbyggðinni.
- Dystópía algrímsins helga
- Í eldlínu glóruleysis-stórmennskunnar !
- Skattaparadísin Árborg
- Þorgerður Katrín snuprar Kristrúnu
- Stuðningsmaður nr. 1