Við þurfum mann eins og Davíð.... við þurfum Davíð

Út með þessa duglausu ríkisstjórn! Inn með þjóðstjórn með Davíð Oddsson sem forsætisráðherra!

Nú flengríður Össur Skarphéðinnsson um Evrópu og lætur hafa eftir sér að Ísland sé að sækja um Evrópusambandsaðild. Er ekki í lagi með´ann?  Það verður ekki upp á þennan vindhana logið.


mbl.is Davíð lét AGS heyra það
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Sammála báðum setningum. Össur ætti að skammast sín.

Eggert Guðmundsson, 2.6.2009 kl. 21:55

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Sammála .....sammála..

Halldór Jóhannsson, 2.6.2009 kl. 22:35

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég á ekkert eftir í mínu heimili nema skuldir...(var aldrei veðsett yfir 70%)...og hef ekki efni á stórm orðum fyrr en ég er flutt af landi brott!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 2.6.2009 kl. 22:45

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála. Davíð sá um einkavæðingu bankanna og var ekki að fikta með neinar hindranir eða  vitleysisgang. Hann vissi sem var að einkageirinn leiðréttir sig sjálfur áður en í ógöngur er komið. Öll regluverk trufla arðsemina.

Ætli hann hafi nokkuð verið "kenndur" þega hann skóflaði út þessum 350 milljörðum í Kaupþing svo þeir ættu fyrir útförinni- eða voru þær 380?

Árni Gunnarsson, 2.6.2009 kl. 23:04

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Sammála...sammála!!!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.6.2009 kl. 00:30

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ekki vil ég "hagstjórn" maffíuforingjans...

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.6.2009 kl. 00:54

7 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ég get nú ekki tekið undir þetta Gunnar, í það minnsta ekki með Davíð...

Hann ásamt mínum fyrrverandi formanni bera ansi mikla ábyrgð á þessu hruni öllu, hjá þeim félögum byrjaði boltinn að rúlla...

Það er nú bara því miður svo...

Eiður Ragnarsson, 16.6.2009 kl. 07:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband