Færsluflokkur: Samgöngur
Ýmsar hættur stafa af rafbílum en lítið heyrist um það í fréttum. Dæmi eru um að fólk fái raflost þegar það reynir að aðstöða ökumenn rafbíla sem lent hafa í árekstri. Slökkviliðs og sjúkraflutningamenn eru meðvitaðir um þessa hættu en almenningur ekki. Einnig eru dæmi um eldsvoða í rafbílum af litlu tilefni og rafmagnseldur getur verið erfiður viðfangs ef ekki eru viðeigandi slökkvitæki við hendina.
Engu er líkara en upplýsingum sé leynt viljandi fyrir almenningi í viðleitni til að auka hlut rafbíla á markaði á kostnað hinna hræðilegu mengandi bensín og díselbíla. Reyndar hefur komið fram að hlutur bíla sem brenna jarðefnaeldsneyti er tiltölulega lítill af heildar losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og t.d. aðeins um 4% á Íslandi.
Í áróðri fyrir notkun rafbíla er oft bent á Noreg í því sambandi. Ýmsar ívilnanir hafa átt sér stað þar til að lokka fólk til að kaupa rafbíla, t.d. minni opinberar álögur, frítt í bílastæði, engir vegtollar o.s.f.v.
Þrátt fyrir þessar ívilnanir fer nú hlutur rafbíla á markaði hratt minnkandi í Noregi, m.a. af ofangreindum ástæðum en einnig vegna þess að endursöluverð slíkra bíla er afar lágt. Rageymar í bílunum endast mun skemur en drifbúnaður og yfirbygging bílanna og kostnaður við endurnýjun rafgeyma er gríðarlega hár.
Vita lítið um rafbíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 13.9.2016 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Það eru reyndar nokkrir dagar frá því þetta gerðist. Ég hugsaði með mér þegar ég ók framhjá þessu fasta snjóblásaraferlíki með keðjur á öllum hjólum og fast í vegkantinum: "Er þetta hægt?".
Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi
Traktorsgrafa á keðjum reyndi að losa blásarann en hann haggaðist ekki. Það var ekki fyrr en gamla góða handskóflan var tekin fram að eitthvað fór að gerast. Ferlíkið náði veggripi og losnaði úr festunni hjálparlaust eftir það.
Rok og þíða í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 8.2.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga
Frá bæjarstjóra Fjarðabyggðar
Í dag og næstu daga verður gengið í hvert hús í Fjarðabyggð til þess að safna undirskriftum íbúa til að skora á Alþingi og ríkisstjórn Íslands um að framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga. Meðlimir félagasamtaka, bæjarfulltrúar, bæjarstjóri, stjórnendur fyrirtækja og stofnana í Fjarðabyggð verða meðal þeirra sem ganga á milli húsa í bæjarhverfunum sex til þess að safna undirskriftum. Íbúar eru hvattir til þess að taka vel á móti því fólki sem bankar uppá í dag og næstu daga og safnar undirskriftum. Þá er vakin athygli á fésbókarsíðu áhugahóps um gerð Norðfjarðarganga.
Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri.
Áskorunin er eftirfarandi:
Áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar Íslands
APRÍL 2012
Verklegar framkvæmdir við Norðfjarðargöng áttu að hefjast árið 2009, var frestað til 2011 og í drögum að nýrri samgönguáætlun er gert ráð fyrir frekari frestun, eða allt til 2015. Þessar tafir eru með öllu óásættanlegar fyrir íbúa og atvinnulíf vegna þeirra hamlandi og skaðlegu áhrifa sem núverandi vegur hefur á framþróun samfélagsins í Fjarðabyggð og lífsgæði íbúa á Austurlandi. Það er óforsvaranlegt að eitt öflugasta sveitarfélag landsins sé klofið í herðar niður með þeim hætti sem fjallgarðurinn um Oddsskarð gerir.
Við, undirrituð, skorum hér með á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að gera nú þegar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að framkvæmdir við gerð Norðfjarðarganga megi hefjast svo fljótt sem auðið er, en eigi síðar en fyrir lok þessa árs, 2012.
Framkvæmdir hefjist nú þegar við gerð Norðfjarðarganga
Af vef Fjarðabyggðar, HÉR
Vilja Dýrafjarðargöng framar í röðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 16.4.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar ég vann við snjóruðninga og hálkuvarnir hjá Vegagerð ríkisins á Austurlandi á árunum 2001-2005, var þjónustusvæði mitt frá Reyðarfirði til Egilsstaða og þaðan til Norðfjarðar. Vinnutíminn byrjaði á virkum dögum kl. 05.00 og ætlast til að búið væri að ryðja og/eða hálkuverja þessa 110 km. leið kl. 07.00. Um helgar var þessi tími frá kl. 6-8.
Þess má geta fyrir ókunnuga að fara þarf yfir tvo erfiða fjallvegi á þessari leið, Fagradal og Oddsskarð.
Í dag sér verktaki um þessa þjónustu og svo virðist sem hann hefji vinnu klukkustund síðar og jafnvel seinna en það í mörgum tilfellum, sérstaklega um helgar. Það er skrítið í ljósi þess að síðan ég vann við þetta, hefur nýr 900 manna vinnustaður orðið til milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.
Mikil umferð er að og frá álverinu á morgnanna frá nærliggjandi byggðarkjörnum milli kl. 7 og 8 á morgnanna og á þeim tíma er hálkuvörnin ekki enn farin að virka að gagni og stundum um helgar ekki einu sinni hafin.
Mér finnst afar sérkennilegt ef kröfurnar varðandi vetrarþjónustu hafi minnkað eftir að álverið kom, því umferðin hefur auðvitað margfaldast á þessum tíma.
Hér er snjóblásari á ferð í Oddsskarði ( http://www.geirinn.is )
Glerhálka veldur vanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 22.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Síldarvinnslan á Neskaupsstað borgar í opinber gjöld 2.700 miljónir á ári, launaskattur starfsfólks er þar meðtalinn. Þetta eina fyrirtæki borgar því sem svarar allan kostnað við Norðfjarðargöng á framkvæmdatímanum.
Mörg stór og stöndug fyrirtæki önnur í Fjarðabyggð eru afar dýrmæt ríkissjóði og ber þar að sjálfsögðu hæst álver Alcoa Fjarðaáls en einnig loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði, Eskja á Eskifirði, Launafl, verktaki á Reyðarfirði og fl.
Kristján Möller hefur skilning á því að það er mannréttindamál fyrir íbúa Fjarðabyggðar og sjálfsögð krafa að samgöngur séu öruggar til fjórðungssjúkrahússins á Neskaupsstað.
Styður ekki samgönguáætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 18.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mikil reiði er í Fjarðabyggð vegna enn einnar frestunar Norðfjarðargangna. Til að komast í fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupsstað þarf að fara yfir 630 m. háan fjallveg og þar eru 600 m. löng einbreið jarðgöng sem í er blindhæð.
Göngin eru barns síns tíma, frá 8. áratug síðustu aldar og voru nokkur ár í framkvæmd. Gárungarnir segja að göngin hafi verið gerð með hamri og meitli. Staðsetning gangnanna er afar óheppileg í jarðfræðilegu tilliti, en þau liggja í gegnum gígtappa hinnar fornu Reyðarfjarðareldstöðvar. Bergið er því afar laust í sér og stöðugt er að hrynja úr göngunum, eins og sýnt var á mynd á mbl.is í dag.
Fjallvegurinn yfir Oddsskarð er fljótur að lokast í óveðrum en eins og áður segir er sjúkrahús landsfjórðungsins á Norðfirði. Auk þess er risafyrirtæki í sjávarútvegi á staðnum, Síldarvinnslan, en skattgreiðslur þess eina fyrirtækis í ríkissjóð dygðu fyrir kostnaði við gangnagerðina á framkvæmdatíma þeirra.
Myndin af Reyðarfirði, eftir Matts sem fylgir þessari frétt er fjörgömul og miklar breytingar hafa orðið á staðnum eftir að álver Alcoa Fjarðaáls tók til starfa árið 2007. Hér að neðan er nýlegri mynd af þorpinu, en á henni má m.a. sjá knattspyrnuhöllina sem reis í kjölfar framkvæmdanna.
Fluttir á sjúkrahús eftir árekstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 16.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það væri gaman að fá að sjá, t.d. á teikningu hvað þetta þýddi fyrir ásýnd skógarins í Öskjuhlíð.
Nokkur dæmi eru um að flugvélar hafi farist í aðflugi eða flugtaki vegna trjágróðurs. Við skulum vona að Gísli Marteinn og skoðanabræður hans þurfi ekki að hafa slíkt á samviskunni.
Allir vita að Gísli Marteinn er ötull talsmaður þess að flugvöllurinn fari burt úr Vatnsmýrinni. Baráttuaðferð hans fyrir því áhugamáli hefur tekið ógeðfellda stefnu, þ.e. að stofna öryggi flugfarþega í hættu.
Fá ekki að fella tré í Öskjuhlíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 15.12.2011 (breytt kl. 15:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sjálfstæðisfélögin í Fjarðabyggð lýsa vonbrigðum sínum með framkomna samgönguáætlun. Norðfirðingar og aðrir íbúar Austurlands hafa beðið árum saman eftir því að hafist verði handa við ný Norðfjarðargöng til að leysa af hólmi fjallveg í 630 m hæð yfir sjávarmáli. Endalausum loforðum og tímasetningum á upphafi framkvæmda hefur verið haldið fram af stjórnarþingmönnum og ráðherrum á fjölmennum fundum með íbúum, fyrirtækjum og bæjaryfirvöldum í Fjarðabyggð.
Sjálfstæðisfélögin í Fjarðabyggð telja að nóg sé komið af sviknum loforðum um gangaframkvæmdir og telja að best væri fyrir stjórnarþingmenn kjördæmisins að slíta skónum sínum annarsstaðar en í Fjarðabyggð í næstu kjördæmisviku.
Segir í ályktuninni.
Þess má geta að skatttekjur ríkisins vegna Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað, duga fyrir kostnaði vegna gangnagerðarinnar á framkvæmdatímanum. Gríðarlegur sparnaður yrði í vetrarþjónustu yfir hæsta fjallveg landsins sem liggur um Oddsskarð, auk þess sem kostnaðarsamar viðgerðir á veginum eru brýnar, en þær mætti spara með tilkomu Norðfjarðagangna.
Hættum að lofa upp í ermina á okkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 15.12.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fyrir hvern er þetta undirmerki villandi? Lögregluna?
Hugtakið "reiðhjólarein" er ekki til í íslenskum lögum eða reglugerðum og þ.a.l. getur það skapað óvissu. Þessu þarf að breyta.
Þessi mynd er frá Groningen í Hollandi, mestu hjólreiðaborg Evrópu. Þarna er undirmerki undir einstefnuakstursmerki; "nema reiðhjól og skellinöðrur". Þarna þarf ekki sérmerkta hjólarein, því hámarkshraði í götunni er 30 km.
Þar sem hámarkshraði er meiri, er ýmist látið nægja vegmerkingar fyrir reiðhjólarein og undirmerki undir "Innakstur bannaður" merkinu, líkt og á myndinni hér að ofan , eða sér og aðskilin akrein er fyrir reiðhjólin.
Mér finnst þessi merking ekki óskýr en það finnst lögreglunni. Merkið og undirmerkið segir allt sem segja þarf; "innakstur bannaður, nema reiðhjól". Hins vegar eru vegmerkingar ósýnilegar í snjóum og við þurfum að búa við það.
Borgin breytir loks merkingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 1.12.2011 (breytt kl. 16:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þar fauk landsbyggðarstuðningurinn Hún gæti reddað sér fyrir horn með því að mæla með flugvellinum í Skerjafirðinum.
Alþjóðafluggvöllurinn í Kansai í Japan er á uppfyllingu við strönd borgarinnar.
Vilja treysta flugvöllinn í sessi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 4.11.2011 (breytt kl. 18:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 946000
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Ef gamla samfylkingin er
- Fyrstu tuttugu dagar desember 2024
- Æsifrétt dagsins
- -nanoafnanoafnano-
- Bæn dagsins...Sömu örlög henda alla menn..
- Fyrirbyggjandi aðgerðir
- Sniðganga, ríkissksókari sniðgengur starfsmann sinn.
- Jólasveinarnir
- ALLIR ÞEIR FLOKKAR SEM STANDA AÐ ÞESSARI RÍKISSTJÓRN GÁFU LOFORÐ
- Ný ríkisstjórn mynduð