Færsluflokkur: Dægurmál
Uff... tessi fallegu sjavardyr....
Svo skynsom og mannleg. Ja mannleg, tvi tarna syndu tau hvernig lifsbarattan er i raun. Enginn er brođir i annars leik.
Eđlilegasti dauđdagi dyra i natturunni er ađ vera etin lifandi. Svo eru stofnuđ samtok af mannfolkinu til tess ađ motmaela ađ viđ mennirnir veiđum okkur dyr til atu!
![]() |
Hrefna barðist fyrir lífi sínu við hóp háhyrninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 24.7.2008 (breytt kl. 14:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Cosmopolitan glans-tímaritið stefndi 1.200 bikini stúlkum á Nikki Beach á Miami í apríl síðastliðnum, til þess að setja heimsmet í að mynda slíkan fjölda stúlkna á bikini klæðum. Er ekki hægt að setja heimsmet á Fjarðarheiði eða í Oddsskarði? Safna saman 1.200 manns í snjósleðagöllum og mynda þá saman í norðan-garranum sem væntanlegur er um helgina.
Ég nennti nú ekkert að gúggla snjósleðagallamynd fyrir þessa færslu
![]() |
Varað við snjókomu og hálku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 27.6.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þegar ég get verið á bumbunni út á palli í G-strengnum mínum, þá líður mér vel Veðrið er hreint yndislegt og spáin fyrir vikuna er á svipuðum nótum.
Dúfu litlu þykir betra að liggja í skugganum þegar svona heitt er í veðri. Mælirinn hjá okkur sýnir 22 stig í skugganum.
Snjórinn er lengi að fara ef ekki rignir. Myndin er tekin af sólpallinum okkar til suðurs yfir fjörðinn. Ef grant er skoðað, sést gangnamunninn til Fáskrúðsfjarðar
Eyrún dóttir okkar að bjóða Nönnu vinkonu sinni frá Djúpavogi og skólasystur sinni úr Menntaskólanum á Egilsstöðum í júró-grillveislu hjá okkur í kvöld
P.s. Ég er orðinn helv. góður öðru megin.... sit bara við borðið og sleiki sólina.... nenni ekki að snúa baki í sólina.... I´m a front man Guð blessi gróðurhúsaáhrifin
Dægurmál | 24.5.2008 (breytt kl. 17:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Elliðaárdalurinn er mitt uppáhalds útivistarsvæði þegar ég er í höfðborginni. Mér finnst frábært að labba um skóginn því hann er orðinn svo þéttur og stór. Þó blási naprir vindar í borginni, þá er skjólið orðið svo mikið þarna að maður verður ekkert var við vindinn, nema e.t.v. gnauðið í trjátoppunum.
Það yrði skelfilegt ef þessi hálfrar aldar gamli skógur yrði eldi að bráð auk þess sem það gæti stofnað mannslífum í hættu. Þarna er oft töluvert af fólki á öllum aldri og oft eru krakkar að leik í skóginum. Reykjarkófið og hitinn í þessum mikla eldsmat sem þarna er gæti hæglega orðið fólki að fjörtjóni og umhugsunarvert hvort ekki ætti að vera þarna einhver gæsla á vorin.
Skógarvörð á svæðið!
mynd tekin af: http://homepage.mac.com/ingvarv/fjolskyldurolt/index.html
Þessi skemmtilega mynd er að öllum líkindum tekin snemma á síðustu öld. Er þetta ekki Sjávarfoss og Efra-Breiðholt, Hólahverfið í baksýn?
Föðurforeldrar mínir sem fædd voru á 9. áratug 19. aldar kyntust í gegnum ungmennafélag, Góðtemplararegluna ef ég man rétt. Farið var í allskyns ferðir ýmist á bátum, hestum eða gangandi. Upp á Kjalarnes, út í Engey, suður í Hafnarfjörð og upp að Elliðaám. Ef ekki hefði verið fyrir þessar ferðir, hefðu þau hugsanlega ekki fellt hugi saman og ég þá aldrei orðið til. Það hefði náttúrulega verið skandall.
Kannski eru þau þarna á myndinni.
![]() |
Sinueldur í Elliðaárdal í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 16.5.2008 (breytt kl. 00:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ágætlega milt var á Reyðarfirði í dag. Fyrsti dagurinn í langan tíma sem ekki var hávetrarlegur. Það liggur þó enn töluverður snjór yfir öllu láglendi.
Rétt áður en ég fór til vinnu kl. 12.30 gekk ég út á garðveröndina og varð litið í vestur þar sem hinar þrjár blokkirnar hér í Melgerðinu á Reyðarfirði bera við himinn.
Við ystu blokkina, "Heldri manna blokkina", en þar eru íbúðir fyrir 55 ára og eldri, sá ég æsilegan flug-eltingarleik. Fálki var að elta snjótittling. Ég hef oft séð fálka steypa sér á eftir rjúpu og meira að segja önd líka, en á eftir snjótittlingi!
Leikurinn var ójafn snjótittlingnum í vil á meðan hann hafði vit á því að flögra á milli hæða á svölum blokkarinnar. En svo virtist fálkanum takast með lagni að þröngva þessum pínulitla spörfugli út á bersvæðið fyrir framan háhýsin. Þá æstust leikar heldur betur og fálkinn tók að steypa sér á vanmáttugan og felmtri sleginn smáfuglinn, trekk í trekk.
Í fyrstu skiptin tókst þeim litla að víkja sér nokkuð fimlega undan árásum fálkans, en svo virtist hann...... þverra úthaldið undra skjótt. Það síðasta sem ég sá til þeirra félaga var að fórnarlambið stefndi tiltölulega beina línu ská niður á milli blokkanna og fálkinn var eins og píla á eftir honum.... Ég held að hann hafi náð honum.
Það að fálki skuli vera að eltast við svona ómerkilega bráð sem gerir lítið meira en að fylla upp í orkutapið við eltingarleikinn, er e.t.v. merki um að rjúpnastofninn hér eystra er í sögulegu lágmarki, þrátt fyrir hefta veiðisókn í stofninn undanfarin ár.
Dægurmál | 11.4.2008 (breytt 12.4.2008 kl. 18:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Forsíða Vogue sögð ýta undir staðalímyndir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 28.3.2008 (breytt kl. 23:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekkert meiga þau blessunin án þess að það rati í fjölmiðla .... og bloggið mitt
![]() |
Heimsóttu kynlífsbúð í Hollywood |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 13.3.2008 (breytt kl. 18:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði