Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Sögusagnir frá Svíþjóð

Ég bloggaði um sögusagnir í Svíþjóð um daginn, sem ganga um hlutabréfakaupkaup arabíska mljarðamæringsins í fyrirtækinu. Sjá HÉR
mbl.is Millifærslur milljarðamærings gufa upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugarvíl og harmur dvín

Hugarvíl og harmur dvín,
er horfi ég á frúna.
Hún er eina eignin mín
sem ekki rýrnar núna.

glitnir


mbl.is Glitnir í Svíþjóð seldur á útsölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég keyrði tvo Englendinga í dag

Ég fór með tvo Breta búsetta í Birmingham á alþjóðaflugvöllinn á Egilsstöðum í dag. Þeir sögðu að pólitískir lífdagar Gordon Brown yrðu ekki margir úr þessu og lýstu hneikslun sinni á þessum hryðjuverkalögum sem sett voru á Íslendinga.

Annars höfðu þeir miklu meiri áhuga á hvernig lífið væri í svona smáþorpi eins og Reyðarfirði, heldur en óráði breskra stjórnvalda. Þeir dásömuðu fjöllin hér og náttúruna og spurðu hvernig félagslífið væri. Ég sagði þeim að á svona litlum stað þá þyrfti maður að bera sig eftir félagslífinu, hér eins og annarsstaðar og fyrir áhugasamt fólk er úr nógu að moða. "Að nenna er að lifa".

Picture 010

Ég tók þessa mynd af 1. bekknum í Grunnskóla Reyðarfjarðar í morgun. Börnin eru öll í endurskinsvestum sem Landsbankinn gaf bekknum af rausnarskap sínum, meira að segja eftir að ósköpin dundu yfir. Allir krakkar í grunnskólanum eiga svona vesti sem ýmsir aðilar hafa gefið skólanum, m.a. Alcoa og þau eru notuð af þeim yngstu ef þau labba í skólann. Helst viljum við að allir krakkarnir noti vestin a.m.k. í myrkrinu. Þessi mynd verður prentuð út í ca. 1x1 meter og sett á plötur sem festar verða við ljósastaura í grend við skólann til þess að minna ökumenn á að óvanir vegfarendur séu á ferðinni og að aðgát skal höfð í nærveru þeirra.


mbl.is Hryðjuverkalögin skemma fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er kannski ekkert að marka þá.... eða Davíð?

Próf-svindl í Rusl-landi

exam_cheating.jpg

mbl.is Ekkert liggur fyrir í Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfullinn danskur

carstenDanir eru einnig í verulegum vandræðum í bankakreppunni, við skulum ekki gleyma því. Danmörk er smáþjóð eins og Ísland og það fór í taugarnar á þeim að "útrásarvíkingarnir" frá enn smærra landi en þeirra, yfirtóku einhverjar verslanir hjá þeim. Og nú vill Carsten Valgreen, fyrrum aðalhagfræðingur Danske Bank meina að Ísland sé gjaldþrota sem þjóð.

Carsten Valgreen presenterar mál sitt gegn Íslendingum á eins illkvittinn hátt og hann getur. Var einhver víkingurinn að eiga við konuna hans, eða hvað?

danish_cartoons

 

 

 

 

 

 

 Við Norðurlandaþjóðirnar eigum að standa saman í blíðu og stríðu, en Carsten Valgreen er greinilega enginn "Íslandsvinur".

"Enginn er bróðir í öðrum leik", sagði Geiri í Gufunesi einhverntíma.


mbl.is Simbabve norðursins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gammur

Lengi hefur verið talið að fuglar af ætt gamma séu þeir fuglar sem fljúga hæst allra fugla þegar þeir láta sig svífa í uppstreyminu í nokkurra kílómetra hæð og leita að hræjum. Gammar hafa einnig afar góða sjón.

Árið 1973 lenti gammur af tegundinni “Ruppells griffon” (Gyps rueppellii) í árekstri við farþegaflugvél úti fyrir ströndum Fílabeinsstrandarinnar og var flugvélin þá í 37.000 feta (11.278 metra) hæð. Fleiri vitnisburðir virðast styðja það að “Ruppells griffon”-gammurinn sé sá fugl sem flýgur hæst allra fugla í heiminum.

http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=1256 )


mbl.is Green vildi kaupa skuldir Baugs með 95% afslætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnska leiðin?

Nú dásama margir Finna því bankarnir þar þurfa ekki ríkisaðstoð, ennþá a.m.k. Múmínálfarnir koma frá Finnlandi, gúmmístígvél og símar. Þeir eiga kjarnorkuver, gnægð timburs og þúsund vötn. Og finnsku konurnar eru víst búsældarlegar.

5865

 


mbl.is Mesta dagshækkun Dow Jones
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar beina athyglinni frá eigin vandamálum

Guðni Ágústsson vill snúa vörn í sókn. Það verður eflaust erfitt að meta nákvæmlega það tjón sem breski forsætisráðherrann olli okkur með þeirri gerræðislegu ákvörðun sinni að setja hryðjuverkalög á Kaupþing. Það er ekki nokkur ástæða til að fyrirgefa honum þetta glappaskot. Breska ríkisstjórnin var e.t.v. að leiða athyglina frá eigin vandamálum, en við eigum ekki að borga fyrir það, nóg eru okkar eigin vandamál.

Við eigum að sýna Bretum fulla hörku í þessu máli og kannski verður þetta prófmál fyrir dómstólum, um hvernig hinum umdeildu hryðjuverkalögum hefur verið beitt af hálfu Breta


mbl.is Guðni Ágústsson: Kærum Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrotar allra landa, sameinumst!


mbl.is Baksvið: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn - með góðu eða illu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"I told you so"

Alltaf gaman að vera á undan spekúlöntunum. Þetta var það fyrsta sem flaug um í mínum huga þegar ég frétti um rússagullið, og að sjálfsögðu bloggaði ég um það.

icerusland

 


mbl.is Mestu mistökin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband