Djöfullinn danskur

carstenDanir eru einnig í verulegum vandræðum í bankakreppunni, við skulum ekki gleyma því. Danmörk er smáþjóð eins og Ísland og það fór í taugarnar á þeim að "útrásarvíkingarnir" frá enn smærra landi en þeirra, yfirtóku einhverjar verslanir hjá þeim. Og nú vill Carsten Valgreen, fyrrum aðalhagfræðingur Danske Bank meina að Ísland sé gjaldþrota sem þjóð.

Carsten Valgreen presenterar mál sitt gegn Íslendingum á eins illkvittinn hátt og hann getur. Var einhver víkingurinn að eiga við konuna hans, eða hvað?

danish_cartoons

 

 

 

 

 

 

 Við Norðurlandaþjóðirnar eigum að standa saman í blíðu og stríðu, en Carsten Valgreen er greinilega enginn "Íslandsvinur".

"Enginn er bróðir í öðrum leik", sagði Geiri í Gufunesi einhverntíma.


mbl.is Simbabve norðursins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinmar Gunnarsson

Það eru margir spekingarnir hér í ríki Þórhildar, sumir málefnalegir aðrir ekki. Danir fóru á límingunum þegar Íslendingum tókst að reka dauðvona fyrirtæki í Kaupmannahöfn með gróða. Sál dana er nú einu sinni þannig innréttuð að ef þeir geta sparað eitthvað, þá gera þeir það og taka helst aldrei neinar áhættur. Með því að taka aldrei neina sénsa verður lífið svona frekar í flatneskjulegra lagi, en samt á aldrei að hætta meiru en maður vill, eða getur, tapa. Ég held að þjóðin, sem slík, verði ekki gjaldþrota, en bankarnir gætu orðið það. Bara spurning um það hvort lánadrottnar vilja fá eitthvað af útistandandi skuldum, eða ekkert.

Það er líka kreppa hér, það er satt, en ekki neitt í líkingu við það sem er heima á Fróni.

Danir tala mikið um það hvað þeir tapa miklu á því að vera ekki með evruna, stýrivextir hafa hækkað og svo framvegis og svo ofan á allt annað sofa þeir uppréttir í rúmum sínum með allan sparnaðinn undir koddanum. Það þarf mikið að ganga á tilviðbótar ef ég fer að vorkenna þeim, greyjunum.

Steinmar Gunnarsson, 14.10.2008 kl. 17:42

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Steinmar, alltaf gaman að heyra í landanum í Danaveldi

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.10.2008 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband