Færsluflokkur: Spaugilegt
Ásdís Rán, Brad Pitt og Shrek snæddu hádegisverð saman um daginn. Shrek sagði: "Ég hef alltaf talið að ég sé sterkastur allra í heiminum, en hvernig get ég verið viss?"
Brad horfði hugsandi út í loftið og sagði: "Ég er nokkuð viss um að ég er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður á jörðinni, en ég hef aldrei fengið það staðfest".
Ásdís Rán varð einnig hugsi og sagði: "Mér er sagt að ég sé dásamlegust allra kvenna, en stundum efast ég".
Þau komu sér saman um að besta leiðin til þess að komast að sannleikanum væri að spyrja hinn fræga talandi spegil: "Spegill, spegill, herm þú mér....."
Þau ákváðu að hittast aftur í hádegismat daginn eftir og bera saman bækur sínar. Þegar Shrek mætti var hann með breitt bros á andlitinu og sagði: "Spegillinn sagði að ég væri sterkastur allra í heiminum!"
Ásdís Rán var líka afskaplega glöð á svipinn og sagði: "Spegillinn staðfesti að ég er dásamlegust allra kvenna".
En Brad Pitt sat hljóður og niðurlútur við borðið, leit svo upp og sagði: "Hver í fjandanum er þessi Gunnar Th. Gunnarsson?".
![]() |
Ásdís Rán fékk 10 síður í Maxi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 31.10.2008 (breytt kl. 18:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash."*
Íslendingurinn svaraði:
"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash".
En við eigum þó Björk
![]() |
Gríðarleg viðbrögð við grein Bjarkar í The Times |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 30.10.2008 (breytt kl. 14:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Einhverntíma fyrir miðja síðustu öld, var sótt um ökuskírteini hjá sýslumanni. Ökunám var þá ekki upp á marga fiska og fólk fékk skírteinið eftir fáeinar spurningar um það helsta í umferðarlögum. Á landsbyggðinni voru sumstaðar enn minni kröfur gerðar um þekkingu á umferðarlögunum og bændur nánast pöntuðu skírteinið. Sagan segir að bóndi nokkur hafi komið til sýslumannsins á Húsavík og óskað eftir ökuskírteini.
Sýslumaður spyr þá: "Keyrirðu fullur?"
"Haaa... nei" svarar bóndinn.
"Þá hefurðu ekkert við ökuskírteini að gera!", segir þá sýslumaður. "Sá sem ekki getur keyrt fullur, á ekkert erindi með ökuréttindi".
Sýslumaður mat það svo að það væri stórhættulegt að láta bónda hafa réttindi ef hann gæti ekki keyrt sómasamlega heim til sín úr réttunum.
![]() |
Keyrir kannski miklu betur fullur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 29.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Englandsdrottning hefur þurft að taka að sér aukavinnu vegna kreppunnar
![]() |
Englandsdrottning í fúlu skapi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 27.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég skil næstum ekkert í þýsku, enda þarf þess ekki til að brosa að þessu
Spaugilegt | 26.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég spila stundum bridge á BBO (Bridge Base Online) Það er ókeypis að spila þar og margir góðir spilarar þar á ferðinni, en reyndar voðalega lélegir líka. En það er hægt að velja sér spilafélaga við hæfi, því með því að setja bendilinn á nafn þess sem er inni, þá sérðu ca. styrkleika hans, (þ.e. Beginner, Novice, Intermediate, Advanced, Expert og World Class) Einnig er hægt að sjá frá hvaða landi menn eru, því fáni viðkomandi heimalands, skreytir uppl.borðið. Sá sem er "Host" við spilaborðið hverju sinni, getur stjórnað því hverjir fá að spila við borðið og hann getur einnig sparkað mönnum út ef honum sýnist svo, en það gerist afar sjaldan að slíkt sé gert. Það er þá helst ef menn eru lengi að spila, eru dónalegir við borðið, eða villa á sér heimildir. T.d. með því að segjast vera Expert, en vera í raun Beginner.
Ég var að leita mér að lausu borði og sá þá sæti laust þar sem "Host" var frá Bretlandi. Ég smellti á lausa sætið og var hleyp inn. Ef maður smellir á annan hvorn andstæðinginn við borðið, þá er hægt að eiga "Private chat" við hann, en að sjálfsögðu ekki við makkerinn (samherjann). Ég stóðst ekki mátið og smellti á Bretann og sagði: "Beware, Im a terrorist" og setti broskarl fyrir aftan. Þá svaraði gaurinn: (á ensku auðvitað) "Já, ég veit! Fyrst stelið þið þorskinum okkar á 7. áratugnum og nú stelið þið peningunum okkar.
Ég sagðist nú vera saklaus af þjófnaði, en spurði hann svo hvernig við áttum að stela þorskinum "In our waters?" Þá sagði hann að að fiskurinn hrygndi við England en sveimaði svo norður á bóginn þegar hann stækkaði Þá sagði ég að einhver væri nú að ljúga þessu að honum. Hann svaraði eitthvað á þá leið að ég væri sjálfur þjófóttur lygari og svo vissi ég ekki fyrr en ég var farinn út úr spilinu. Karlhelvítið sparkaði mér út
Kæru samlandar, fariði varlegu elskurnar í samskiptum við Tjallana. Það er aldrei að vita hverju þeir kunna að taka upp á. En ég er að hugsa um að heimta bætur, þegar við tætum Tjallann í okkur fyrir dómstólum. Ég varð fyrir árás og leiðinda áreiti, og það er allt Brown/Darling að kenna
![]() |
Bretar selja eignir Landsbanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 24.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)

![]() |
Veitir Íslendingum ekki viðtal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 24.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eitthvað hljóp í tölvuna mína og ég var í tómu tjóni. Ég vissi að Rikki, 11 ára strákur sem býr við hliðina á mér er á kafi í tölvum og herbergið hans er eins og "Mission Control". Ég kallaði því í hann og bað hann að kíkja á tölvuna mína.. Rikki smellti á nokkra hnappa í Windows-inu og vandamálið var leyst. Þegar hann var að fara, spurði ég hann, "Hvað var að?"
Hann svaraði, "Þetta var bara ID tíu T error".
Ég vildi ekki líta út eins og asni, en ákvað að spyrja samt, "Og ID tíu T error er hvað?... ef ske kynni að ég þurfi að laga þetta aftur"
Rikki glotti.... "Hefurðu aldrei heyrt um ID tíu T error áður?
"Nei", svaraði ég.
"Skrifaðu það bara niður", sagði hann, "ég held að þú fattir það þá".
Svo ég skrifaði niður: I D 1 0 T
Ég kunni vel við strák kvikindið.
![]() |
Tölvuleikur frá Sony tefst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 21.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Allir kannast við hvað það getur verið erfitt að finna nafn á nýja barnið,
sérstaklega ef afarnir og ömmurnar hafa um það ákveðnar skoðanir...
En þá er ein góð hugmynd að skella bara saman tveimur nöfnum og svo
heppilega vill til að meiri hluti íslenskra nafna eru samsett úr tveimur
orðum: forskeyti og venjulegu nafni svo sem Ás-geir, Þor-kell, Guð-finnur
o.s.frv.
Í ljós kemur að þetta er mjög hreyfanlegt og má fá margar útgáfur, eins og
t.d. Guð-geir, Ás-kell, Þor-finnur o.s.frv.
Og nú skal taka nokkur dæmi:
Afi 1 heitir: Sturlaugur. Afi 2 heitir: Starkaður. Barnið er skírt:
Sturlaður
Skammkell ---------------- Eilífur -------------------Skammlífur
Ísleifur --------------- ------Sigurbjörn --------------Ísbjörn
Þjóðólfur ------------------ Konráð ----------------- Þjóðráð
Andrés------------------- - Eiríkur ------------------ Andríkur
Albert--------------------- Ársæll ------------------ Alsæll
Viðar---------------------- Jörundur --------------- Viðundur
Hringur---------------- - -- Guttormur ---------------Hringormur
Stórólfur------------------- Friðþjófur ----------------Stórþjófur
Nú, svo eru ýmsir möguleikar að slá ömmu- og afanöfnum saman:
Amman heitir: Kolfinna. Afinn heitir: Dagbjartur. Barnið er skírt:
Kolbjartur
Vilborg ---------------- Þórhallur --------------Vilhallur
Málfríður------------- Sigfús -------------------Málfús
Afinn heitir: Hákon. Amman heitir: Margrét. Barnið er skírt: Hágrét
Haraldur ------------------- Monika -----------------Harmonika
Kormákur ------------------- Albertína --------------Kortína

Spaugilegt | 16.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta eru Þeir Vasilín og Pensilín, nýskipaðir bankastjórar Seðlabankans. Þeir koma í fyrramálið á Illjusin einkaþotu.
Við bjóðum þá velkomna til starfa og megi gæfa fylgja ákvörðunum þeirra.
![]() |
Rússar fjalla um íslenskt efnahagslíf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 14.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 947078
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Amerísk fasistaskyggni fyrir Grindavík?
- Greta gyðingahatari.
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnasonar á sögulegum staðreyndum
- Viðurkennt í greinargerðinni
- Maí sem sumarmánuður?
- Vertíðin, strandveiðar og veiðigjöldin
- World Council for Health (WCH) styður kröfu um tafarlausa fjarlægingu mRNA-bóluefna
- MIKILL OG STERKUR VILJI TIL LANDRÁÐA HJÁ SAMFYLKINGU OG VIÐREISN...
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
- Breytt umræða í útlendingamálum
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Erlent
- Lirfur frá helvíti kostað milljónir
- Hermenn alls staðar ef mótmælin aukast
- Þrír á sjúkrahús eftir sprengingu
- Banna botnvörpuveiðar á 30.000 ferkílómetra svæði
- Hundruð þjóðvarðliða á götum Los Angeles
- Segir Rússa spila óheiðarlega pólitíska leiki
- Hótelverð hækkað um 50 prósent
- Lík Sinwars fannst undir sjúkrahúsi
- Skútan heldur ótrauð áfram
- 6,3 stiga skjálfti í Kólumbíu