Ásdís Rán, Brad Pitt og Shrek

asdis Ásdís Rán, Brad Pitt og Shrek snæddu hádegisverð saman um daginn. Shrek sagði: "Ég hef alltaf talið að ég sé sterkastur allra í heiminum, en hvernig get ég verið viss?"

brad Brad horfði hugsandi út í loftið og sagði: "Ég er nokkuð viss um að ég er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður á jörðinni, en ég hef aldrei fengið það staðfest".

Ásdís Rán varð einnig hugsi og sagði: "Mér er sagt að ég sé dásamlegust allra kvenna, en stundum efast ég".

Þau komu sér saman um að besta leiðin til þess að komast að sannleikanum væri að spyrja hinn fræga talandi spegil: "Spegill, spegill, herm þú mér....." images

Þau ákváðu að hittast aftur í hádegismat daginn eftir og bera saman bækur sínar. Þegar Shrek mætti var hann með breitt bros á andlitinu og sagði: "Spegillinn sagði að ég væri sterkastur allra í heiminum!"

Ásdís Rán var líka afskaplega glöð á svipinn og sagði: "Spegillinn staðfesti að ég er dásamlegust allra kvenna".

En Brad Pitt sat hljóður og niðurlútur við borðið, leit svo upp og sagði: "Hver í fjandanum er þessi Gunnar Th. Gunnarsson?".


mbl.is Ásdís Rán fékk 10 síður í Maxi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Góður....hehe

Kv. Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 31.10.2008 kl. 17:56

2 Smámynd: Ásdís Rán

Magnað! góður þessi

Ásdís Rán , 31.10.2008 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband