Færsluflokkur: Spaugilegt
Feministar eru hægt og bítandi að taka völdin. Það gerist bara svo hægt, að við tökum ekki eftir því. Hver hefur ekki heyrt konur gagnrýna okkur karlana fyrir að geta ekki gert tvennt í einu?
Svo eru femínistar búnir að hanna þessa inniskó handa körlum
Spaugilegt | 13.12.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fékk þetta í tölvupósti í dag
Til að lífga uppá gráan
hversdagsleikann og gera dagana meira
spennandi og
innihaldsríkari, er mælst til að þú
gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði
reglulega...
1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu
í honum með sólgleraugu. Miðaðu með
hárþurrku á bílana sem keyra framhjá.
Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss
kallkerfinu. EKKI reyna að breyta
rödd
þinni.
3. Stattu föst á því að netfangið
þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca
eða
Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
4. Hvert skipti sem einhver biður þig
að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má
bjóða þér franskar með þessu?"
5. Stilltu ruslafötunni upp á
skrifborðið með miða á sem
segir,,Inbox"
6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu
við prjónadót
7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu
kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru
búnir að losna við koffínfíknina,
fyllirðu á með espresso.
8. Á allar kvittanir skrifar þú;
Fyrir kynlífsþjónustu.
9. Ljúktu öllum setningum þínum með;
Samkvæmt spádómum.
10. Ekki nota punkta.
11. Hoppaðu í stað þess að ganga.
12. Spurðu fólk hvers kyns það sé.
Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur
svarað.
13. Taktu sérstaklega fram í
bílalúgusjoppunni að pöntun þín
sé,,taka með".
14. Syngdu með í óperunni.
15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu
afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
16. Hengdu flugnanet í kringum
skrifborð þitt. Spilaðu
frumskógarhljóð af diski alla daga.
17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum
fyrir partýið að þú komir ekki því þú
sért ekki alveg upplögð.
18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa
þig með Gladiator-nafni þínu,Rock
Hard.
19. Þegar peningarnir koma út úr
hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég
vann!!! Þriðja skiptið í þessari
viku!!!!"

Spaugilegt | 11.12.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég spila bridge einu sinni í viku og minn makker er verkfræðingur. Hér er einn fyrir hann.
Bjatsýnismaðurinn segir að glasið sé hálf fullt, svartsýnismaðurinn segir að það sé hálf tómt. Verkfræðingurinn segir að glasið sé helmingi stærra en það þurfi að vera.
Spaugilegt | 8.12.2008 (breytt kl. 18:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gúrka með "butt-plug" Nú leyfð í ESB...loksins
![]() |
Aflétta banni við bognum gúrkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 15.11.2008 (breytt kl. 00:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tekið af: http://www.tv1.is/hik/
![]() |
Enginn góður kostur í stöðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 13.11.2008 (breytt kl. 17:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við erum auðvelt skotmark núna og auðvelt að ljúga hverju sem er upp á okkur í Bretlandi. Breti sem ég ræddi við um daginn á alþjóðlegri bridge-vefsíðu, hélt því fram að Íslendingar hefðu stolið þorskinum frá Bretum í þorskastríðinu. Þegar ég bað um nánari skýringar á því þá sagði hann að þorskurinn á Íslandsmiðum hrigndi allur við strendur Englands en sveimaði svo eitthvað norður á bóginn þar sem við stálum honum svo.
Færeyingum dytti aldrei í hug að ljúga upp á okkur, enda eru þeir vinir okkar. Svo hafa þeir svo skemmtilegan húmor, eins og meðfylgjandi myndir sýna okkur
![]() |
Saka Íslendinga um ofveiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 10.11.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Spaugilegt | 9.11.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég minni á að komin er upp síða þar sem Íslendingar geta þakkað Færeyingum þann stórhug sem þeir sýndu okkur með því að verða fyrstir allra til þess að lána okkur fé eftir að bankakerfið hrundi. Ég hvet alla til að skrá sig á síðuna HÉR
![]() |
Hlýjar kveðjur frá Færeyingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 4.11.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég var með nokkrar myndir af McCain í pistli hér á undan, þar sem sagði í frétt að hann gerði grín að sjálfum sér. Jæja, hér eru nokkrar af Obama.
![]() |
Öruggasta forustan síðan 1996 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 3.11.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hitti gamla kærustu á bar um daginn. Við höfðum ekki sést í áraraðir og ég tók strax eftir því að hún var komin með miklu stærri brjóst en hún hefði haft þegar við vorum saman. Viðskilnaður okkar á sínum tíma var ekkert sérlega vinsamlegur, en við vorum þó kurteisin uppmáluð við hvort annað. Þegar ég hafði spjallað við hana í smá stund, þá stóðst ég ekki mátið og sagði kvikindislega við hana: "Ég sé að þú ert búin að fá þér ný brjóst". Hún skynjaði háðið en jánkaði þó athugasemd minni brosandi og reyndi að leyna gremju sinni .
Eftir nokkurra mínútna samræður og gagnkvæmar spurningar um fréttir af sameiginlegum vinum okkar frá þessum tíma, þá fannst mér eins og hún væri farin að daðra við mig. Hún horfði á mig með sínu seyðandi augnaráði, hallaði sér að mér og sagði lágt: "Gunni, vissirðu að það eru til þrjár tegundir af fullnægingu?".
"Nú, er það?", svaraði ég hálf vandræðalega
"Já, þessi jákvæða", hvíslaði hún... "þú veist: ... Ó, já, Ó, já, já. Svo þessi Guðdómlega: ...Ó Guð, Ó Guð. Og svo þessi feikaða: Ó Gunni... Ó Gunni. Hún horfði á mig nokkur andartök til þess að sjá svipinn á mér meðan ég var að meðtaka þetta, svo labbaði hún tígulega í burtu.
Helvítis tíkin.
![]() |
Bannað að sóla sig ber að ofan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 1.11.2008 (breytt kl. 22:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Vertíðin, strandveiðar og veiðigjöldin
- World Council for Health (WCH) styður kröfu um tafarlausa fjarlægingu mRNA-bóluefna
- MIKILL OG STERKUR VILJI TIL LANDRÁÐA HJÁ SAMFYLKINGU OG VIÐREISN...
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
- Breytt umræða í útlendingamálum
- Sögulegir tímar, söguleg stef: Höfum við ekkert lært?
- Almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er fjögur ár
- Alvarlegar aukaverkanir 5,3% ungbarna í klínískri rannsókn MenQuadfi við meningókokkum
- Þvert á aðrar reglur
- Herratíska : BRUNELLO CUCINELLI um hásumar
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Erlent
- Lirfur frá helvíti kostað milljónir
- Hermenn alls staðar ef mótmælin aukast
- Þrír á sjúkrahús eftir sprengingu
- Banna botnvörpuveiðar á 30.000 ferkílómetra svæði
- Hundruð þjóðvarðliða á götum Los Angeles
- Segir Rússa spila óheiðarlega pólitíska leiki
- Hótelverð hækkað um 50 prósent
- Lík Sinwars fannst undir sjúkrahúsi