Færsluflokkur: Spaugilegt

Frelsisþróun

Tæknin sparar okkur sporin.

Konan sem stendur við þvottavélina er grönn og spengileg

492329

Tækniþróunin virðist ekki fara eins vel með okkur sófa-íþróttamennina

BWExbQSbTgAtRE4E7j

Ég man hvað ég var stoltur þegar ég rogaðist með 28 tommu Sony-tækið með hjálp vinar míns, inn í stofuna heima hjá mér, árið 1998

 


mbl.is Þvottavélin frelsaði konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun - formannskjör

funny_t_shirt_in_politic_its_a_-p235156741720239873cbi9_125

Endilega takið þátt í nýrri skoðanakönnun!

Þegar Jón Baldvin tilkynnti framboð sitt til formanns Samfylkingarinnar, þá startaði ég skoðanakönnun hér á bloggsíðu minni. Nú þegar Ingibjörg Sólrún hefur dregið sig í hlé, þá er þessari könnun sjálfhætt. Niðurstaða minnar könnunar er samhljóða Gallup-könnun nýlega og mér þykir ekki ólíklegt að Ingibjörg hafi tekið ákvörðun sína út frá skoðanakönnun. Það er í samræmi við allar ákvarðanir Samfylkingarinnar.

1217170093jAumimQ

Ég óska Ingibjörgu Sólrúnu góðs bata í veikindum sínum.

Hér er niðurstaðan úr minni könnun:

Spurt er:

Hver verður næsti formaður Samfylkingarinnar?
Ingibjörg Sólrún 36,9%
Jón Baldvin 15,5%
Hvorugt 47,6%
84 hafa svarað

 


mbl.is Ingibjörg Sólrún hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þá fór allt í bál og brand

happy-hooker22ðasta laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega, útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr. Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn, klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í kroppinn hvíslaði ég að henna, “ Það er brjálað veður úti”. Elskuleg konan mín til 10 ára svaraði strax,” Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri”

Og þá fór allt í bál og brand…..  

 

Stærðin skiptir máli

En stundum er betra að hafa hann minni

!cid_image002_jpg@01C83E33


Játningin

Gamall maður gekk in í kaþólska kirkju og fór rakleiðis til skrifta. Eftirfarandi samtal átti sér stað:

Maðurinn: Ég er 92 ára gamall, ég er giftur yndislegri 70 ára gamalli konu, við eigum mörg börn, barnabörn og barnabarnabörn. Í gær tók ég tvær kornungar háskólastúlkur upp í bílinn hjá mér, þær stóðu í vegkantinum og voru að húkka sér far. Við fórum á hótel og ég hafði kynmök við þær, þrisvar sinnum við hvora.

Presturinn: Iðrastu synda þinna?

Maðurinn: Hvaða synda?

Presturinn: Úr hvaða deild kaþólsku kirkjunnar ertu?

Maðurinn: Ég er lútherskur

Presturinn: Hví eru þá að segja mér þetta?

Maðurinn: Hey, ég er 92 ára....ég er að segja öllum þetta!

 

monk_nun

The Monk and the Nun
1591
Oil on canvas
Frans Halsmuseum, Haarlem


Ef ég væri giftur Britney Spears

hárþurrkan

Þetta er nú kannski svolítið nasty hjá mér Errm


mbl.is Spears fer fram á nálgunarbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þröngar buxur

Þröngar buxur geta verið flottar á fallegum líkama. Sumum finnst svokölluð "cameltoe" á konum vera sexý. En finnst einhverjum þessi á myndinni sexý? Einhverjum homma kannski? Konunum í vinnunni hjá mér fannst þetta fyndið. Engin minntist á sexý. Grin

Heimsins þrengstu gallabuxur


"Hryllilegt myndband - ekki fyrir viðkvæma!"

Jens Guð setur hlekk inn á bloggi sínu á eitt skelfilegasta myndband sem ég hef séð um dagana. Hann varar að vísu við þessu í fyrirsögn sinni, þeirri sem ég hef á þessari færslu. Ég hætti að horfa á myndbandið þegar um þriðjungur var búinn að því, en samkvæmt ritaðri lýsingu á síðunni þá var nóg eftir af voðaverkinu.

Jæja, hér kemur smá mótvægi gegn þessum viðbjóði. Góða skemmtun Smile


Súr og skrítin á bragðið

milkbeer


mbl.is Brjóstamjólkin súr og skrýtin á bragðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan mín skilur mig

lichtenstein_silent"...ef tveimur manneskjum sé ætlað að vera saman eigi þær að þekkja hug hvors annars án orða".

Er það ekki einmitt þetta sem "The silent treatment" gengur út á? Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu Joyful


mbl.is Rómantískar gamanmyndir varasamar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband