Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stóra fréttin er fylgi vinstriflokkanna

17% hjá Samfylkingunni og 13% hjá VG eru heil 30%! FootinMouth

Þó þessi blessaða helferðarstjórn sé með allt niðrum sig á öllum sviðum, þá fá flokkar hennar samt 30% fylgi í skoðanakönnuninni. Shocking

Það er ekki lifandis nokkur leið að botna í þessari þjóð. Errm


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hatursfullir vinstrimenn

Vinstrisinnaðir netdólgar hafa farið hamförum vegna viðbragða Haraldar Johannessen við beiðni ríkisendurskoðandans Sveins Arasonar, um að afhenda gögn um viðskipti ríkislögreglustjóra við RadíóRaf.

Netdólgarnir halda því fullum fetum fram að Haraldur hafi NEITAÐ að afhenda gögnin. Engu skiptir þó dólgunum sé bent á það svart á hvítu að Haraldur hefur ekki neitað að afhenda gögnin, heldur einungis farið fram á að Sveinn Arason víki úr stóli ríkisendurskoðanda í þessu máli. Í bréfi innanríkisráðuneytisins 30. nóv. sl. til ríkislögreglustjóra sést þetta skýrt.

Untitled2

Beiðni Haraldar er eðlileg í ljósi offorsins sem Sveinn sýndi, þegar hann gagnrýndi kaup ríkislögreglustjóraembættisins á neyðarútbúnaði lögreglunnar án útboðs, vegna ofbeldisskrílsins í búsáhaldabyltingunni svo kölluðu. Eftir að Ögmundur innanríkisráðherra hafði lagst yfir málið, komst hann að þeirri niðurstöðu að ekkert hefði verið athugavert við verklag ríkislögreglustjóra vegna kaupanna.

Maður spyr sig hvort Sveinn Arason sé í einhverri sérstakri herferð gegn Haraldi Johannessen. Hefur Sveinn einhverjar pólitískar tengingar í stjórnarflokkana?


mbl.is Fer yfir svör ríkislögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svavar haldi námskeið fyrir VG um Icesave

VG- liðar mega ekki vera eftirbátar Samfylkingarinnar í pólitískri greiningu. Það væri sterkt útspil hjá þeim ef Svavar Gestsson héldi fyrir þá námskeið um Icesave-samningana. Happy
mbl.is Námskeið um Rannsóknarskýrsluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún hefur ekki VG-lúkkið

589930Þessi stelpa hefur ekki VG-lúkkið. Errm Hún hefur skorið sig verulega úr í hópi kynsystra sinna í flokknum.... segi ekki meir Joyful

feminist


mbl.is Segir sig úr VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn, hættu nú alveg

Ég er sammála Birni Bjarnasyni í flestum málum en ekki í þessu. Þeir hægrimenn sem andskotast í Samfylkingunni í þessu máli, eru sjálfum sér ósamkvæmir og markmið þeirra virðast eingöngu snúast um það að gera Samfylkinguna tortryggilega.

bjbjpallvEngin rök eru færð fyrir því að ekki megi skoða hvað Huang Nupo ætlast fyrir. Páll Vilhjálmsson bloggar eins og geðsjúklingur sem reitir hár sitt í angist og örvinglan yfir hugsanlegri erlendri íhlutun. Hann segir á bloggi sínu:

"...núna er það rauði dregillinn fyrir kínverskan kommúnista sem er heimsvaldasinni í dularklæðum ljóðskálds."

... og einnig:

"Í ljósi þessi að kínverski kommúnistinn er nánast í fjölskyldutengslum við æðstaráð Samfylkingarinnar er eðlilegt að spyrja um þá sem þiggja greiðslur fyrir að ganga erinda þykjustuljóðskáldsins"

Björn Bjarnason tekur undir þennan söng. Mér verður óglatt af svona málflutningi. Svona viðbjóður passar betur við  VG en komandi frá mínum eigin flokksmönnum veldur mér miklum vonbrigðum. Undecided


mbl.is Björn: Hversu langt gengur Samfylkingin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG vill afnema eignarréttinn

st.j.s.„Megi þetta verða vísir þess sem koma skal, að eignarhald á jarðnæði verði úr höndum auðmanna, hverrar þjóðar sem þeir eru, og að einkaeignarhald á jarðnæði heyri almennt sögunni til," segir í tilkynningu frá stjórn Vinstri grænna.

Þar höfum við það, góðir hálsar.... grímulaust.

Örlítið hundraðshlutfall (innan við 5%) hverrar þjóðar er þannig innréttað, að það trúir því í raun að einkaeign sé af hinu illa. Þetta fólk er vissrar manngerðar og því verður ekki breytt. Kjósendur VG eru hins vegar mun fleiri en þetta öfgafólk. Errm


mbl.is Lýsa ánægju með Ögmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur hefur óbeit á einkaframtaki

"Afstaða Ögmundar byggist á því að hann hefur óbeit á einkaframtaki, athafnasemi og öllu því sem fjármagn í höndum einkaaðila getur komið í kring. Haftahugsunin skín í gegn. Forræðishyggjan blasir við." http://deiglan.com/index.php?itemid=13529 
mbl.is „Þessi stjórnsýsla er með ólíkindum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndu úr hverju þú ert gerð, Jóhanna!

Þetta mál á að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. (Skoðanakönnun hér til hliðar)

Ráðuneytið fór vandlega yfir þetta mál og tók sér hæfilegan tíma til þess, að sögn Ögmundar. En þetta var bara leikrit hjá Ögmundi; hann tók þá ákvörðun strax að heimila ekki söluna. Hver sá þessa niðurstöðu ekki fyrir? Woundering

Nú er lag fyrir Jóhönnu. Ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar eru andvígir ákvörðun Ögmundar. Ætla þeir að láta einræðistilburði VG- ráðherra valta yfir sig?


mbl.is Andvíg ákvörðun Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðsla er hinn nýi sparnaður

Fólk sem á einhverja peninga aflögu eftir að drjúgur hluti launanna hefur farið í skuldir, leitar logandi ljósi að hlutum til að eyða þeim í, því vinstri helferðarstjórnin hefur búið þannig um hnútana að fólk tapar á því að spara.

Gamla máltækið "Græddur er geymdur eyrir"stenst ekki á Íslandi í dag, þrátt fyrir að bankakerfið bjóði upp á verðtryggða sparireikninga með vöxtum. Flestum þykir eðlilegt að fjármagnstekjugróði sé skattlagður en vinstrimenn hafa afbrigðilegar hugmyndir um skatthlutfall eins og flestir ættu að vera farnir að átta sig á. Yngri kjósendum er að vísu vorkunn því þeir höfðu aldrei reynt á eigin skinni að hafa vinstrimenn ofan í veskinu sínu.

"Verðtrygging"  á sparireikningi er samkvæmt orðanna hljóðan trygging þess að peningarnir rýrni ekki vegna verðbólgu svo þeir hreinlega hverfi ekki. Þess vegna er verðtrygging ekki tekjur, það hljóta allir að sjá það. En vinstrimönnum hugnast ekki að fólk eigi peninga á sparireikningi og þess vegna skattleggja þeir verðtrygginguna um 20%!  ... ekki bara vextina, heldur verðtrygginguna líka.

peningarÉg velti því fyrir mér hvort þetta sé ekki hreinn þjófnaður. Bankakerfið býður fólki upp á að verjast verðbólgunni en ríkisvaldið undir forystu vinstrimanna, hinni hreinu tæru vinstri velferðarstjórn, seilist í aurana sem þegnar þjóðfélagsins öngla saman með striti sínu. Launaþrælunum dugar ekki að koma aurum sínum í skjól fyrir verðrýrnun. Krumla Steingríms J. Sigfússonar hirðir aurinn. Crying

Það er því ekkert skrítið að fólk flýti sér að eyða hinum grædda eyri, því annars tapar það honum. Og pælið í því; þið "græðið" meira á því að skeyna ykkur á peningaseðlunum ykkar, frekar en að geyma þá á verðtryggðum sparireikningi!

Þökk sé hinni Norrænu vinstri velferðarstjórn.


mbl.is Nýtt met í Boston-ferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hann ekki alfarið vanhæfur sem ríkisendurskoðandi?

Svein Arason, ríkisendurskoðandi, er tengdur fjölskylduböndum einum æðsta yfirmanni ríkisins. Stofnun Sveins sér um endurskoðun ríkisreikninga. Einhver myndi segja að Sveinn ætti alls ekki heima í embætti sínu. Errm
mbl.is Kallaður fyrir nefndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband