Sýndu úr hverju þú ert gerð, Jóhanna!

Þetta mál á að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. (Skoðanakönnun hér til hliðar)

Ráðuneytið fór vandlega yfir þetta mál og tók sér hæfilegan tíma til þess, að sögn Ögmundar. En þetta var bara leikrit hjá Ögmundi; hann tók þá ákvörðun strax að heimila ekki söluna. Hver sá þessa niðurstöðu ekki fyrir? Woundering

Nú er lag fyrir Jóhönnu. Ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar eru andvígir ákvörðun Ögmundar. Ætla þeir að láta einræðistilburði VG- ráðherra valta yfir sig?


mbl.is Andvíg ákvörðun Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefur þjóðin eitthvað verið spurð? Gera þarf ítarlegar skoðanakannanir. Er hræddur um að ansi margir séu sammála Ögmundi sama hvar í flokki þeir standa. Höfum við ekki lært eitthvað af hruninu? Getur maðurinn ekki keypt þá spildu sem þarf undir X mikla starfsemi og fengið síðan ókeypis aðgang að landinu eins og landsmenn og ferðamenn?

Sveinn (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 17:03

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er alveg sjónarmið, Sveinn. Ég gæti vel samþykkt þessa hugmynd.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 17:16

3 identicon

Sjalla- og Samfóbjálfarnir eru svo miklir materialistar að þeir mundu selja ömmur sínar fyrir nokkrar ónýtar ISK. Þetta lið er svo handónýtt og svo hallærislegt, að maður hlýtur að endurtaka þá áskorun til unga fólksins hér á skerinu að flytja til útlanda, í lengri eða skemmri tíma, og leyfa heildsölum, lögfræðingum og nytsömum sakleysingjum, eins og Gunnari Th.,  að vera “unter sich” í nokkur ár.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 17:25

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Það er ekki hægt að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um lögbrot. Svona eru bara lögin. Nú verður Kristján Möller bara að ættleiða Nubo, nú eða Hjörleifur og Ingibjörg. Svo getur hann bara líka leigt landið.

Einar Guðjónsson, 25.11.2011 kl. 17:36

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er ekki lögbrot að beita undanþáguákvæði ... sem er í lögum.

Ögmundur sjálfur impraði á því 15. sept. sl. að til greina kæmi að setja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2011 kl. 19:57

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með Hauki.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2011 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband