Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

![]() |
73,7% sögðu já í Reykjavík norður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.10.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þetta var ein af kröfum búsáhaldabyltingarinnar og vinstrimenn sem verið höfðu í stjórnarandstöðu svo lengi sem elstu menn mundu, tóku undir hugmyndina í aðdraganda síðustu kosninga. Allt átti að vera opið og gegnsætt og vinstrimenn sópuðu að sér fylgi. Hugmyndin var auðvitað óraunsæ eins og Sjálfstæðismenn bentu á.
"Allt opið og gegnsætt" var slagorð vinstrimanna fyrir síðustu kosningar. Slagorðið er í dag argasta öfugmæli, eins og mýmörg dæmi á kjörtímabilinu bera vitni um.
"Lygar og leynimakk" hefði verið heiðarlegra slagorð.
![]() |
Hætt verði við að hljóðrita fundina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 16.10.2012 (breytt kl. 11:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég nota ekki áfengi eða aðra vímugjafa, það er mitt val. Ég er hlynntur forvarnarstarfi í áfengis og vímuefnamálum, líkt og ég er hlynntur forvörnum í umferðarmálum, eineltismálum og mörgu fleiru.
Ég sé hins vegar ekkert forvarnargildi í því að banna auglýsingar á löglega framleiddum vörum. Fyrir mörgum er léttvín og bjór hluti matarmenningar og framleiðendur vörunnar eiga auðvitað að fá að auglýsa kosti vöru sinnar.
10-15% mannfólksins kunna eða geta ekki umgengist vín sér og sínum að meinalausu. Einhverjir viskubrunnar telja að lækka megi þetta hlutfall með því að banna að auglýsa áfenga drykki og Maltið, sem gefur hraustlegt og gott útlit og bætir meltinguna er þar meðtalið.
Mér finnst öðru máli gegna um auglýsingar á tóbaki. Ég sé engan menningarauka í tóbaksreyk og varla heldur nokkur maður því fram sem reykt hefur reglulega í langan tíma að tóbakið hafi ekki haft skaðleg áhrif á sig og ALLIR sem reykja reglulega eru háðir tóbaksfíkn. Það á ekki við um áfengið.
Ég get vel séð fyrir mér, í ekki svo fjarlægri framtíð að heimsbyggðin sameinist um að útrýma tóbaksfíkn. Ég sé hins vegar ekki fyrir mér að reynt verði að taka áfengi slíkum tökum. Það var reynt á bannárunum með skelfilegum afleiðingum.
![]() |
Bjór verður malt með lagabreytingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 7.10.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"...the attempt to criminalise Mr Haarde had clearly backfired against Icelands political class and had left a bad aftertaste."
Kjósendur refsa stjórnmálamönnum ef þeir gera pólitísk mistök og það gerðu þeir svikalaust í síðustu kosningum.
Tilraun vinstrimanna að gera glæpamann úr Geir Haarde er eitt mesta hneyksli íslenskrar stjórnmálasögu og mun verða óafmáanlegur blettur á ferilskrá Samfylkingar og Vinstri Grænna.
Refsing kjósenda vofir yfir þessum flokkum eftir ítrekuð axarsköft á kjörtímabilinu.
![]() |
Málið gegn Geir misheppnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.10.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)

![]() |
Stefnir á 2. sætið í NA-kjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.9.2012 (breytt kl. 16:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
..... fyrir andstæðinga Samfylkingarinnar.
Þó er aldrei að vita... hvað þeim tekst að draga upp úr hatti sínum sem skrautfjöður flokksins. Það er úr mörgum tætingslegum fjöðrum að velja.
![]() |
Jóhanna ætlar að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 27.9.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Steingrímur og Jóhanna guma af árangri sínum, m.a. í atvinnumálum. Staðreyndin er auðvitað sú að ríkisstjórnin gerir ógagn á flestum sviðum atvinnulífsins. Einu ástæður minnkandi atvinnuleysis á undanförnum misserum er landflótti, aukinn ferðamannastraumur og makríll, í þessari röð.
Ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu gerir atvinnulífinu erfitt fyrir með skattastefnu sinni. Hún fælir frá nýsköpun og erlenda fjárfestingu. Hún tók rammaáætlun úr faglegum farvegi og setti hann í pólitískan, með þeim afleiðingum að þjóðin getur ekki nýtt raforkuauðlindir sínar. Það er sérstaklega slæmt við þessar aðstæður.
Ég tel niður lífdaga þessarar óstjórnar, eins og krakki sem telur dagana til jóla.
![]() |
Atvinnuleysi mælist 5,8% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 19.9.2012 (breytt kl. 12:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þuríður Backman, þingmaður Austfirðinga, vildi hætta við framkvæmdirnar við Kárahnjúka þegar þær voru vel á veg komnar. Hún sagði að þó búið væri að setja yfir 50 miljarða í verkefnið, þá væri ekki of seint að hætta við.
Í aðdraganda framkvæmdanna var hún spurð út í þetta "eitthvað annað" sem flokksfélögum hennar var svo tíðrætt um að gera mætti í stað virkjunarinnar. Þegar hún nefndi fjallagrasatínslu, héldu einhverjir að um létt spaug væri að ræða hjá þingkonunni. En svo var ekki.
Þegar hún sá að sennilega þyrfti meira til en fjallagrasatínslu, bætti hún í og nefndi svepparækt á Héraði. Þá var henni bent á að nánast öll svepparækt á landinu væri stunduð á Flúðum, besta hugsanlega stað á Íslandi með tilliti til orku og nálægðar við markaði. Þrátt fyrir það hefðu svepparæktendur oft og tíðum barist þar í bökkum. Hvernig gæti þá verið raunhæft að rækta sveppi á landsvæði sem ekki hefði jarðhita og eins langt frá markaði og hugsast gat?
Hún svaraði þessu engu.
![]() |
Þuríður hættir á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 11.9.2012 (breytt kl. 13:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skattar eru ær og kýr vinstrimanna. Því meira til vinstri, því meiri skattar.
Hagnaður og arður er af hinu illa og það eru bara vondu karlarnir sem "græða". Engu skiptir þó innkoma í ríkissjóð minnki við meiri skattlagningu, svo framarlega að hægt sé að koma í veg fyrir "gróða". Þegar vinstrimenn fjalla um hagnað fyrirtækja, þá nota þeir orðið "gróði", því þeim finnst skammarlegur blær yfir því orði og þegar orðið skreppur út milli vara þeirra, fylgir gjarna gretta með.
Ásmundur Einar var í VG. Vissi hann þetta ekki?
![]() |
Högg á högg ofan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.8.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú mjálma villikettirnir. Láta þeir hóta sér?...kúga sig?
Litla skrýtna samfó-kannan HÉR er lítil myndasaga sem ég sá á facebook. Smellið á myndina
![]() |
Viðræðuslit leiddu til stjórnarslita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 27.8.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 946924
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Viðbótarerindi nr. 5 til Umboðsmanns Alþingis
- Fullt af illa gefni fólki
- Sex árum eftir innrásina
- Minningar vegna páfakjörs
- Heimsmarkmiðin og The Great Reset - tvær hliðar á sömu mynt?
- Þögnin ein
- Nokkur orð um norræn svik og Natóþjónustu !
- Sýndargæska íslenskra yfirvalda.
- Þýðir ekki að keyra vindmylluorkuver í gegn ef Landsnet uppfærir ekki flutningsnetið
- Það vill þetta enginn
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Fólk
- Vilja ekki sjá tónlist notaða til að hvítþvo glæpi gegn mannkyni
- Smokey Robinson sætir ásökunum um kynferðislega áreitni
- Björk verðlaunuð í Cannes
- Kom út úr skápnum 83 ára gamall
- Handtekinn fyrir utan heimili Aniston
- Hegðun þeirra hefur verið skelfileg
- Rómantíkin sveif yfir vötnum
- 39 þrep á leið í Þjóðleikhúsið
- Táraðist þegar hún sá Justin Bieber
- Ný málverk afhjúpuð í tilefni af tveggja ára krýningarafmæli
Íþróttir
- Viss um að pabbi sé mjög ánægður
- Fyrsta mark Þórs Willumssonar
- Eiga úrslitaleikirnir að vera fleiri?
- Landsliðskona í raðir Fram
- Sviptingar í formúlunni
- Kvennamót enn og aftur á asnalegum tíma
- Félag Martins yfirgefur EuroLeague
- Fer væntanlega í stærra félag
- Bestur í fimmtu umferðinni
- Mikið áfall fyrir andstæðinga United