Bara hjá öðrum en ekki hjá okkur

Þetta var ein af kröfum búsáhaldabyltingarinnar og vinstrimenn sem verið höfðu í stjórnarandstöðu svo lengi sem elstu menn mundu, tóku undir hugmyndina í aðdraganda síðustu kosninga. Allt átti að vera opið og gegnsætt og vinstrimenn sópuðu að sér fylgi. Hugmyndin var auðvitað óraunsæ eins og Sjálfstæðismenn bentu á.

"Allt opið og gegnsætt" var slagorð vinstrimanna fyrir síðustu kosningar. Slagorðið er í dag argasta öfugmæli, eins og mýmörg dæmi á kjörtímabilinu bera vitni um.

"Lygar og leynimakk" hefði verið heiðarlegra slagorð.


mbl.is Hætt verði við að hljóðrita fundina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Já... það er nefnilega svo að þeir sem að nú "stjórna" hafa nefnilega haft í frammi um tveggja áratuga skeið uppí-og frammíköll sem síðan sannast hvert af öðru að voru aðeins óábyrgt hjal.

Þegar á hólminn er svo komið er gott að gera hlutina... SEINNA.

Óskar Guðmundsson, 16.10.2012 kl. 12:01

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, það virðist málið

Gunnar Th. Gunnarsson, 16.10.2012 kl. 14:06

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

Og gerðist náttúrulega hjá hægri öflunum í stjórnarandstöðu.

http://www.youtube.com/watch?v=LmYYTC8h3Oc

LOL :) Bjálkinn og flísinn og allt það.

Pétur Kristinsson, 20.10.2012 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband