Fer hún í svepparækt?

Þuríður Backman, þingmaður Austfirðinga, vildi hætta við framkvæmdirnar við Kárahnjúka þegar þær voru vel á veg komnar. Hún sagði að þó búið væri að setja yfir 50 miljarða í verkefnið, þá væri ekki of seint að hætta við.

Í aðdraganda framkvæmdanna var hún spurð út í þetta "eitthvað annað" sem flokksfélögum hennar var svo tíðrætt um að gera mætti í stað virkjunarinnar. Þegar hún nefndi fjallagrasatínslu, héldu einhverjir að um létt spaug væri að ræða hjá þingkonunni. En svo var ekki.

Þegar hún sá að sennilega þyrfti meira til en fjallagrasatínslu, bætti hún í og nefndi svepparækt á Héraði. Þá var henni bent á að nánast öll svepparækt á landinu væri stunduð á Flúðum, besta hugsanlega stað á Íslandi með tilliti til orku og nálægðar við markaði. Þrátt fyrir það hefðu svepparæktendur oft og tíðum barist þar í bökkum. Hvernig gæti þá verið raunhæft að rækta sveppi á landsvæði sem ekki hefði jarðhita og eins langt frá markaði og hugsast gat?

Hún svaraði þessu engu.


mbl.is Þuríður hættir á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn

Ég varð að lesa þetta blogg útfrá fréttinni.

En mikið rosalega er þetta þurrt hjá þér :D

þangað til næst

Kveðja Davíð

Davíð (IP-tala skráð) 11.9.2012 kl. 14:34

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Það má ekki gleyma lopapeysuprjónaskap sem átti að bjarga konum frá atvinnuleysi. Allavega tóku Kínverjar þá hugmynd upp...!!!

Mbkv, Björn bóndi =:o)>

Sigurbjörn Friðriksson, 12.9.2012 kl. 15:27

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Viltu hafa þetta meira djúsí?

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.9.2012 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband