Færsluflokkur: Bloggar
Ég fór með bílinn á verkstæði í dag til að skipta um bremsuklossa að aftan. Í leiðinni lét ég athuga bilanameldingu sem kemur þegar ég set lykilinn í svissinn, segir eitthvað um "steering wheel lock" og mælaborðið pípir á mig. Ég starta og bíllinn fer í gang en drepur svo strax á sér. Ég tek svisslykilinn úr og set hann í aftur, set í gang og þá er allt í lagi. Þetta gerist bara einstöku sinnum, helst þegar bíllinn er kaldur.
Það þarf að tengja bílinn við sérstakan bilanagreini (tölvu) sem les úr svona skilaboðum á örskömmum tíma. Niðurstaðan var sú að stýrislæsingin var ekki biluð, heldur skynjari sem segir til um hvort hún sé ekki örugglega í lagi. Skynjarinn kostar 50 þúsund krónur og svo kostar einhverja formúgu að taka gamla skynjarann úr og setja þann nýja í.
Verkstæðismaðurinn sagði að það borgaði sig að panta nýjan skynjara fljótlega því hann gæti farið alveg og þá væri ég í töluverðum vandræðum því ekki yrði hægt að draga bílinn á verkstæði vegna þess að þegar skynjarinn gæfi endanlega upp öndina, þá myndi stýrið læsast og ég yrði að fá kranabíl til að flytja bílinn.
Bilanagreiningin kostaði mig 7.212 krónur.
Bloggar | 11.10.2012 (breytt kl. 02:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Á vef Austurgluggans, http://agl.is/ má sjá þetta kort af því hvar hreindýrin veiðast eystra. 13 dýr náðust ekki af úthlutuðum kvóta.
Bloggar | 3.10.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ríkisendurskoðandi og fjársýslustjóri hafa komið afar illa út í viðtölum í þessu hneiksli um kaup á hugbúnaði fyrir bókhald ríkisins. Nú er ég enginn æskudýrkandi varðandi fólk á vinnumarkaði, en þessir kallar eru rykfallin möppudýr og greinilega of gamlir fyrir störf sín.
Það þarf að "upgrade-a" þessar stöður og fá fríska menn sem hafa getu til að takast á við verkefni 21. aldar. Ef þeir segja ekki upp sjálfviljugir, þá á að reka þá eða a.m.k. lækka þá í tign og setja þá í verkefni sem þeir ráða sæmilega við.
![]() |
Ríkisendurskoðandi: Dylgjum vísað á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.9.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í ákúrulið svarbréfs Ríkisendurskoðunar segir: "Þess má raunar geta að tölur þær sem nefndar voru í umfjöllun Kastljóssins er að finna í fjárlögum og ríkisreikningi og hafa því lengi verið opinberar upplýsingar."
Mér finnst Ríkisendurskoðun bíta höfuðuð af skömminni með þessari athugasemd. Það má vera að tölurnar (upphæðin) hafi verið opinber, en en í dimmu skúmaskoti lá sú staðreynd að verið var að borga rekstrarútgjöld fyrir bókhaldshluta sem ekki hafði verið afhentur.
Hér er um sakamál að ræða, ekki nokkur spurning og Ríkisendurskoðun á að hafa réttarstöðu sakbornings fyrir yfirhilmingu.
![]() |
Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.9.2012 (breytt kl. 12:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég var 12 ára gamall árið 1972 og man vel eftir umræðum manna á meðal um hið nýja leynivopn Landhelgisgæslunnar, "klippurnar.
Miklar spekúlasjónir voru um hvernig þær væri úr garði gerðar, en Gæslan leyfði ekki myndatökur af verkfærinu fyrr en einhverjum árum eftir "stríð". Flestum kom á óvart hversu einfaldar þær voru.
"Tæknin, sem notuð var við klippingarnar, var hugmynd Péturs Sigðurssonar forstjóra Landhelgisgæslunnar frá því þegar Íslendingar færðu landhelgina út í 12 mílur. Aldrei var þó klippunum beitt á þeim tíma. Tilraunir með togvíraklippurnar voru gerðar á varðskipunum Ægi og Maríu Júlíu seint á árinu 1958 og lauk þeim rétt fyrir áramót. Þá þótti fullreynt að klippurnar dygðu til þess að klippa sundur togvíra á svo miklu dýpi að ekki yrði tjón á skipi eða slys á mönnum. Klippurnar, sem eru í raun fjórir hnífar, voru dregnar þvert yfir togvíra veiðiþjófanna og skáru vírana í sundur." ( http://www.lhg.is/sagan/klippurnar/ )
![]() |
40 ár frá því klippunum var fyrst beitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.9.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður veltir upp spurningu á facebook-síðu sinni:
"...finnst engum athugavert að safna börnum og unglingum kerfisbundið saman á afskekktri eyju í þeim tilgangi að innræta þeim tiltekna flokkspólitíska stjórnmálaskoðun????"
Einhverjir í athugasemdarkerfinu fullyrða að samkomur SUS séu af sama meiði, sjá hér. Ég veit ekki til þess að SUS haldi pólitískar sumarbúðir fyrir börn á fermingaraldri.
Árni Snævar vill þagga niður í svona vangaveltum og æskir þess við Tryggva að hann taki þetta út. Fleiri tjá sig á facebook og telja að kominn sé tími til að Tryggvi hætti þingmennsku, væntanlega vegna þess að hann dirfist að nefna þetta. Mér finnst eðlilegt að fólk velti þessu fyrir sér.
ps. Athugasemdir í hneikslunartón, hrúgast inn á fésbókarsíðu Tryggva. Af hverju má ekki spyrja þessarar spurningar?
![]() |
Loksins hægt að horfa fram á við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.8.2012 (breytt kl. 22:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Í fréttum frá þessum mönnum sem syntu þetta sund, tala þeir stöðugt um hákarla á svæðinu. Væntanlega vita þessir menn ósköp vel að engri hættu stafar af þeim, einfaldlega vegna þess að þeir eru ekki á svæðinu. Það er hallærislegt af þessum mönnum að ljúga þessu í fjölmiðla og dæmigert fyrir íslenska fjölmiða að kokkgleypa lygina án þess að athuga málið á nokkurn hátt.
Fangelsisyfirvöld á Alcatraz sögðu "vistmönnum" að hákarlar væru á sveimi við eyjuna til þess að fæla þá frá því að reyna að synda burt frá eynni. Straumar eru hins vegar gríðarlegir en þessi nútíma sundviðburður er tímasettur m.t.t. strauma og með það í huga að sem flest vel synt fólk geti þreytt sundið. Börn innan við fermingu hafa lokið sundinu.
Fréttir frá þessum sundgörpum er íslenskt karlagrobb af verstu sort.
![]() |
Hittu enga hákarla á leiðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.7.2012 (breytt kl. 22:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég var í San Francisco í mars 2011 og heimsótti Alcatraz. Ógleymanleg upplifun og bloggaði ég um það með fullt af myndum, sjá HÉR
Þetta Alcatraz-sund mun vera árlegur viðburður með miklum fjölda þátttakenda. Yngsti sundmaðurinn sem lokið hefur sundinu var 10 eða 12 ára gamall. Sundið er tímasett m.t.t. sjávarfalla þannig að varla verða straumar til mikilla vandræða, eins og íslenski sundmaðurinn segir að gæti orðið.
Sömuleiðis eru engir hákarlar þarna, en fangelsisyfirvöld lugu því að föngunum þegar þeir komu til eyjarinnar, svo þeir reyndu síður að flýja á sundi. Straumarnir eru hins vegar gríðarlegir og því þarf að sæta lagi með tímasetningu sundsins. Sjórinn er einnig kaldur miðað við breiddargráðu staðarins.
Horft út í fangelsisgarðinn í Alcatraz
![]() |
Fagna afmæli á flótta frá Alcatraz |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þóra sagðist fulltrúi sameiningar og sátta.
Þjóðin sá greinilega í gegnum falsið
![]() |
Þóra: Viðbrögð RÚV léleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 21.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"... kom það hjónunum á óvart að verið væri að leita að þeim."
Mér sýnist á þessu að einhver hafi verið full bráður á sér að kalla út leitarflokka. Svona útkall kostar mikla peninga og sjálfboðaliðar í björgunarsveitum fara úr vinnu til leitar og þyrla kölluð út.
Það á að skylda hálendisfara til að leigja GPS tæki svo hægt sé að fylgjast með ferðum þeirra.
![]() |
Hjónin fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 947071
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Vantar upp á lesskilninginn ?
- Samleið Samfylkinginnar og "No border Iceland"
- Möguleiki að Úkraína hafi í djarfri árás á flugvelli sumor mörk þúsund km. innan Rússlands -- eyðilagt síðustu nothæfu MAINSTAY radarvélar Rússa. Ef þ.e. rétt, gerbreytir það stríðinu á kostnað Rússa!
- Paródían og Raunveruleikinn
- Trúin þín um þig skapar líf þitt
- ÞAÐ ER LÖGBUNDIÐ AÐ SKYLT SÉ AÐ TAKA VIÐ REIÐUFÉ.......
- Úkraínustjórn er stríðsvá
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi
- Ranghugmynd dagsins - 20250605
- Forsætisráðherra fer með fleipur