Ég heimsótti Alcatraz - myndir

Ég var í San Francisco í mars 2011 og heimsótti Alcatraz. Ógleymanleg upplifun og bloggaði ég um það með fullt af myndum, sjá HÉR

Þetta Alcatraz-sund mun vera árlegur viðburður með miklum fjölda þátttakenda. Yngsti sundmaðurinn sem lokið hefur sundinu var 10 eða 12 ára gamall. Sundið er tímasett m.t.t. sjávarfalla þannig að varla verða straumar til mikilla vandræða, eins og íslenski sundmaðurinn segir að gæti orðið.

Sömuleiðis eru engir hákarlar þarna, en fangelsisyfirvöld lugu því að föngunum þegar þeir komu til eyjarinnar, svo þeir reyndu síður að flýja á sundi. Straumarnir eru hins vegar gríðarlegir og því þarf að sæta lagi með tímasetningu sundsins. Sjórinn er einnig kaldur miðað við breiddargráðu staðarins.

frisco_081

Horft út í fangelsisgarðinn í Alcatraz


mbl.is Fagna afmæli á flótta frá Alcatraz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband