Tækni til trafala

Ég fór með bílinn á verkstæði í dag til að skipta um bremsuklossa að aftan. Í leiðinni lét ég athuga bilanameldingu sem kemur þegar ég set lykilinn í svissinn, segir eitthvað um "steering wheel lock" og mælaborðið pípir á mig. Ég starta og bíllinn fer í gang en drepur svo strax á sér. Ég tek svisslykilinn úr og set hann í aftur, set í gang og þá er allt í lagi. Þetta gerist bara einstöku sinnum, helst þegar bíllinn er kaldur.

homer-dohÞað þarf að tengja bílinn við sérstakan bilanagreini (tölvu) sem les úr svona skilaboðum á örskömmum tíma. Niðurstaðan var sú að stýrislæsingin var ekki biluð, heldur skynjari sem segir til um hvort hún sé ekki örugglega í lagi. Skynjarinn kostar 50 þúsund krónur og svo kostar einhverja formúgu að taka gamla skynjarann úr og setja þann nýja í.

Verkstæðismaðurinn sagði að það borgaði sig að panta nýjan skynjara fljótlega því hann gæti farið alveg og þá væri ég í töluverðum vandræðum því ekki yrði hægt að draga bílinn á verkstæði vegna þess að þegar skynjarinn gæfi endanlega upp öndina, þá myndi stýrið læsast og ég yrði að fá kranabíl til að flytja bílinn.

Bilanagreiningin kostaði mig 7.212 krónur.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Þessi bilanalýsing á mjög vel við bílinn minn. Hann lætur alltaf svona, ekki þegar hann er kaldur, heldur þegar hann er bensínlaus.... =:(>

Sigurbjörn Friðriksson, 11.10.2012 kl. 14:03

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.10.2012 kl. 09:34

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hún er komin út í öfgar, þessi viðvörunar og skynjara "tækni" í bílunum og það er fyrst og fremst þetta drasl sem bilar og þá með tilheyrandi kostnaði.

Ef allir hinir ótalmörgu skynjarar í bílnum kosta 50 þúsund stykkið, þá borga menn sennilega aðeins fyrir skynjarana þegar þeir "kaupa sér bíl" en fá bílinn frítt með.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.10.2012 kl. 08:10

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, þetta er fáránlega dýrt. Bílnum fylgdi tveir lyklar og ég týndi öðrum fyrir tveimur árum. Ég hætti við að kaupa nýjan þegar mér var sagt að hann kostaði 50 þúsund.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.10.2012 kl. 12:05

5 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Félagi, athugaðu á vefnum hvað þessi skynjari kostar erlendis, ebay eða öðrum söluvefum.  Hef trú á að hann kosti undir helming heim kominn.

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 13.10.2012 kl. 20:11

6 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Nýjann lykil færðu hjá Lyklaþjónustunni á Grensásvegi fyrir brot af því sem umboðið rukkar fyrir.  þeir flytja lykilefnið inn sjálfir og forrita þá, það er ódýrara ef þú kemur með lykilinn sjálfur en þeir geta líka smíðað eftir númeri.

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 13.10.2012 kl. 20:23

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, Hallgrímur

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.10.2012 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband