Færsluflokkur: Bloggar
Hremmingar þýska bóndans í þessari frétt eru auðvitað grátbroslegar, en svona lagað er víst ekki einsdæmi.
![]() |
Vonbrigði á brúðkaupsnóttinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.4.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Madonna er kvenkyns útgáfan af Bubba Morthens, svakalega dugleg en magn og gæði fara ekki alltaf saman. Annars er þetta ágætis tips frá Guy Ritchie, fyrir þá sem eru orðnir leiðir á "The greasy old cup". Fara bara í megrun!

![]() |
Kynlöngunin hvarf í megrunarkúrnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.4.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Grunnskóla Reyðarfjarðar barst nýlega sýniseintak af bók frá Námsgagnastofnun, "Geitungar á Íslandi". Fróðlegt 24 síðna hefti með mikið af myndum, m.a. um upphaf landnáms geitunga á Íslandi og greint frá þeim fjórum tegundum sem hér hafa numið land frá því skömmu eftir 1970.
Ég hafði það að atvinnu fyrir nokkrum árum síðan að eyða geitungabúum hér í Fjarðabyggð. Ég get ekki sagt að mér hafi þótt það skemmtilegt starf, eins skíthræddur og ég er við þessi kvikindi Á þessum tíma reyndi ég að kynna mér sem flest um geitunga, svo ég virkaði sem "fagmannlegastur" þegar mig, bjargvættina, bæri að garði. Á þeim tíma var einungis talað um 3 tegundir geitunga; holugeitungur, húsageitungur og trjágeitungur. Fjórða tegundin, roðageitungur er mjög sjaldgæf hér á landi og einungis hafa fundist 7 bú á höfuðborgarsvæðinu á árunum 1997-2007.
Ég sé það nú þegar ég fletti þessu nýja hefti um geitungana, að ég hef haft rangt fyrir mér varðandi tegundagreiningu á þeim geitungabúum sem ég hef eytt. Ég hef nefnilega hingað til afgreitt greininguna út frá fundarstað búanna. Ef ég fann geitungabú niðurgrafið í moldarbarði, þá var það holugeitungur. Ef ég fann það hangandi í tré..... trjágeitungur og hangandi í þakskeggi eða jafnvel inni í bílskúr.... húsageitungur. Mjög vísindaleg greining
En miðað við útbreiðslukort geitunga á Íslandi, þá er engin holugeitungur í Fjarðabyggð. Enda þegar ég skoða myndir af bæði flugum og búum þá er niðurstaða mín sú nú að um trjágeitunga hafi sennilega alltaf verið að ræða. Geitungurinn hér hægra megin er holugeitungur en trjágeitungur á minni myndinni hér að neðan. Holugeitungar eru árásargjarnari en aðrar tegundir og því setti ég mig í alveg sérstakar varúðarstellingar þegar ég eyddi búum sem ég taldi vera þeirra. Það var greinilega algjör óþarfi.
Geitungur er líka kallaður vespa. Geitungar eru félagsskordýr eins og býflugur, maurar, termítar og fleiri tegundir. Ein drottning stjórnar búi og í því eru margir geitungar.
Geitungar byggja bú úr pappír. Þeir naga timbur og búa til pappírskvoðu sem þeir nota í búið. Í einu búi geta verið mörg hundruð vinnugeitungar sem annast lirfurnar og viðhalda búinu.
Ein drottning er í hverju geitungabúi og verpir hún eggjum í sérstök hólf. Úr eggjunum þroskast lirfur sem síðan verða að púpum. Úr púpunum skríða aðeins vinnugeitungar yfir sumartímann. Á haustin verða til nýjar drottningar sem lifa af veturinn. ( http://www.visindavefur.hi.is/svar.php?id=1334 )
Bloggar | 14.4.2008 (breytt kl. 16:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)

![]() |
Sátt við tölvubreytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.4.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bent hefur verið á að sú fullyrðing standist ekki nánari skoðun að ef jöklar minnka eða jafnvel hverfa í Himalaja fjallgarðinum, að það hafi svona dramatísk áhrif á líf 700 miljónir manna. Það er úrkomumagnið fyrst og fremst sem ræður því hversu mikið vatn er þarna aflögu.
Sjálfsagt er að breiða út þekkingu íslenskra jöklavísindamanna út í alþjóða vísindasamfélagið, en ég hef efasemdir um að erindi Al Gore og annarra "alarmista", í loftslagsmálum, eldist vel í umræðunni um þessi mál.
![]() |
Íslenskir vísindamenn hyggjast þjálfa Indverja í jöklarannsóknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.4.2008 (breytt kl. 19:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Friðrik Ómar er frábær söngvari og verðugur fulltrúi Íslands í Júróvision keppninni í ár. Þegar Friðrik Ómar tapaði naumlega í fyrra í undankeppninni þá sömu er hann vann nú, varð hann miður sín af vonbrigðum og í geðshræringunni sem hann sýndi þegar úrslitin voru kunngerð, þá urðu geðrigðin, skynseminni yfirsterkari.
Eftir þessu var tekið og einnig nú þegar úrslitin lágu fyrir. Heyrst hafði af væringum milli tveggja aðal keppinautanna, Euro-bandsins og Mercedes Club. Fordómar og leiðindi stigmögnuðust, þ.á.m. um samkynhneigð Friðriks.
Ég hef tilhneigingu til að halda með Friðriki Ómari í þessu máli, en útiloka þó ekki að Mercedes Club kunni að eiga sér einhverjar málsbætur. En Friðrik var auðvitað að vísa til trommuleikara Mercedes Club og tunna þeirra annars vegar og innihald þeirra skeytasendinga sem gekk yfir hann frá félögum og/eða áhangendum Mercedes Club sem var til þess fallið að vera meiðandi og særandi, ekki síst gagnvart ættingjum og vinum Friðriks Ómars.
![]() |
Friðrik Ómar hlakkar mikið til Eurovision-keppninnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.4.2008 (breytt kl. 18:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Björn Bjarnason, Dóms-og kirkjumálaráðherra ratar oft satt orð á munn. Um hræringarnar í Sýslumanns og lögreglustjóramálum á Suðurnesjum, segir Björn m.a.:
"Furðulegt er, að haldið sé áfram að ræða um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, eins og komið hafi þruma úr heiðskíru lofti og klofið embættið í þrjá hluta. Staðreynd er, að um árabil hefur embættið verið rekið með halla. Í ár keyrir um þverbak og embættinu er stefnt í þrot, ef marka má áætlun lögreglustjórans. Vilja málsvarar óbreytts ástands slíka stjórn á fjármálum opinbers embættis? Ég er ekki talsmaður þess og samþykkti ekki heldur tillögur lögreglustjórans um uppsagnir starfsmanna, þegar allt stefnir í óefni. Ég hef lagt til betri framtíðarleið út úr krónískum fjárhagsvanda embættisins".
Mér finnst nú töluverður skynsemisvottur í þessum orðum karls.
Bloggar | 11.4.2008 (breytt kl. 00:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Slökkviliðið nær ekki nema upp á 9. hæð. Ef kviknar í ofar en það, þá er "öðrum ráðum beitt", að sögn slökkviliðsins. Ég sé fyrir mér að lyftur verði óvirkar í bruna þarna og stigagangar verði reykmettir.
"The Towering Inferno", var fræg stórslysamynd í sama flokki og "The Poseidon Adventure". Við skulum biðja þess að ekki verði neitt drama í þessum turni.
![]() |
Öryggismál í góðu lagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.4.2008 (breytt kl. 19:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

![]() |
Andlitið ákvarðar samböndin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.4.2008 (breytt kl. 17:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Löng einangrunarvist Íslendings óviðunandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.4.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.9.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 947669
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Dularfullir drónar á ferðinni í Danmörku
- Í tilefni af ALÞJÓÐADEGI SAMEINUÐUÞJÓÐANNA sem að stendur núna yfir, að þá kemur hérna kveðja frá góðum gestum annarsstaðar að úr alheimi:
- Misjafn árangur Sameinuðu þjóðanna
- Framhaldskólanemar rísið upp
- Vók-vinstrið í framhaldsskólum
- Allt er það vont og verra en verst
- Örlítil morgunhugvekja fyrir íslenska zionista og hyski þeirra allt.
- Rækjusalat, IKEAkjötbollur og ostar
- Ókunnar og kunnar ógnir
- Bæn dagsins...