Myndir frá Fáskrúðsfirði

Myndirnar stækka dálítið ef smellt er þrisvar á þær

012 (640x427)

3

4

5

6


Ómar Ragnarsson var sannspár

"Í textanum "Árið 2012" sem gerður var fyrir 45 árum og Vilhjálmur Vilhjálmsson söng af snilld í frábærri útsetningu og hljóðfæraleik hljómsveitar Magnúsar Ingimarssonar var mörgu ótrúlegu spáð um árið 2012..."

Á þessum orðum hefst pistill Ómars þann 30.12 sl. sjá hér .

Lagið hefur gengið í endurnýjun lífdaga, nýr texti eftir Ómar og sonur Villa Vill syngur. En í gamla textanum segir m.a.:

Mig dreymdi ég væri giftur þeirri sömu sem ég er.

Hún sagði: "Ó, mér leiðist þetta barnaleysi hér."

Ég gerðist nokkuð bráður og vildi bæta úr því strax.

"Nei, bíddu", sagði hún, góði, "við notum pillur nú til dags."

Árið 2012 er runnið upp og nú framleiða vísindamenn sæði! Happy


mbl.is Vísindamenn framleiða sæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvern er hún að blekkja?

Þeir sem segja að hugtökin vinstri/hægri í stjórnmálum séu úrelt, eru hentistefnumenn... tækifærissinnar. Lilja Kemur úr stjórnmálaflokki yst af vinstri vængnum, svona næstum því kommúnistaflokki. Safnar nú liði í nýjan flokk og segir fólkið koma úr öllum áttum.

Sumt af þessu fólki mun vakna upp við vondan draum, þegar það áttar sig að Lilja er hreinræktaður vinstrimaður.

Ég get tekið undir margt af gagnrýni hennar á ríkisstjórnina og stjórnunarhætti Steingríms J. Sigfússonar, en hún hættir ekki að vera vinstrimaður fyrir það.

Hún talar um jöfnuð og það virkar vel á fólk. En stjórnmálamenn eiga ekki að útdeila peningum, né eiga þeir að ná fram jöfnuði í gegnum skattkerfi. Þeir eiga að búa til aðstæður í samfélaginu, þannig að kjör fólks batni. En vinstrimönnum virðist sama um kjör fólks því aðal atriðið er jöfnuður.

Mér er sama þó einhverjir ríkir verði enn ríkari, svo framarlega sem kjör allra batna.


mbl.is Nýtt framboð að verða til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramót á Reyðarfirði, myndband / myndir

Veðrið á gamlárskvöld gat ekki verið betra, hiti rétt ofan frostmarks og nánast logn.

022 (640x427)

Brennan var sunnan við fjörð, á Hrúteyrinni. Þarna eru tveir vaskir menn úr Björgunarsveitinni Ársól á Reyðarfirði að glæða bálið. Brennan var tendruð kl. 20.30 og kl. 21.00 hófst flugeldasýningin sem var mögnuð að vanda.

016 (640x427)

Söngfólk úr Kirkjukór Reyðarfjarðar stjórnaði fjöldasöng við brennuna.

054 (640x427)

Fire at will!

057 (640x427)

060 (640x427)

068 (640x427)

073 (640x427)


Gleðilegt ár!

reyðarfjörður

Falleg mynd frá Pálínu Árnadóttur á Reyðarfirði, tekin 2010. Greina má svart strik fyrir miðri mynd, sem liggur inn í fjallið sunnan fjarðar, Fáskrúðsfjarðargöng.

Ég óska lesendum bloggsíðunnar gleðilegs árs og farsældar.


Lán háð Icesave-samningi?

Lítil sem engin gagnrýni kemur frá fjölmiðlum landsins á störf og umsagnir forstjóra Landsvirkjunar, Harðar Arnarsonar, um hin ýmsu mál er varðar starfsemi fyrirtækisins. Hörður hefur ítrekað sýnt svo ekki verður um villst að hann gengur erinda Samfylkingarinnar í störfum sínum og afstöðu til mála, bæði varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir og framkvæmdir frá fyrri tíð, sjá t.d. hér og  hér . Hann sagði t.d. í  þann 7. febrúar 2011, um fjármögnun Búðarhálsvirkjunar:

" Lausn Icesave-deilunnar, sem nú hillir undir, gæti haft úrslitaáhrif." hér 

 Þetta var innlegg forstjóra LV í pólitískt áróðursstríð ríkisstjórnarflokkanna um að vissara væri fyrir þjóðina að samþykkja Icesave III, annars yrði Ísland að "Kúbu norðursins."

Þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave var 9. apríl en 23. mars veitti Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) 70 milljónir evra lán, eða að jafnvirði um 11,3 milljarðar króna.  Landsvirkjun undirritaði sambærilegt lán frá Norræna fjárfestingarbankanum þann 16. mars síðastliðinn að fjárhæð 70 milljónir Bandaríkjadollara. (hér)


mbl.is Landsvirkjun tekur 10,5 milljarða lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það koma aðeins tveir til greina

Þeir sem vilja hag Samfylkingarinnar sem minnstan, óska sér þess að einhver eftirtalinna verði næsti formaður flokksins:

  • Björgvin G. Sigurðsson
  • Dagur B. Eggertsson
  • Helgi Hjörvar
  • Magnús Orri Schram
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttur
  • Skúli Helgason

Þetta pólitíska undirmálsfólk hæfir sjálfsagt flokknum best. Errm

Þeim sem ekki er mjög illa við flokkinn vildu fá Árna Pál Árnason eða Katrínu Júlíusdóttur sem næsta formann.


mbl.is Umbrot í Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstristjórnin hrósar sér af þessu

Hin hreina og tæra vinstri stjórn sem kennir sig við norræna velferð, hrósar sér af því að aldrei hafi meiru fé verið varið til velferðarmála á einu kjörtímabili. En í hverju er þessi mikla útgjaldaaukning fólgin?

Jú, aukningin er að mestu fólgin í að borga atvinnuleysisbætur! Sá kostnaður er nefnilega færður undir lið velferðarmála hjá hinni hreinu og tæru norrænu velferðarstjórn og hún gumar af þeirri aukningu. FootinMouth

crop_500x


mbl.is Útgjöld vegna tryggingabóta jukust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Einkaaðilar í rúmlega níutíu útköll í nótt"

ÞESSI pistill er á sannleikurinn.com :

"Einkaaðilar og íþróttafélög sem selja flugelda á höfuðborgarsvæðinu hafa í alla nótt aðstoðað ökumenn þar sem færð er nú afleit. Í tilkynningu frá flugeldasölu KR segir að yfir 90 aðstoðarbeiðnir hafi borist og að í mörgum tilvikum hafi nokkrir bílar verið á bak við hverja tilkynningu.

Voru foreldrar barna og unglinga sem æfa hjá félaginu kölluð út til að sinna hjálparbeiðnum og koma bílum af stað aftur í sjálboðastarfi en íþróttafélögin neyðast til að nota ágóðan af flugeldasölunni til að borga knattspyrnumönnum í efstu deild karla laun.

Örn Árnason, leikari og skemmtikraftur, leiddi 50 einkaaðila í flugeldasölu í gegnum verkefni næturinnar og voru þeir enn að í morgun.
Einkaaðilar og íþróttafélög beina því til ökumanna á höfuðborgarsvæðinu að vera ekki á ferðinni á vanbúnum bílum því ágóði þeirra af flugeldasölunni dugir ekki til að svara kostnaði, þar sem björgunarsveitir landsins hirða stóran hluta flugeldasölunnar."

Hehe... helvíti góðir LoL

Hugsandi fólk verslar við björgunarsveitirnar! Wizard


mbl.is „Fólk kann að meta okkar framlag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjitturinn, titturinn... ég táraðist

Já, ókei, ég get verið óttaleg píka stundum... ég viðurkenni það. Blush Sue me

Melanie Amaro sigraði í X Factor. Ég hef ekkert fylgst með þessum þáttum í ár en þegar ég sá þetta myndband, þá vöknaði ég smá um augun. Ég tengdi nýja þráðlausa Sennheiser heyrnartólið sem sonur minn fékk í jólagjöf, við "kjölturakkann"... geðveikt sound.

Hlustið og njótið!


mbl.is Slys í lokaþætti X Factor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband