"Einkaaðilar í rúmlega níutíu útköll í nótt"

ÞESSI pistill er á sannleikurinn.com :

"Einkaaðilar og íþróttafélög sem selja flugelda á höfuðborgarsvæðinu hafa í alla nótt aðstoðað ökumenn þar sem færð er nú afleit. Í tilkynningu frá flugeldasölu KR segir að yfir 90 aðstoðarbeiðnir hafi borist og að í mörgum tilvikum hafi nokkrir bílar verið á bak við hverja tilkynningu.

Voru foreldrar barna og unglinga sem æfa hjá félaginu kölluð út til að sinna hjálparbeiðnum og koma bílum af stað aftur í sjálboðastarfi en íþróttafélögin neyðast til að nota ágóðan af flugeldasölunni til að borga knattspyrnumönnum í efstu deild karla laun.

Örn Árnason, leikari og skemmtikraftur, leiddi 50 einkaaðila í flugeldasölu í gegnum verkefni næturinnar og voru þeir enn að í morgun.
Einkaaðilar og íþróttafélög beina því til ökumanna á höfuðborgarsvæðinu að vera ekki á ferðinni á vanbúnum bílum því ágóði þeirra af flugeldasölunni dugir ekki til að svara kostnaði, þar sem björgunarsveitir landsins hirða stóran hluta flugeldasölunnar."

Hehe... helvíti góðir LoL

Hugsandi fólk verslar við björgunarsveitirnar! Wizard


mbl.is „Fólk kann að meta okkar framlag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Birgir Ómarsson

Sannleikurinn klikkar aldrei

Gísli Birgir Ómarsson, 29.12.2011 kl. 17:35

2 identicon

Nákvæmlega:)

Skúli (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband