Vafasöm lógó - myndir

Gott vörumerki er gulls ígildi, en stundum klikkar eitthvað Happy

logo2

Merki æskulýðsstarfs í kaþólskri kirkju. Sennilega verið hannað áður en misgjörðir presta innan trúfélaga gagnvart börnum komst í hámæli Errm

logo3

Fatahönnunarmerki. Ég var smá stund að fatta þetta Joyful

logo4

Barnaheilsugæsla

logo5

Tannlæknir

logo6

Tölvuþjónusta

logo7

Þetta mun vera merki fasteignasölunnar Locum í Svíþjóð

logo8

Kínverskur veitingastaður

logo9

Lyfjafyrirtæki

logo10

Þetta er hrein óheppni.... eða ekki Happy


Gleðileg jól

xmas

40.000 kr. kílóið

Frjorjup_320Ég hef heyrt að rjúpa seljist á 5.000 kr. stykkið. Hamflett rjúpa er ca. 250 grömm og brjóstið kannski helmingurinn af því. Errm

Heyrst hefur af þremur aðilum hér á Reyðarfirði sem ekki virða lög og reglur um rjúpnaveiðar. Ekki bara að þeir veiði óhóflega, heldur veiði rjúpur utan veiðitíma... að þeir hafi stundað rjúpuna grimmt allan desember.

Ég hef efasemdir um að harkalegar takmarkanir á veiðum skili árangri, nema e.t.v. á svæðum í kringum höfuðborgina. En ég hef skömm á svona framferði sveitunga minna. Veiðireglur á að virða í hvívetna.

Myndin er af http://www.hunt.is/is/veidi/rjupa 


mbl.is Rjúpa: Góður og ódýr jólamatur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólamynd kvikmyndahúsanna

Hryllingsþriller.... stranglega bannaður innan 18 ára!

worstdeal


Slæmt orðspor

kommúnismiKommúnistarnir í hinni hreinu vinstristjórn okkar bera (ó)hróður okkar víða.

Það getur tekið mörg ár fyrir okkur Íslendinga að reka af okkur pólitískt slyðruorð þessarar helferðarstjórnar. Undecided

 


mbl.is Sakaður um stalínisma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er farið seinna af stað á Austurlandi

Þegar ég vann við snjóruðninga og hálkuvarnir hjá Vegagerð ríkisins á Austurlandi á árunum 2001-2005, var þjónustusvæði mitt frá Reyðarfirði til Egilsstaða og þaðan til Norðfjarðar. Vinnutíminn byrjaði á virkum dögum kl. 05.00 og ætlast til að búið væri að ryðja og/eða hálkuverja þessa 110 km. leið kl. 07.00. Um helgar var þessi tími frá kl. 6-8.

Þess má geta fyrir ókunnuga að fara þarf yfir tvo erfiða fjallvegi á þessari leið, Fagradal og Oddsskarð.

Í dag sér verktaki um þessa þjónustu og svo virðist sem hann hefji vinnu klukkustund síðar og jafnvel seinna en það í mörgum tilfellum, sérstaklega um helgar. Það er skrítið í ljósi þess að síðan ég vann við þetta, hefur nýr 900 manna vinnustaður orðið til milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.

Mikil umferð er að og frá álverinu á morgnanna frá nærliggjandi byggðarkjörnum milli kl. 7 og 8 á morgnanna og á þeim tíma er hálkuvörnin ekki enn farin að virka að gagni og stundum um helgar ekki einu sinni hafin.

Mér finnst afar sérkennilegt ef kröfurnar varðandi vetrarþjónustu hafi minnkað eftir að álverið kom, því umferðin hefur auðvitað margfaldast á þessum tíma.

31_3_2010_016

Hér er snjóblásari á ferð í Oddsskarði ( http://www.geirinn.is )


mbl.is Glerhálka veldur vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til í allt fyrir ESB

eu-flag-colorÉg tek undir með Advice-hópnum, það veldur mér ugg að fólk sem er tilbúið inn í brunarústir ESB sama hvað tautar og raular, er ekki traustvekjandi í komandi málaferlum.

Það þjónar ekki hagsmunum ESB að Ísland vinni þetta mál því það mun skapa enn meiri óróa í hagkerfi sambandsríkjanna.


mbl.is Ósannfærandi fyrir dómstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvífarar

hómer

826 miljónir frá Fjarðabyggð

Er einhver sem heldur að bankahrunið sé ástæða skattbrjálæðis vinstrimanna? FootinMouth

Væntanlega verður þetta "tap" útgerðarinnar frádráttabært Errm


mbl.is Útgerðir í Eyjum greiða 1.245 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur þetta gerst áður á Íslandi?

9 ára drengur villtist í skógi í Heiðmörk.

Ótal margar sögur eru til af fólki erlendis sem villst hefur í skógum og jafnvel aldrei fundist aftur. Ég man hins vegar ekki eftir að það hafi gerst á Íslandi að fólk hafi villst í skógi, fyrr en nú.

Ég hef villst í þoku á heiðum uppi tvisvar sinnum en reyndar í stutta stund í bæði skiptin. Það var mjög óþægileg tilfinning og ég get vel ímyndað mér að það sé ekki betra að villast í skógi og örugglega hræðilegt fyrir 9 ára barn.

Ég held að það muni aldrei gerast að fólk villist svo kyrfilega í skógi á Íslandi, að það finnist ekki aftur, en maður þarf ekki að villast lengi og verða meint af, ef maður er illa búinn til útivistar. Kannski það þurfi að fara að kenna börnum á Íslandi að umgangast skóga. Lífsleikni í námskrá grunnskóla kemur þar sterk inn.

skógur


mbl.is Þrjú börn villtust í jólaskóginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband