Bloggar | 29.6.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Ég var á ferð í Bandaríkjunum og Kanada í byrjun júní og sá forsíðu einhvers blaðs á einu hótelana sem ég dvaldist á, að Tom Cruise hefði haldið framhjá Kate sinni. Þessar fréttir virðast ekki hafa borist hingað eða a.m.k. farið fram hjá mér eftir að ég kom heim.
Margir segja að Tom sé furðufugl.
![]() |
Eru Holmes og Cruise að skilja? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.6.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Forystumenn Samfylkingarinnar hafa sagt bæði í ræðu og riti að þeir vilju Ólaf burt frá Bessastöðum. Það er núningur milli Ólafs og þeirra, aðallega vegna Icesave.
Framboð Þóru hefur verið bendlað við Samfylkinguna og með þessum þrýstingi úr herbúðum hennar þarf engin að velkjast lengur í vafa.
![]() |
Hvöttu Ara til að hætta við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.6.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Helstu tromp andstæðinga álframleiðslu á Íslandi hafa verið aðallega þrjú;
- að ál sé óumhverfisvænt og framleiðsla þess mengi of mikið
- að miklu sé fargað af áli og sé því illa endurnýtt
- að álnotkun fari minnkandi í framtíðinni og álverð lækki
Allt er þetta alrangt. Varðandi fyrsta liðinn þá verður að skoða málið (álið) heildrænt. Þegar það er gert þá kemur í ljós að álframleiðsla mengar minna samanborið við t.d. stál.
Enginn málmur er endurunninn í ríkari mæli en ál og allar spár hafa gert ráð fyrir að álnotkun muni aukast næstu áratugina.
Þegar andstæðingar álvers og virkjanaframkvæmda á Austurlandi ólmuðust sem mest með gífuryrðum og bulli á árunum 2000-2007, voru ofangreindar fullyrðingar þeirra helstu tromp.
Ég sagði það þá og ég segi það enn: Það stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi þessa fólks.
![]() |
Bílaiðnaðurinn kaupir upp álið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
stóriðja og virkjanir | 20.6.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Einkarekinn fjölmiðill þarf ekki að spyrja opinbert vald hverjum hann býður í viðtal hjá sér og hverjum ekki. Fólk getur haft á því skoðanir hvort Stöð 2 á að bjóða hinum eða þessum til sín og ef það er óánægt, getur það sagt upp áskrift sinni.
Ég skil óánægju hinna frambjóðendanna, en að saka Þóru og Ólaf um siðferðisbrest fyrir að þyggja að mæta er auðvitað tóm vitleysa.
Þór Saari er úti á túni í þessu máli eins og öllum öðrum.
![]() |
Fjölmiðlanefnd skoði kappræðumálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 31.5.2012 (breytt kl. 15:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Leikurinn við Svía er með þeim betri sem ég hef séð íslenskt landslið spila. Mörkin sem liðið fékk á sig voru þó af ódýrari gerðinn, sérstaklega annað og þriðja markið. Það þriðja má skrifa á Hannes markvörð en hann átti a.m.k. tvær afar vafasamar "hreinsanir" frá markinu.
Íslenskt landslið hefur aldrei verið eins vel mannað og í dag og það sást á spilinu. Liðið hélt boltanum vel og framtíðin er björt hjá okkur.
Ég hef fulla trú á Lasse.
![]() |
Svíar lögðu Íslendinga 3:2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 30.5.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mörg dapurleg ummæli mátti sjá á netinu vegna þess að Greta Salóme gerði og sagði ekki það sem hávær minnihlutahópur heimtaði af henni. Fyrirsögn pistilsins er af facebook-síðu þekkts fjölmiðlamanns af RUV sem bar henni þessa ósk vegna þess að hún mótmælti ekki opinberlega mannréttindabrotum um leið og hún tók þátt í söngvakeppninni.
Vandlæting þessa fólks var mikil og notaðir voru þekktir frasar um ranglæti heimsins.
Það merkilega er að þeir háværustu úr þessum vandlætingarhópi, hafa einnig verið háværir í baráttu fyrir náttúruvernd og kalla jafnan þá sem vilja virkja einhversstaðar, öllum illum nöfnum. Þeir ganga jafnvel svo langt að fordæma alla Austfirðinga fyrir að hafa viljað virkja við Kárahnjúka og leyfa álveri að rísa í Reyðarfirði. Þar með eru Austfirðingar "umhverfissóðar".
Þetta er að mestu sama fólkið sem lætur svona.
![]() |
Biður Gretu Salóme afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 30.5.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég er að spá í spjaldtölvu. Fólk virðist skiptast í lið í þessum efnum sem öðrum. Það væri gaman að heyra frá ykkur um þetta eldheita efni.
![]() |
Eplið var á hvolfi fyrir notandann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | 29.5.2012 (breytt kl. 21:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 19.5.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Alarmistarnir hafa hægt um sig en svo spretta þeir fram í næstu hitabylgju.
"According to a new U.N. report, the global warming outlook is much worse than originally predicted. Which is pretty bad when they originally predicted it would destroy the planet." --Jay Leno
![]() |
Hiti 1,2°C undir meðaltali í maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.5.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 947078
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Hlutfall landsmanna á endurhæfingarlífeyri tvöfaldast
- KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....
- Ísrelsher kemur Gretu Tumberg og öðrum aðgeðarsinnuum til hjálpar
- Hjúkrunarfræðingarnir höfðu sigur
- Vinslit ekki af ástæðulausu
- Kristrún, Keir Starmer og vók-orðræðan
- Skírnarhátíð, uppskeruhátíð heiðin og sumarfögnuður, það eru fyrstu hugmyndirnar sem rekja má fimmtugshátíð, hvítasunnuna aftur til. Kannski Esusarblót, sem sólarguðs.
- Bæn dagsins...
- Ultimate Guide to Lookah Dab Pens
- Amerísk fasistaskyggni fyrir Grindavík?