Klippið nokkra sprota af birkitré og troðið inn í kjúklinginn, kryddið eftir smekk. Mér fannst alltaf Season All best en svo var það BANNAÐ. Nú nota ég Lawry´s Seasoned Salt, það er eiginlega alveg eins. Gott er að binda vængi og leggi saman með blómavír. Nausynlegt er að hafa rafmagnsmótor á grillstönginni. Þessi gengur fyrir tveimur rafhlöðum (stærstu sívölu gerðinni) sem endast lygilega lengi.
Besti kjúklingur í heimi. Léttur keimur af birkinu síast inn.
Ps. ef kjúklingurinn er feitur, drýpur fitan af honum og getur skapað eldsmat ef ekki drenar vel niður úr grillinu.
Matur og drykkur | 20.7.2012 (breytt kl. 16:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"... kom það hjónunum á óvart að verið væri að leita að þeim."
Mér sýnist á þessu að einhver hafi verið full bráður á sér að kalla út leitarflokka. Svona útkall kostar mikla peninga og sjálfboðaliðar í björgunarsveitum fara úr vinnu til leitar og þyrla kölluð út.
Það á að skylda hálendisfara til að leigja GPS tæki svo hægt sé að fylgjast með ferðum þeirra.
![]() |
Hjónin fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Umhverfisverndarsinnar segja að mannætuhákarlar séu ekki vandamálið, heldur ágengni fólks í sjóinn við baðstrendur.
![]() |
Vafi um friðun hvítra hákarla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 16.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta mál, eins alvarlegt og það er nú, er auðvitað kómísk. Sérstaklega tilsvör fyrirtækisins sem ber ábyrgð á eftirlitinu.
Mennirnir voru svo svakalega vel skipulagðir. Þeir klifruðu yfir girðinguna! Það er auðvitað afar erfitt að verjast svo útpældu plotti.
![]() |
Hælisleitendurnir vel skipulagðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þetta er eitthvað svo..... mannlegt
![]() |
Bráðfyndin Gif-myndskeið slá í gegn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 8.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sumir hitta ekki tunnu þó þeir standi inní henni.
Ég skil ekki fólk sem lætur sér detta í hug að fara á skotveiðar án þess að geta skotið sómasamlega. Mjög stór hluti þjóðarinnar stundar ýmiskonar veiði. "Heimspeki veiðimannsins" ætti að vera kafli í lífsleikni grunnskóla þar sem lögð er áhersla á að bera virðingu fyrir veiðibráðinni.
![]() |
Þriðjungur veiðimanna féll á prófi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 7.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
"Berin voru hvort eð er súr", sagði refurinn í sögunni.
Ef Brendan Rodgers hélt að hann gæti fengið Gylfa fyrir litla peninga, þá er hann e.t.v. ekki eins klókur stjóri og af er látið. Að missa af Gylfa verða flokkuð sem hans fyrstu stóru mistök í stjórastarfinu.
Nú er aðalatriðið að Gylfi fái réttlát tækifæri í Tottenham, okkur knattspyrnuáhugamönnum á klakanum til ánægju á laugardögum í vetur.
Ég hef fulla trú á stráknum.
![]() |
Rodgers: Peningarnir skiptu Gylfa meira máli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | 5.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Þessi áhorfstala stenst varla. Ég var í Bandaríkjunum á meðan riðlakeppnin fór fram og það var sama hvar maður kom... á veitingastaði, hótellobbí og víðar þar sem sjónvörp voru á annað borð (og þau erum mjög víða), þá var stillt á stöðvar með EM útsendingu og fólk horfði af áhuga.
Hér erum við konan mín að bíða eftir steikinni okkar á veitingastað í Mall Of America í Minneapolis, stærstu verslunarmiðstöð USA, föðurlandi verslunarmiðstöðvanna. Sama hvert litið var á þessum veitingastað, á öllum veggjum var verið að sýna leik á EM.
![]() |
Aukið áhorf á EM í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 4.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mér finnst alveg magnað að gera 70% kjörsókn að aðalatriði og reikna svo út frá því að ÓRG hafi einungis 37% fylgi á bak við sig. Hefðu þá allir sem ekki kusu, kosið annan frambjóðanda en hann?
Þessar kosningar voru "alvöru" kosningar og á engan hátt sambærilegar við furðuframboð gegn sitjandi forseta hér áður fyrr. Útkoma Ólafs var glæsileg í ljósi þess að ríkisstyrkt ófrægigarherferð var rekin gegn honum.
![]() |
Nýbökuð móðir viðurkennir ósigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.7.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hernámshelgin er skemmtilegur menningarviðburður á Reyðarfirði sem hefur fest sig í sessi á undanförnum árum. Í tilefni hennar var fornbílasýning í síldarbræðslubragganum. Stækka má myndirnar með því að smella nokkrum sinnum á þær.
Willis, árgerð 1946
Ford AA, árgerð 1930
Chervolet BelAir, árgerð 1957
Mercedes Bens, árgerð 1936
Í hárnákvæmri skrefmælingu minni mældist þessi ameríski kaggi 6 m. langur.
Athyglisverðar sögur fylgja mörgum þessara dýrgripa og hér hlustar Þóroddur Helgason, fræðslustjóri Fjarðabyggðar, á eina frá eigandanum.
Fjöldi fólks mætti á sýninguna
Þessi "Reyðfirðingur", Ford Fairlane árgerð 1956, sést á götum bæjarins á hátíðis og tyllidögum og mörg brúðhjón hafi fengið sína fyrstu ökuferð í hjónabandi sínu í þessum eðalvagni.
"Unglingurinn" í hópnum, ekki nema 31 árs.
![]() |
Hernámshelgi hafin á Reyðarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 30.6.2012 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 947078
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Amerísk fasistaskyggni fyrir Grindavík?
- Greta gyðingahatari.
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnasonar á sögulegum staðreyndum
- Viðurkennt í greinargerðinni
- Maí sem sumarmánuður?
- Vertíðin, strandveiðar og veiðigjöldin
- World Council for Health (WCH) styður kröfu um tafarlausa fjarlægingu mRNA-bóluefna
- MIKILL OG STERKUR VILJI TIL LANDRÁÐA HJÁ SAMFYLKINGU OG VIÐREISN...
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finna þær
- Breytt umræða í útlendingamálum