Þumalskrúfa á VG

Nú mjálma villikettirnir. Láta þeir hóta sér?...kúga sig?haxan_thumbscrew

Litla skrýtna samfó-kannan HÉR er lítil myndasaga sem ég sá á facebook. Smellið á myndina Joyful


mbl.is Viðræðuslit leiddu til stjórnarslita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískar sumarbúðir fyrir börn

Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður veltir upp spurningu á facebook-síðu sinni:

"...finnst engum athugavert að safna börnum og unglingum kerfisbundið saman á afskekktri eyju í þeim tilgangi að innræta þeim tiltekna flokkspólitíska stjórnmálaskoðun????"

Einhverjir í athugasemdarkerfinu fullyrða að samkomur SUS séu af sama meiði, sjá hér. Ég veit ekki til þess að SUS haldi pólitískar sumarbúðir fyrir börn á fermingaraldri.

Árni Snævar vill þagga niður í svona vangaveltum og æskir þess við Tryggva að hann taki þetta út. Fleiri tjá sig á facebook og telja að kominn sé tími til að Tryggvi hætti þingmennsku, væntanlega vegna þess að hann dirfist að nefna þetta. Mér finnst eðlilegt að fólk velti þessu fyrir sér.

ps. Athugasemdir í hneikslunartón, hrúgast inn á fésbókarsíðu Tryggva. Af hverju má ekki spyrja þessarar spurningar?


mbl.is Loksins hægt að horfa fram á við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirtækin taka ekki á sig hækkun virðisaukaskatts

Þessi skattahækkun er auðvitað snargalin, en fyrirtækin borga ekki þennan skatt eins og skilja má foráðamönnum ferðaþjónustufyrirtækisins Iceland Excursions Allrahanda. Það er kúnninn sem borgar en fyrirtækin skila skattinum. Þess vegna er virðisaukaskattur kallaður "vörsluskattur".

Það verður fróðlegt að sjá hvort þessi ólánssama ríkisstjórn þurfi ekki að hrökklast frá með þessi áform sín. Ég trúi ekki öðru. 


mbl.is Segja átakinu í raun sjálfhætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur "meðul" hafa tekið við hlutverkinu

Breski læknirinn segir að skapahár hafi hlutverk. Væri ekki réttara að segja að þau höfðu hlutverk, áður en hreinlæti varð almennt meðal manna og áður en fólk klæddist hreinum nærfatnaði?

Hár undir höndum, á fótlegggjum... bringu, hafði eflaust einhvern tíma hlutverk. FootinMouth

tumblr_m82of0lby61qb56jbo1_400

mbl.is Mjög varasamt að fjarlægja skapahárin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, Frakkland, Spánn og Króatía í undanúrslitin

Íslendingar spila um gullið við Króata, eftir sigur á Spánverjum í undanúrslitum. Króatar vinna Frakka og við töpum fyrir Króötum og höldum silfrinu.

Það þarf ekkert að ræða þetta frekar. Næsta mál.

Ps. Við sigrum Dani í fjögurra liða úrslitum en Frakkar vinna Spánverja.


mbl.is Unnu Frakka og vinna riðilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru engir hákarlar þarna

Í fréttum frá þessum mönnum sem syntu þetta sund, tala þeir stöðugt um hákarla á svæðinu. Væntanlega vita þessir menn ósköp vel að engri hættu stafar af þeim, einfaldlega vegna þess að þeir eru ekki á svæðinu. Það er hallærislegt af þessum mönnum að ljúga þessu í fjölmiðla og dæmigert fyrir íslenska fjölmiða að kokkgleypa lygina án þess að athuga málið á nokkurn hátt.

Fangelsisyfirvöld á Alcatraz sögðu "vistmönnum" að hákarlar væru á sveimi við eyjuna til þess að fæla þá frá því að reyna að synda burt frá eynni. Straumar eru hins vegar gríðarlegir en þessi nútíma sundviðburður er tímasettur m.t.t. strauma og með það í huga að sem flest vel synt fólk geti þreytt sundið. Börn innan við fermingu hafa lokið sundinu.

Fréttir frá þessum sundgörpum er íslenskt karlagrobb af verstu sort.


mbl.is Hittu enga hákarla á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég heimsótti Alcatraz - myndir

Ég var í San Francisco í mars 2011 og heimsótti Alcatraz. Ógleymanleg upplifun og bloggaði ég um það með fullt af myndum, sjá HÉR

Þetta Alcatraz-sund mun vera árlegur viðburður með miklum fjölda þátttakenda. Yngsti sundmaðurinn sem lokið hefur sundinu var 10 eða 12 ára gamall. Sundið er tímasett m.t.t. sjávarfalla þannig að varla verða straumar til mikilla vandræða, eins og íslenski sundmaðurinn segir að gæti orðið.

Sömuleiðis eru engir hákarlar þarna, en fangelsisyfirvöld lugu því að föngunum þegar þeir komu til eyjarinnar, svo þeir reyndu síður að flýja á sundi. Straumarnir eru hins vegar gríðarlegir og því þarf að sæta lagi með tímasetningu sundsins. Sjórinn er einnig kaldur miðað við breiddargráðu staðarins.

frisco_081

Horft út í fangelsisgarðinn í Alcatraz


mbl.is Fagna afmæli á flótta frá Alcatraz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin frétt í textavarpi RUV

Drög að samningi Nupo í ráðuneytinu, er fyrirsögnin 

"Drög að fjárfestingarsamningi við Huang
Nubo vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar 
ferðaþjónustu á Grímstöðum, liggja    
óhreyfð í iðnaðarráðuneytinu. Vinskapur
Huangs við fólk innan kínverska       
stjórnkerfisins hefur hjálpað honum við
að auðgast."
  (Feitletrun mín)

Fyrri hlutinn er athyglisverður og er í sjáfu sér merkileg frétt sem afhjúpar fordóma í iðnaðarráðuneytinu. En hvaða hvatir liggja að baki feitletraða hluta fréttarinnar? Er svona framsetning boðleg hjá ríkisfréttastofu?

Ps. Ég er í sjálfu sér ekki að draga í efa að Nupo hafi auðgast á pólitískum tengslum sínum. Ég bæti hér við athugasemd minni við athugasemd við pistilinn:

 

Ég sé bara ekki samhengið á milli fyrri og seinni hluta fréttarinnar. Sá seinni á greinilega að draga athyglina frá því sem er fréttnæmt, sem eru forkastanleg vinnubrögð iðnaðarráðuneytisins.

En það á engin að þurfa svosem að velkjast í vafa að fréttasttofa RUV er ramm pólitísk. Þetta er enn ein sönnunin.

Fortíð Nupo eða annarra alþjóðlegra fjárfesta frá Kína, er í sjálfu sér ekki fréttefni. Það á hins vegar að taka afstöðu til samningsdraganna í þessu máli og einskis annars.

Ef ÞÚ ætlar að fjárfesta erlendis, viltu þá vera dæmd af afrekum útrásarvíkinganna fyrir hrun?


Við leiði Káins í Norður-Dakota, myndband

Ég fór til Kanada og Bandaríkjanna í byrjun júní með starfsfólki Grunnskóla Reyðarfjarðar. Þetta var skólaheimsókn en farið er í slíka ferð á u.þ.b. 5 ára fresti. Þessar ferðir eru fræðandi og uppbyggjandi fyrir starf grunnskólans, bæði fyrir kennara en einnig annað starfslið skólans.

Flogið var til Minneapolis og þaðan tekin rúta til Winnipeg, tæplega 800 km. leið en gist var í smábænum Alexandria í Minnesota á norðurleiðinni en í Grand Forks í N-Dakota í bakaleiðinni.

Þrennt kom mér dálítið á óvart í ferðinni. Það fyrsta hve stór og fjölmenn Winnipeg er. Annað, hve lítil og fámenn Gimli er og það þriðja hve Íslendingabyggðirnar voru og eru fjölmennar og blómlegar í Norður Dakota.

Hópurinn naut leiðsagnar Jónasar Þórs, sagfræðings og var það í alla staði frábært að hafa þann hafsjó af fróðleik um sögu Íslendinga í Vesturheimi á þessu ferðalagi.

Í Thingvalla Township, í Pembinasýslu í Norður Dakóta, er kirkjugarður en hin merkilega kirkja þar brann til kaldra kola fyrir nokkrum árum síðan."The church and community that surrounded it was also known locally as Eyford"(Wikipedia).Kirkjugarðurinn er skammt frá "Íslendingaþorpinu" Mountain. Altaristafla kirkjunnar var stytta af Jesú Kristi eftir Bertel Thorvaldsen og er nú það eina sem eftir stendur og á myndinni hér að neðan er leiðsögumaður okkar við styttuna, Jónas Þór, ásamt heimamanni sem er af alíslenskum ættum.

119 (640x427)

Nánast öll nöfn á legsteinum í garðinum eru alíslensk en svo var einnig í öðrum kirkjugarði skammt frá, í "Gardar" (í Görðum)

Káinn hvílir þarna og myndbandið hér að neðan sýnir örlitla minningarstund  sem hópurinn átti en Jónas Þór var duglegur að kynna fyrir okkur kveðskap Káins í rútunni, okkur til mikillar ánægju. Hildur Magnúsdóttir, kennari, fékk þann heiður að skála fyrir hönd hópsins við Káinn.

Þess má geta að Baggalútsmenn gáfu út plötu, "Sólskinið í Dakóta",  tileinkaða Káinn og Íslendingabyggðunum í N-Dakóta. Mörg frábær lög eru á plötunni og titillagið er í uppáhaldi hjá mér. Mér skilst að erfitt sé að fá diskinn í búðum en hægt er að kaupa hana hér:       http://www.tonlist.is/Music/Album/340612/baggalutur/solskinid_i_dakota/


"Sameinumst!... hvað lá að baki slagorðinu?

Þóra sagðist fulltrúi sameiningar og sátta.

Þjóðin sá greinilega í gegnum falsið Errm


mbl.is Þóra: Viðbrögð RÚV léleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband