Hverjir eru að bregða fæti fyrir að eðlilegar og brýnar framkvæmdir geti hafist? Jú, annar af tveimur stjórnarflokkunum, V-grænir... og meira að segja ákveðin öfl innan Samfylkingarinnar líka
Blóðið rennur úr íslenskum almenningi, fyrirtækjum og áhugasömum framkvæmdaraðilum. Áhugi erlendra fjárfesta minnkar með degi hverjum.
Eitt af því sem Ísland, lítið land úr alfaraleið og langt frá helstu mörkuðum, hefur getað státað af á undanförnum árum, er framboð af orku og þekkingu og mannauði á því sviði og ekki síst pólitískur stöðugleiki.
Núverandi ríkisstjórn hefur tekist að eyðileggja þetta fyrir okkur.
![]() |
Óþolandi atvinnuleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.3.2010 (breytt kl. 16:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við eigum að borga stýrivexti af lánunum í viðkomandi löndum, e.t.v. með örlitlu ofanálagi og 1/3 af höfuðstólnum.
Þetta mál er þriggja landa klúður
Þessar nýlenduþjóðir, Bretar og Hollendingar hafa langa reynslu og hefð fyrir því að "Búllýa" smærri og veikari þjóðir. Þeir kunna það.
En við höfum sterkt vopn í höndunum, nefnilega almenningsálitið í heiminum.
"Skattgreiðendur allra landa! Sameinumst!"
![]() |
Áfram fundað í Lundúnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.3.2010 (breytt kl. 12:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Matthew fór og skriftaði í kirkjunni í litla heimabæ sínum á Írlandi. "Blessaðu mig Faðir því ég hef syndgað. Ég var með lauslátri konu", sagði hann í skriftarstólnum.
Presturinn sagði "Er þetta þú Matthew?"
"Já Faðir, þetta er ég"
"Hvaða konu varstu með?", spyr presturinn.
"Ég vil ekki segja það .... hennar vegna", svarar Matthew.
"Var það Brenda O´Malley?"
"Nei, Faðir"
"Var það Fiona MacDonald?"
"Nei, Faðir"
"Var það Ann Brown?"
"Nei, Faðir, ég get ekki sagt þér það".
Þá segir presturinn "Ég dáist að þagmælsku þinni en þú verður að iðrast synda þinna og því skaltu fara fimm sinnum með Faðir vorið og fjórar Maríubænir".
Matthew gengur út úr kirkjunni og rakleiðis til vinar síns, Sean, sem beið hans í nálægri hliðargötu. "Og hvað fékkstu?", spurði Sean spenntur.
"Ég fékk fimm Faðir vor, fjórar Maríubænir og þrjár mjög góðar ábendingar".
![]() |
Símaskriftir mæta gagnrýni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 2.3.2010 (breytt kl. 02:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tölvur og tækni | 2.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eru tómir viðvaningar hjá íþróttadeildinni á mbl.is? Á hverjum einasta degi er tóm steypa borin á borð fyrir lesendur blaðsins.
Zidane skallaði ekki Materazzi í andlitið, eins og oft og ítrekað er haldið fram í fréttinni. Hann skallaði hann í brjóstið.
P.s. Svona pistlar líta alltaf kjánalega út eftir að búið er að leiðrétta fréttina. Það er sem sagt búið að því
![]() |
Zidane: Frekar dey ég en að biðja Materazzi afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 1.3.2010 (breytt kl. 21:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hér er ekki um neitt tölvutrikk að ræða heldur einfaldlega línur málaðar á ganginn og hurðina. Magnað helvíti.
Cool videos
Bloggar | 1.3.2010 (breytt kl. 13:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Konan setti eitt skilyrði fyrir hnappheldunni; að hann léti af öllum drykkjuskap og setti reglusemi ofar öllu. Krafðist hún að inn í giftingahringnum yrði nafn hennar grafið ásamt
"Ást - tryggð - virðing - reglusemi"
Maðurinn játti þessu og fór til gullsmiðsins en hann sagðist ekki koma þessu öllu fyrir innan í hringnum og stakk upp á að skammstafa þetta. Maðurinn samþykkti þetta.
Nafn konunnar var grafið í hringinn.. og "ÁTVR"
![]() |
Api sendur í áfengismeðferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 28.2.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eftir margra ára hjónaband hlýtur skilnaður alltaf að vera erfiður, jafnvel þó ástin hafi kulnað og maðurinn og konan séu ásátt um að skilnaður sé besta lausnin.
Michael Bublé er frábær söngvari. Ekki af því að hann sé með mikla rödd, heldur vegna þess að hann er einlægur og tjáningin er einföld og látlaus en samt einstök.
Hér að neðan er besta útgáfan sem ég fann af "Live" flutningi herra Bublé á "Hold On" á youtube. Hljóðið er frekar lágt stillt, a.m.k. fyrir fartölvuna mína, en ég bætti úr því með því að tengja heyrnartól við tölvuna. Sömuleiðis er örugglega gott að tengja tölvuna við græjur með magnara og góðum hátölurum........
.... fyrir þá sem vilja hlusta með góðum styrk og með andakt.
Fyrir um viku síðan sagði ég við Eyrúnu, 19 ára dóttur mína að þetta lag yrði orðið vinsælt innan tveggja vikna. Þá var lagið að vísu komið á einhverja "top 100" lista en í dag er það komið í fimmta sæti á vinsældalista Bylgjunnar
![]() |
Eiginmaðurinn þurrkaður út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.2.2010 (breytt kl. 13:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Línu, köku og súlurit eru gagnleg þegar sýna á myndrænt ákveðna þróun. Það er þó hægt að villa mönnum sín með slíkum framsetningum. Skoðum dæmi:
Ef við ímyndum okkur að hér sé verið að sýna hækkun sjávarborðs á tilteknu tímabili og að hækkunin sé u.þ.b. 2 mm. á ári, þá sjáum við að hækkunin er sláandi mikil ef hæðarkvarðinn er í millimetrum (svarta línan). Rauða línan sínir hækkunina í cm. og sú bláa, sem sést varla er í metrum.
Línuritið gæti litið svipað út ef sýna á hitastigsbreytingar.
Hvaða línurit nota þeir sem hæst hrópa um hnattræna hlýnun?
Umhverfismál | 25.2.2010 (breytt kl. 12:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það hefði ekki komið á óvart ef þetta hefði verið í Bandaríkjunum, en í Kanada Ég hélt að Kanadamenn væru svo "Líbó".
Kaninn fær hland fyrir brjóstið ef sést í hálfa geirvörtu, en morð og ofbeldi geta þeir horft á með morgunkorninu.
![]() |
Kennurum vikið úr starfi fyrir kjöltudans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 25.2.2010 (breytt kl. 10:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.8.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 947336
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Er Helgu Völu-stefnan fyrir bý?
- Tíska : HENRIK VIBSKOV á tískuvikunni í Kaupmannahöfn
- Andvanafæddum fjölgaði um 70%
- Barátta orðræðunnar um Bjargráð eða Fíaskó skaðleikans
- Fyrirfram augljóst ???
- "ÞAÐ ER EKKI EIN BÁRAN STÖK Í 12 VINDSTIGUM"..............
- Kristrún í vörn
- Vilja hafa gamla háttinn á.
- 311 manns að sýsla við hvað ?
- Forsendur EES eru brostnar