"Hold on" - myndband

Eftir margra ára hjónaband hlýtur skilnaður alltaf að vera erfiður, jafnvel þó ástin hafi kulnað og maðurinn og konan séu ásátt um að skilnaður sé besta lausnin. 

Michael Bublé er frábær söngvari. Ekki af því að hann sé með mikla rödd, heldur vegna þess að hann er einlægur og tjáningin er einföld og látlaus en samt einstök.

Hér að neðan er besta útgáfan sem ég fann af "Live" flutningi herra Bublé á      "Hold On" á youtube. Hljóðið er frekar lágt stillt, a.m.k. fyrir fartölvuna mína, en ég bætti úr því með því að tengja heyrnartól við tölvunaInLove. Sömuleiðis er örugglega gott að tengja tölvuna við græjur með magnara og góðum hátölurum........  

.... fyrir þá sem vilja hlusta með góðum styrk og með andakt. Joyful

Fyrir um viku síðan sagði ég við Eyrúnu, 19 ára dóttur mína að þetta lag yrði orðið vinsælt innan tveggja vikna. Þá var lagið að vísu komið á einhverja "top 100" lista en í dag er það komið í fimmta sæti á vinsældalista Bylgjunnar  


mbl.is Eiginmaðurinn þurrkaður út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunni, það segir allt um"gæði" þessa flutnings og þessa lags að það skuli vera komið a lista Bylgjunnar! Þvílík hörmung sem þar er borið á borð fyrir hlustendur. Metnaðar leysið algert og tónlistar þekking í lágmarki.

viðar (IP-tala skráð) 27.2.2010 kl. 09:28

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvað sem segja má um Bylgjulistannn þá bitnar það ekki á Michael Bublé. Hann er flottur listamaður og mér finnst þetta glæsilegur flutningur hjá honum á ljúfu lagi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.2.2010 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband