Góð ábending

 Matthew fór og skriftaði í kirkjunni í litla heimabæ sínum á Írlandi. "Blessaðu mig Faðir því ég hef syndgað. Ég var með lauslátri konu", sagði hann í skriftarstólnum.

Presturinn sagði "Er þetta þú Matthew?"

catholic-peril13"Já Faðir, þetta er ég"

"Hvaða konu varstu með?", spyr presturinn.

"Ég vil ekki segja það .... hennar vegna", svarar Matthew.

"Var það Brenda O´Malley?"

"Nei, Faðir"

"Var það Fiona MacDonald?"

"Nei, Faðir"

"Var það Ann Brown?"

"Nei, Faðir, ég get ekki sagt þér það".

Þá segir presturinn "Ég dáist að þagmælsku þinni en þú verður að iðrast synda þinna og því skaltu fara fimm sinnum með Faðir vorið og fjórar Maríubænir".

Matthew gengur út úr kirkjunni og rakleiðis til vinar síns, Sean, sem beið hans í nálægri hliðargötu. "Og hvað fékkstu?", spurði Sean spenntur.

highpi"Ég fékk fimm Faðir vor, fjórar Maríubænir og þrjár mjög góðar ábendingar".


mbl.is Símaskriftir mæta gagnrýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.3.2010 kl. 02:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

  

Jóhann Elíasson, 2.3.2010 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband