Ríkisvæðingardraumar Steingríms

Steingrímur J. Sigfússon sagði á fundinum að ef ríkið kæmi inn í Flugleiðir þá opnist möguleikar á pólitískri ákvarðanatöku um "þjóðfélagslega hagkvæma áfangastaði".

Steingrímur og flokkur hans, VG ...... úff!

 


mbl.is Tilhæfulaust að ríkið taki Icelandair yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Kr. Sigmundsson

Þetta er mjög athyglisvert.

Í lok fundar bað Steingrímur J. gesti fundarins að gæta að því að hann hefði rætt viðkvæm trúnaðarmál, en benti á að Icelandair, eða Flugleiðir hefðu áður notið stuðningsríkisins. Þegar hann hefði verið samgöngumálaráðherra árin 1988-1991 hefði hann skrifað upp á bréf til Boeing flugverksmiðjanna þar sem talað var um Icelandair sem „national airlines“ eða flugfélag ríkisins.

Hvað haldið þið að yrði sagt, ef ráðherra úr Sjálfstæðisflokki leyfði sér að fjalla á slíkan hátt á opnum fundi um "viðkvæm trúnaðarmál"?  Ég held að það megi reikna með því að slík frétt hefði farið eins og eldur um sinu og ekki dottið úr tísku hjá fjölmiðlamönnum um langa hríð.

Hvað yrði sagt um ráðherra úr Sjálfstæðisflokki sem hefði farið fram með blekkingum í samskiptum við erlend stórfyrirtæki?

Að lokum Gunnar, varstu sjálfur á fundinum?  Og ef svo var geturðu staðfest að þetta sé rétt haft eftir Steingrími J.?

Helgi Kr. Sigmundsson, 24.4.2009 kl. 00:19

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei ég var ekki á fundinum en ég hef ekki nokkra ástæðu til að rengja ÞETTA

Það er auðvitað fáheyrður dómgreindarskortur hjá sjóuðum stjórnmálamanni að halda að hann geti sagt eitthvað í trúnaði á opnum fundi. Össur á Íslandsmetið í "leka" og Björgvin G. á drengjametið. Ég veit ekki hvað á að kalla þetta met hjá Steingrími.

Gunnar Th. Gunnarsson, 24.4.2009 kl. 00:42

3 identicon

Góðan dag

Þarna sjáið þið, VG vill innleiða ríkisforsjá á sem flestum sviðum, þar getur hagnaður aldrei þrifist.

Arnar Ívar Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 09:20

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Rétt Arnar, þessi hugmyndafræði vinstrimanna er skelfileg

Gunnar Th. Gunnarsson, 24.4.2009 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband