Kommarnir fara á kreik

Pólitískar hreinsanir? Vinstrimenn koma sínum mönnum að. Í heilagri reiði sinni í 18 ár, hafa þeir gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir að hygla sínum mönnum, en nú kemur í ljós að hugsjónir vinstrimanna eru bara orðin ein. Ekkert á bak við þau.

Í lok apríl, byrjun maí, mun þriðja ríkisstjórnin væntanlega líta dagsins ljós á þremur mánuðum. Verður þá önnur umbylting í mannvali við hið flókna og tímafreka verkefni sem samningar, rannsóknir o.fl. er? Þurfa ekki nýjir stjórnarherrar að koma "sínum" mönnum að?

Hvað varð um "Burt með spillinguna"? 


mbl.is Svavar stýrir Icesave nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einhver Ágúst

Leiðinlegt að segja það en þetta er rétt hjá þér, enda þetta fólk allt saman eins gott og það væntanlega er í grunninn allt orðið fullt bardagamæði og þá er best að hafa já-menn á kantinum, latar truntur sem fara síður á skeið kast manni síður af baki.

Spillingin er ekkert einkaeign Sjálfstæðisflokksins, það læra börnin(stjórnarandstaðan) sem fyrir þeim er haft.

Þessar aðgerðir eru samt alls ekki góðar og hreinlega ekki réttu mennirnir í starfið.

Er svona erfitt að skilja að hægri og vinstri sem slíkt er bæði dautt? Og að reyna að halda þessum gömlu og gatslitnu hugmyndum mun bara leiða okkur niður sömu braut.

Nýja hugsun takk

Einhver Ágúst, 24.2.2009 kl. 12:28

2 identicon

Kommar eða sjálfgræðgismenn, það skiptir ekki máli! Reiði þeirra var réttlát, þeir eiga hins vegar ekki að beita sömu aðferðum. Reyndar hallar verulega á vegna langrar setu sjálfgræðgismanna við stjórnvölinn, þar sem þeir komu fólki með flokksskírteini upp á vasann í allar mögulegar stofnanir ríkisins. Pólítískum ráðningum verður að linna. Þegar við tölum um siðbót, viljum við ekki sjá gamla flokksgæðinga og einkavini DO.

Burt með spillingaröflin, hvar i flokki sem þau finnast!

Kolla (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband