Geta menn þá keypt sér þingsæti?

Hætt er við að efnalítið fólk sitji ekki við sama borð og hinir efnameiri, ef ekki verða jafnramt lögum um persónukjör, settar strangar reglur um auglýsingakostnað frambjóðenda.

Sonur Gvendar á eyrinni á lítinn séns í son Nýríka-Nonna í næstu kosningum, ef hann þarf að keppa við hann á auglýsingamarkaðinum.

political-cartoon-lie-copyright1


mbl.is Persónukjör í kosningunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála. Reyndar er sá efnameiri nú þegar í sterkari stöðu. Þessvegna væri best að leggja þetta valdasjúka fulltrúalýðræði niður og koma á almennilegu þátttökulýðræði. Við gætum byrjað með stjórnlagaþingi.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 17:40

2 Smámynd: Björn Jónsson

Nú ef ekki eru til peningar þá er hægt að ,, berja " fólk til hlýðni Eva.

Björn Jónsson, 17.2.2009 kl. 17:53

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Skil ekki af hverju persónukjör ætti að hafa eitthvað sérstakt með þetta að gera umfram annað. Stendur sonur Nýríka-Nonna ekki betur að vígi en sonur Gvendar á eyrinni nú þegar, hvort sem er við frambjóðendaval í prófkjörum eða uppstillingu? Ég sé ekki að það breytist, en það er rétt; reglur má setja til að jafna mismun manna á milli.

Ég veit um slíkar reglur hjá Samfylkingunni en hjá Sjálfstæðisflokknum eru með "beðnir um" að eyða ekki meiru en tvær og hálfri milljón í prófkjörsbaráttu.

Friðrik Þór Guðmundsson, 17.2.2009 kl. 18:17

4 Smámynd: Hlédís

"Sonur Gvendar á eyrinni á lítinn séns í son Nýríka-Nonna í næstu kosningum, ef hann þarf að keppa við hann á auglýsingamarkaðinum." Leturbreyting mín!   

Þú ert að verða ansi heitur Gunnar!    Spurning þín snertir kjarnann í AUÐvaldis-stjórnun! 

Þetta er einmitt aðalástæðan fyrir gagnrýni á Flokkinn Eina sem framleitt hefur auðmenn á Íslandi í áratugi. Hvers vegna 30% Gvenda á Eyrinni og fjölskyldna þeirra hafa kosið 'þetta' yfir sig jafnlengi til að ræna sig - er undrunarefnið.

Hvað með nýja formannsefnið - þó auðurinn þar sé ekki glænýr, því  nokkrir ættliðir Flokksgæðinga hafa skrapað aurunum saman?   Heldur þú að sonur Gvendar ætti séns í Ný-BBen?      Glætan :)

Hlédís, 17.2.2009 kl. 22:27

5 Smámynd: Hlédís

AUÐvalds-stjórnun átti að standa þarna.

Hlédís, 17.2.2009 kl. 22:31

6 Smámynd: Offari

Er þetta arðbær fjárfesting?

Offari, 17.2.2009 kl. 22:38

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held reyndar að sjálfsæðismenn ætli að stilla þessu enn frekar í hóf í apríl-kosningunum, í ljósi ástandsins. En hvað um það, prófkjör meðal félagsmanna stjórnmálaflokks tryggir að álit þeirra sem mestan áhuga hafa á að móta stefnu flokksins með óeigingjörnu starfi sínu, fái notið sín við uppröðun á viðkomandi lista. Ekki niðurstaða almennrar vinsældakosningar. Allir vita að ótrúlegustu karakterar hafa keypt sér ímynd á markaði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.2.2009 kl. 23:27

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég vil ekki að kosningar snúist upp í skrípaleik. Ég þykist vita reyndar að margir séu þegar þeirrar skoðunar, að pólitík á Íslandi sé einn skrípaleikur. Ég er ekki einn þeirra. Hins vegar er endurskoðun á öllum hlutum nauðsynleg öðru hvoru og öll umræða er af hinu góða, svo framarlega sem niðurstaðan er skynsamleg.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.2.2009 kl. 23:32

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Offari, pólitískt starf fullnægir fleiru en peningaþörf. En það er hættulegt að borga stjórnmálamönnum of lítið fyrir vinnu sína.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.2.2009 kl. 23:35

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kosningalög í dag, bjóða upp á breytingar á framboðslistum.

Auk þess er útstrikunarreglan fyrir hendi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.2.2009 kl. 23:48

11 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Margir þeir sem tóku þátt í prófkjörum einkum Sjálfstæðisflokksins, kostuðu milljónum í ýmiskonar áróður.

Ekki er svo að sjá að það hafi borið neinn ávöxt nema síður sé. Prófkjör eru einskis virði ef peningar eiga að skipta meginmáli. Það er menntun og reynsla einstaklingsins og e.t.v. „innréttingin“ sem mestu máli skiptir, heiðarleiki og hæfileikinn að vilja starfa að heill samfélagsins án þess að verið sé að hygla einhverjum á kostnað annarra.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 19.2.2009 kl. 17:49

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er alveg rétt hjá þér Mosi, en það er þetta með jafnræðið þegar tveir einstaklingar eru álíka frambærilegir. Þá er hætt við að peningarnir geri gæfumuninn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.2.2009 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband