Hótunarpólitík

Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á Alþingi. Samfylkingin hefur verið að reyna að skapa sér ímynd, frá því hún fæddist. Heilög ást jafnaðarmanna á lýðræðinu, íbúalýðræði, samræðupólitík og þar fram eftir götunum, hefur verið hornsteinn þeirrar ímyndar sem flokkurinn vill bera. Þetta er yfirskriftin.... svona útá við.

Jafnaðarmenn hafa ítrekað orðið uppvísir að því á undanförnum vikum, að beita pólitíska andstæðinga sína óeðlilegum þrýstingi. Þrýstingurinn hefur verið í formi hótana um að tiltekin atburðarrás fari í gang, ef ekki verði farið að óskum þeirra.

Það er merkilegt að gamall refur eins og Jón Baldvin, skuli kasta svona stríðshanskanum fyrir sitjandi formann flokksins á erfiðum tímum. Er J.B. með "póker-face" í stöðunni, bara að blöffa? Sér ISG við honum og hellir sér í slaginn? Eða á hún millileik, þ.e. að tilkynna erfðaprins sinn til sögunnar, Dag B. Eggertsson? Hvor ynni þann slag, Dagur/Jóhanna?


mbl.is Segir þagnarmúr um formennsku í Samfylkingu rofinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Jónsson

Sammála þér.

Samfylkingin hefur alltaf virkað á mig líkt og herbergi með fullt af pinnalausum handsprengjum hangandi í.

Björn Jónsson, 15.2.2009 kl. 18:34

2 Smámynd: Hlédís

Einnig gæti hugsast, Gunnar, að JS kærði sig ekki um formannsstól. ISG er allavega allra-"besta" atkvæðafæla SF nú - hvort sem ungkratar trúa eða ei. Er á því BjBj greini vel þarna, enda reyndur maður ;) 

Hlédís, 16.2.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband