Bókvitið verður ekki í askana látið

Einhver kann að segja að þetta gamla spakmæli sé vitlaust, að bókvitið sé einmitt undirstaða tækifæri okkar og grundvöllur velmegunnar. Og það er alveg rétt, en bókvitið eitt og sér er lítils virði ef það er ekki virkjað til góðra verka.

untitled


mbl.is Fá endurkröfubréf frá LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dunni

Góður.

Dunni, 20.1.2009 kl. 10:41

2 Smámynd: Smjerjarmur

Í sumum tilfellum virðist skortur á bókviti verða til þess að menn fá þessa endurkröfu. 

Sjaldan lýgur almannarómur er stundum sagt, en þetta þetta kjánorðtak um askana er einhver leiðinlegasti og versti arfur þjóðarinnar. Bókvitið verður í askana látið. 

Smjerjarmur, 20.1.2009 kl. 10:47

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta máltæki er sprottið úr þeim aðstæðum þegar fólk þurfti að vinna hörðum höndum við að afla sér fæðu. Þegar líkamleg erfiðisvinna var undirstaða þess að fólk hefði til hnífs og skeiðar. Á þeim tímum hafa eflaust verið til þá, eins og nú, einstaklingar sem voru ófúsir til vinnu, en vildu sitja frekar á rassinum og grúska í bókum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 10:59

4 Smámynd: Marta smarta

Spaklega mælt !

Marta smarta, 20.1.2009 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband